Þjóðmál - 01.12.2010, Page 59
Þjóðmál VETUR 2010 57
óábyrga meðferð á almannafé . Farsælast er
að hafa skatta eins lága og mögulegt er til
þess að veita stjórn málamönum aðhald .
Meiri þensla hjá al menningi heldur en
hinu opinbera leiðir af sér almenna hagsæld
ásamt auknum lífsgæð um .
Alltaf þegar vinstri menn komast til valda
fara fjármálin gjörsamlega úr böndunum .
Það er vegna þess að þeir eru lítt tengdir
við raun veru leikann, þeim finnst mun
þægilegra að dvelja í draum heimi .
A rgentína er gott dæmi um hættuna sem af vinstri mönnum stafar . Landið
var eitt af ríkustu löndum heims þegar Juan
Peron komst til valda . Evita Peron, kona
hans, var gerð að þjóðardýrlingi þar í landi
því hún þótti svo góð við hinn almenna
borgara .
Þessi velviljaða en fremur óraunsæja
kona jós fé úr opinberum sjóðum til þess
að gleðja lands menn . Flestir urðu glaðir,
en sú gleði varð fremur skammvinn því að
efnahagurinn hrundi . Meiri áheyrsla var
lögð á eyðslu heldur en verð mætasköpun og
það varð til þes að eitt ríkasta land heimsins
var nú komið í hóp fátækustu ríkja .
Þetta ætti að vera okkur Íslendingum
víti til varnaðar . Þessi þjóð hefur verið það
lánsöm að búa við skynsama leiðtoga sem
komið hafa úr röðum sjálfstæðismanna .
Nefna má t .a .m . Ólaf Thors og Bjarna
Benediktsson, en þeir börðust hart gegn
höftunum sem voru hér allsráðandi og
höfðu að lokum sigur, einnig börðust þeir
ásamt fleiri góðum sjálfstæðismönnum
fyrir frjálsri verslun hér á landi . Svo kom
Davíð Oddson og hann nánast útrýmdi
því sem á slæmu máli heitir „lobbyismi“,
þ .e .a .s . að hygla mönnum í þeirri von að
fjölga atkvæðum sér til handa og styrkja
valda stöðu sína í samfélaginu, einig komu
margvíslegar framfarir aðrar á hans valdatíð
sem öllum ættu að vera kunnar .
Það er lán okkar að hafa lítið haft af
vinstri mönnum að segja í landsstjórninni .
Á lands fundi Vinstri grænna árið 2007
hrópaði for mað urinn hátt um það að
sem flest ætti að vera landsmönnum að
kostnaðarlausu . Á honum var að skilja að
við ættum að njóta ókeypis tannlækninga
sem og læknisaðstoðar, skóla kerfið ætti
einnig að vera ókeypis frá leik skóla og upp
úr o .s .frv . Þetta er ekkert annað en blekking,
það er ekkert af þessu ókeypis, það þarf að
borga fyrir alla þessa þjónustu og fái þessar
hugmyndir hans fram að ganga endum við í
sömu, ef ekki verri stöðu en Argentína .
Verkefni hins opinbera ætti ekki að vera neitt annað en að hafa traustan
og einfaldan lagaramma sem veitir borg-
ur unum öryggi og aðhald, einnig þarf
að sjá til þess að virk heilbrigðisþjónusta
sé til staðar . Það þarf einnig að veita fé í
menntun landsmanna, en þar þarf að skera
heilmikið niður . Talað er um víða erlendis
að nóg sé að hafa einn háskóla á hverja
milljón íbúa . Á okkar litla landi, sem telur
rúmar þrjúhundruð þúsund einstaklinga,
eru fjórir . Þetta litla dæmi sýnir að mikið
er hægt að skera niður án þess að það
bitni á þjóðinni í heild . Að sjálfsögðu þarf
að tryggja framfærslu þeim til handa sem
ósjálfbjarga eru .
Óhóflegur fjáraustur úr opinberum
sjóð um gerir ekkert annað en að þyngja
róður inn í ríkisrekstrinum og sljóvga hinn
almenna borgara . Ef ríkið greiðir fyrir
alla skapaða hluti, þá fer kostnaðarvitund
fólks dvínandi og brengluð raunsæiskennd
kemur í kjölfarið . Fólk hættir að gera sér
grein fyrir því að opinberir sjóðir myndast
við öflun fjár úr vasa almennings, þannig
að misnotkun velferðar kerfisins fer þá vax-
andi .
Því miður er það þannig að velferðarkerfin
hafa haft óþarflega íþyngjandi áhrif á