Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 54
52 Þjóðmál VETUR 2010
Öllu fórnandi fyrir ESB
Það er vert að hafa það í huga í þessum efnum að fyrir nokkrum árum tók
mál flutningur margra helztu tals manna
inn göngu í Evrópusambandið hér á landi
grund vallarbreytingum þegar kom að
sjávarútvegi . Þannig sagði Össur Skarp héð-
ins son, þáverandi formaður Sam fylk ing ar -
innar, til að mynda í blaðagrein í Morg un
blað inu 26 . júní 2002: „Það er ein faldlega
ekki í kortunum að við sam þykkjum
aðild ar samning sem felur í sér fram sal á
yfirráðum yfir auðlind Íslands miða .“ Á
öðrum stað í sömu grein sagði Össur: „Án
tryggra yfirráða yfir auðlindinni kemur
aðild að ESB að mínu mati ekki til greina .“
Í umræðum um utanríkismál á Alþingi
haustið 2005 var hins vegar komið allt
annað hljóð í strokkinn hjá Össuri þegar
hann ræddi um örlög íslenzks sjávarútvegs
innan Evrópusambandsins . Þá sagði hann:
„Hins vegar vil ég segja það alveg klárt og
kvitt að ég er líka reiðubúinn að ganga í
Evrópusambandið jafnvel þó yfirstjórnin
yrði í Brussel .“ Öllu virðist því með öðrum
orðum fórnandi fyrir inngöngu í sambandið .
Þess má þó geta sumir aðrir stuðningsmenn
inngöngu í Evrópusambandið hafa viljað
meina að við Íslendingar þyrftum engar
undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegs-
stefnu sambandsins, hún hentaði hags-
munum okkar vel eins og hún væri en
flestir í þeirra röðum Evrópusambandssinna
munu þó vera á því að þess þurfi ef miðað er
við málflutning þeirra .
Eðlilega vaknar sú spurning hvað hafi
gerzt í millitíðinni sem kann að hafa
orðið þess valdandi að Össur kaus að gefa
eftir kröfu sína um að áframhaldandi
yfirráð yfir Íslandsmiðum . Sumarið 2004
kom þáverandi sjávarútvegskommissar
Evrópusambandsins, Franz Fischler,
til landsins og lýsti því yfir aðspurður
að ekki væri í boði að við Íslendingar
héldum þessum yfirráðum gengjum við
í sambandið né heldur að hægt væri að
koma á einhvers konar sérstöku stjórnsýslu-
svæði í sjávarútvegsmálum við Ísland,
hugmynd sem Halldór Ásgrímsson, þá
utanríkisráðherra, hafði fyrstur sett fram .
Íslenzka efnahagslögsagan yrði hluti af sam-
eiginlegri efnahagslögsögu þess . Í samtali
við norskan fjölmiðil ekki löngu síðar var
Fischler enn inntur svara við þessu álitamáli
og sagði þá meðal annars að ekki væri rúm
fyrir fleiri en eina sjávarútvegsstefnu innan
Evrópusambandsins .
Reynsla Breta
Íþessu sambandi mætti einnig geta þess að sumarið 2005 kom þáverandi sjávar-
útvegsráðherra Bretlands, Ben Bradshaw, til
Íslands og sagði meðal annars af því tilefni að
fengjum við Íslendingar einhverja sérstaka
úrlausn í sjávarútvegsmálum myndu Bretar
krefjast þess sama . Hafa verður í huga í því
sambandi að Bretar hafa allt frá þeim tíma
er þeir gengu í forvera Evrópusambandsins
árið 1972 reynt að breyta sameiginlegri
sjávarútvegsstefnu sambandsins en allt fyrir
ekki þrátt fyrir að vera eitthvert öflugasta
ríkið innan þess . Stefnan hefur þvert á móti
þróast síðan í öfugar áttir við það sem þeir
hefðu kosið . Bretar töldu á sínum tíma að
þeir gætu breytt stefnunni innan frá en
reynslan bendir til þess að það hafi í bezta
falli óskhyggja .
Bretar hafa sakað Evrópusambandið um að
rústa sjávarútvegi sínum með sameigin legri
sjávarútvegsstefnu, bæði úr röðum þeirra
sem eru hlynntir verunni í sambandinu og
þeirra sem eru henni andsnúnir . Stefn an
hefur lengi legið undir miklu ámæli meðal
annars fyrir það að stuðla að ofveiði eða að
minnsta kosti koma ekki í veg fyrir hana .