Þjóðmál - 01.12.2010, Side 52
50 Þjóðmál VETUR 2010
Deila okkar Íslendinga við Evrópu sam-bandið um makrílveiðar í íslenzku
efna hagslögsögunni á undanförnum vikum
og mánuðum hafa um margt verið lær-
dóms ríkar . Fyrir það fyrsta hafa þær varpað
ljósi á fyrirkomulag sjávarútvegsmála innan
sambandsins sem þó var þekkt fyrir . Íslenzk
stjórnvöld hafa ekki staðið í samskiptum við
ráðamenn í Bretlandi um lausn deil unn ar
heldur ráðamenn í Brussel – og svo vitan-
lega norsk stjórnvöld enda standa Norð-
menn líkt og við Íslendingar utan Evrópu-
sambandsins .
Vart þarf að fara mörgum orðum um
það út á hvað deilan um makrílinn hafa
snúist . Makríll hefur á síðustu árum leitað
í síauknum mæli inn í íslenzku efna hags-
lögsöguna, ekki sízt í ætisleit, og jafnvel
munu vera vísbendingar um að hann sé far-
inn að hrygna innan lögsögunnar . Evrópu-
sam bandið hefur ekki viljað viðurkenna rétt
okkar Íslendinga til þess að veiða makríl
innan okkar eigin efnahagslögsögu, telur
sig eiga makrílstofninn og jafnvel ekki viljað
viðurkenna stöðu Íslands sem strand ríkis .
Við Íslendingar höfum á móti lagt áherzlu
á að við hefðum í krafti fullveldis okkar
allan rétt til þess að nýta þær auðlindir sem
finnast innan íslenzku lögsögunnar . Það sé
út í hött að Evrópusambandið telji sig eiga
fiskistofna innan hennar . Ísland sé ekki
bundið af neinum samningum um veiðar
á makríl þar sem sambandið og Norðmenn
hafa ekki viljað semja við okkur Íslendinga
fyrr en alveg undir það síðasta . Þá séu
hugmyndir þessara aðila um úthlutun kvóta
til Íslands algerlega óraunhæfar .
Ekki lengur strandríki
Erlendir fjölmiðlar, sem fjallað hafa um makríldeiluna, hafa iðulega rætt um
strandríkin fjögur („four coastal states“)
sem væru aðilar að henni, Ísland, Færeyjar,
Noreg og – Evrópusambandið . Þannig er
nefnilega mál með vexti eins og bent hefur
verið á að ef Ísland gengi í sambandið þýddi
það meðal annars að landið hætti að vera
skilgreint sem strandríki enda yrði íslenzka
efnahagslögsagan eftirleiðis aðeins hluti
af sameiginlegri efnahagslögsögu þess og
yfirstjórn hennar yrði í Brussel .
Ljóst er að þær samningaviðræður sem
staðið hafa yfir um makrílinn hefðu aldrei
Hjörtur J . Guðmundsson
Sjávarútvegurinn, Ísland
og Evrópusambandið