Þjóðmál - 01.12.2010, Page 58

Þjóðmál - 01.12.2010, Page 58
56 Þjóðmál VETUR 2010 Stjórnmálamenn eru jafnan í þóknun ar-hlut verki gagnvart kjósendum sín um af eðlilegum ástæðum . Járn kansl arinn frægi Otto von Bismarck var kló kur maður . Hann setti lög gjöf um al manna tryggingar og innleiddi rík is reknar skyldu sjúkdómatryggingar ásamt því að veita öldruðum lífeyri . Bismarck vissi að þetta var góð leið til að auka fylgi hans hjá kjós endum . Hann benti á þá staðreynd að hver sá sem framkvæmir svona aðgerðir á stuðning kjósenda vísan . Það ríkir samkeppni meðal stjórnmála- flokka og þeir leitast við að yfirbjóða hver annan til að veiða sem flest atkvæði . Þótt allir séu sam mála um að sjá til þess að aldraðir og öryrkjar hafi í sig og á, þá hafa stjórnmálamenn gengið allt of langt í þeirri viðleitni sinni að þóknast kjósendum sínum . Þeir sem sýna aðhaldssemi í ríkissrekstri eru oftar en ekki sakaðir um að vera ýmist veruleikafirrtir eða í versta falli siðb lindir . Eyðsluglaðir andstæðingar þeirra á hinu pólitíska sviði ýta oftar en ekki undir þessi vafa sömu sjónarmið almennings, sjónarmið sem standast enga skoðun . Ef við gefum okkur það, að hinir aðhalds- sömu stjórnmálamenn séu siðblindir og veru leikafirrtir, þá ætti það ekki að koma í veg fyrir eyðslugleði þeirra . Menn haldnir fyrrgreindum brestum eru oft ansi klókir og meðvitaðir um það sem þarf til þess að veiða flest atkvæði . Sá stjórnmálamaður sem getur séð til þess að enginn líði skort og uppfyllt allar beiðnir hinna ýmsu hópa um styrki ætti að vera öruggur um að fá mikið fylgi í kosningum . Kjósendum hættir nefnilega oft til skammsýni og grunnhyggni og það er einmitt að stórum hluta ástæða þess, hvernig komið er fyrir landinu okkar . Þótt almenningur fjargviðrist oft yfir ýmsum athöfnum stjórnmálamanna, þá getur hann yfirleitt sjálfum sér um kennt . Fólk virðist oft halda að opinberir sjóðir séu ótakmörkuð auðlind og hinir ýmsu hagsmunahópar eru oft ansi frekir til fjárins . Því miður er samtrygging stjórnmála- manna vel þekkt . Þeir veita fyrrum sam- herjum sínum oft góðar, en stundum fremur gagnslitlar stöður að launum, fyrir áralanga vináttu og stuðning . Ekki er endilega vafasömu siðferði stjórnmálamanna um að kenna, heldur reynist flestum erfitt að um gangast mikil völd sem og fjármuni til lengdar . Á rátta vinstri manna að vilja stöðugt hækka skatta og þenja út ríkisbáknið, ýtir undir allan þennan fjáraustur . Of mikil þensla hjá hinu opinbera þýðir oftar en ekki Jón Ríkharðsson „Að ausa fé úr opinberum sjóðum“

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.