Þjóðmál - 01.12.2010, Page 56
54 Þjóðmál VETUR 2010
sam bandið, var að regla sambandsins um
svo kallað an hlutfallslegan stöðugleika,
sem byggir á sögulegri veiðireynslu við
kvóta úthlut an ir í Brussel, yrði fest í sessi
eins og kostur væri með því að kveðið yrði
á um mikil vægi hennar í aðildarsamningi
Nor egs . Þessu hafnaði Evrópusambandið
sömu leiðis .
Þegar Malta gekk í Evrópusambandið
2004 var sett almenn regla um að öll ríki
Evrópu sambandsins gætu veitt í lögsögu
eyjar innar en hins vegar voru settar tak-
markanir á það hversu stór skip mætti nota
til veiðanna . Einungis tiltölulega litlir bátar
mega veiða í kringum Möltu og er treyst á
að útgerðir til dæmis á Spáni, Ítalíu og frá
Frakklandi telji ekki hagkvæmt að senda
litla báta til veiða þar .
Hlutfallslegur stöðugleiki
Þegar stuðningsmönnum inngöngu í Evrópusambandið varð endanlega
ljóst að ekki yrði hægt að halda íslenzkum
sjáv ar útvegsmálum með einhverjum hætti
fyrir utan veru í sambandinu ef Ísland
færi þangað inn, eða þá að ekki væri
hægt að telja íslenzkum almenningi trú
um það, tóku þeir þann pól í hæðina í
málflutningi sínum að lagaleg og pólitísk
yfirráð yfir auðlindum Íslandsmiða skiptu
í raun og veru alls engu máli . Þau væru
í reynd aðeins forms atriði . Það sem skipti
máli væri að Ís lendingum yrði úthlutað
öllum kvóta við strendur landsins – af
Evrópusambandinu .
Í þessu sambandi hafa þeir horft til reglu
Evrópusambandsins um hlutfallslegan
stöðug leika sem áður var minnzt á og sagt
að hún myndi tryggja að við Íslendingar
fengjum allan kvóta á Íslandsmiðum .
Fátt er þó fjær sanni . Þessi regla snýst
ekki um yfirráð yfir fiskimiðum heldur
er í raun aðeins um að ræða vinnureglu
hjá sambandinu um það hvernig staðið
er að úthlutun kvóta . Þessa reglu er
hins vegar hvergi að finna í sátt mál um
Evrópusambandsins og hún stangast í
raun á við eitt af grundvallaratriðum þeirra
um jafnan aðgang ríkja sambandsins að
sameiginle gum auðlindum .
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefur staðfest í svokölluðum grænbókum
sínum að til standi að breyta reglunni
um hlutfallslegan stöðugleika um leið og
félagslegar og efnahagslegar aðstæður leyfi .
Þegar réttar aðstæður verði fyrir hendi
verði einfaldlega markaðslögmál látin gilda
um sjávarútveg innan Evrópusambandsins .
Með öðrum orðum er umrædd regla
aðeins bráðabirgðafyrirkomulag . Ekki þarf
einróma samþykki í ráðherraráði sam-
bandsins til þess að breyta reglunni eða
afnema hana og því væri það auðveldlega
hægt án samþykkis okkar Íslendinga þó
að við værum þar innanborðs . Í þeirri
endurskoðun á sameiginlegri sjávar-
útvegsstefnu sambandsins sem nú stendur
yfir hefur einmitt meðal annars verið rætt
um að koma á einu allsherjar kvótakerfi
innan þess þar sem aflaheimildir gengju
kaupum og sölum á milli ríkja .
Í nýjustu grænbók framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, sem kom út á síðasta
ári, kom ennfremur fram að reglan um
hlutfallslegan stöðugleika tryggi ekki lengur
að kvóti haldist í þeim ríkjum sambandsins
sem honum hefur verið úthlutað til . Það er
því ljóst að engin trygging fælist í þessari
reglu þegar sjávarútvegshagsmunir okkar
Íslendinga væru annars vegar . Hins vegar
er eins ljóst að Evrópusambandið mun
vafalaust gera hvað það getur til þess að
láta líta út fyrir að komið hafi verið til
móts við hagsmuni okkar ef það ferli sem
nú er í gangi í kjölfar umsóknarinnar um
inngöngu í sambandið fer alla leið og endar
með samningi og þjóðaratkvæðagreiðslu .