Þjóðmál - 01.12.2010, Side 57
Þjóðmál VETUR 2010 55
Yfirráðin yfir okkur sjálfum
En eins gríðarlega mikilvæg og yfirráðin yfir auðlindum Íslands eru fyrir
okkur Íslendinga, og þá ekki sízt miðin
í kringum landið, er engu að síður vert
að velta því fyrir sér hversu miklu máli
það skipti jafnvel þó við gætum haldið
þeim yfirráðum þrátt fyrir inngöngu í
Evrópusambandið ef við misstum um leið
yfirráðin yfir okkur sjálfum? Valdið til þess
að setja okkur sjálfum lög og kjósa þá sem
stjórnuðu landinu okkar? Ef við þyrftum
að standa og sitja eftir fyrirmælum frá
embættismönnum og stjórnmálamönnum í
Brussel sem við hefðum ekkert yfir að segja
og enga möguleika á að hafa áhrif á?
Það er mitt mat að þau yfirráð skiptu
mestu máli í þessu sambandi enda fælist
um leið í þeim yfirráðin yfir öllum okkar
málum og þar með talið auðlindum Íslands .
Fullveldi landsins og íslenzku þjóðarinnar
og íslenzkt lýðræði skiptir mestu máli,
nokkuð sem ljóst er að heyrði sögunni til ef
við gengjum í Evrópusambandið .
Síðla í nóvember] bárust af því fréttir sunnan frá Venesúela að Hugo Chávez forseti lands-
ins hefði bannað notkun mynda af sér nema með
sérstöku samþykki sínu . Eins og menn vita geta
myndir sýnt menn í óheppilegu ljósi . Banninu
er ætlað að styrkja ímynd forsetans sem hins
eina sanna leiðtoga, svipað og fánalög upphefja
fánann sem sameiningartákn .
Þetta mál sýnir að útrás með íslenskt hugvit er
hvergi nærri lokið .
Í apríl á síðasta ári birti Vefþjóðviljinn litla aug-
lýsingu í tveimur dagblöðum . Þar var vakin at-
hygli á því að enginn þingmaður hefði hagnast
jafn vel á „eftirlaunafrumvarpinu“ og Steingrímur
J . Sigfússon . Á árunum 2003 og 2009 varð
Stein grímur 15 milljónum króna bættari vegna
„eftir launa frumvarpsins“ . Eins og Vefþjóðviljinn
hefur áður sagt frá urðu viðbrögðin við þessum
aug lýsingum áhugaverð . Þegar þær birtust hafði
Stein grímur verið fjármálaráðherra í nær þrjá
mánuði og var farinn að finna til sín í embætti .
Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að
blöðin með auglýsingunni höfðu verið borin í
hús, barst Vefþjóðviljanum bréf, þar sem honum
var tilkynnt að hann hefði verið kærður fyrir
tiltækið . Ekki þó vegna þess að stafkrókur væri
rangur í auglýsingunni; nei, Vefþjóðviljinn var
þess í stað sakaður um þann stórglæp að hafa birt
litla andlitsmynd af Steingrími J . Sigfússyni í litlu
auglýsingunni . Í tilkynningu til blaðsins sagði
að kæran hefði borist „frá stjórnmálaflokknum
Vinstri Grænum á hendur Vefþjóðviljanum“ .
Tilgangur kærunnar var augljóslega að reyna
að hindra frekari birtingu auglýsingarinnar, svo
þessar upplýsingar kæmust ekki til vitundar
fleira fólks . Lítil vefsíða leyfði sér að birta upp-
lýsingar um gríðarlegan persónulegan ábata eins
stjórnmálamanns af lagabreytingu, sem flokk-
ur hans hefur í hálfan áratug úthrópað sem
sérstak an „ósóma“ . Sami stjórnmálaflokkur brást
strax við með kærumálum, án þess þó að gera
nokkra einustu efnislegu athugasemd við efni
auglýsingarinnar . Augljóslega var reynt að hræða
vef síðuna frá frekari birtingu hennar . Því er
meira að segja haldið fram, og það í fullri alvöru,
að það sé hreinlega óheimilt að birta hefðbundna
andlitsmynd af formanni stjórnmálaflokks og
ráðherra í lítilli auglýsingu þar sem vakin er
athygli á lítilli staðreynd .
Á sömu stund og kæran vegna mynd birt-
ingarinnar var send með hraði frá flokksskrifstof-
um VG voru ungliðar flokksins að dreifa um
bæinn barmmerkjum með mynd af Bjarna Bene-
dikts syni formanni Sjálfstæðisflokksins þar sem
honum var líkt við „olíu á eldinn“ .
Vef-Þjóðviljinn 24 . nóvember 2010 .
Sækjast sér um líkir