Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 63
Þjóðmál VETUR 2010 61
fjölmiðlar flestir þar, eins og svo oft
áður raunar í málum sem tengdust
hruni bankanna . Ekki verður það rakið
sérstaklega hér, en vonandi kemur að því
að framganga fjölmiðla mánuðina eftir
bankahrun verður rannsökuð af þeirri
nákvæmni sem það mikilvæga efni kallar
á, og að þá verði einnig hugað að tengslum
fjölmiðlamanna við þá einstaklinga og
fyrirtæki sem mest komu við sögu – eða
hefðu átt að koma við sögu .
L ítið dæmi um framgöngu íslenskra fjöl miðla má þó nefna . Rannsóknar-
nefnd Alþingis kynnti skýrslu sína á
frétta mannafundi sem útvarpað var
og sjón varp að í beinni útsendingu .
Fréttastofa Rík is útvarpsins sendi auðvitað
fréttamann á staðinn, Jóhönnu Vigdísi
Hjaltadóttur . Hér er ekki lagt mat á hana
sem fréttakonu, en hún er systir Erlendar
Hjaltasonar sem þá var forstjóri Exista,
en það fyrirtæki var stærsti eigandi Kaup-
þings . Fréttastofa Ríkisútvarpsins valdi
með öðrum orðum fréttamann, sem var
systir forstjóra stærsta eiganda stærsta
bankans, til að segja fyrstu fréttir af skýrslu
rannsóknarnefndar um hrun bankanna .
Af augljósum ástæðum getur það vart
talist annað en undarleg ákvörðun frétta-
stofu . Á fundinum kom skýrt fram hvað
rannsóknarnefndin taldi hafa valdið falli
bankanna . Rannsóknarnefndarmaður inn
Sig ríður Benediktsdóttir flutti um það
efni langan fyrirlestur á fundinum og hóf
mál sitt á þessum orðum: „Meginorsök
falls bankanna var vöxtur þeirra og stærð
þeirra við fall . Stóru bankarnir þrír
tuttugufölduðust að stærð á sjö árum .“
Þessu fylgdi langt mál Sigríðar um það
sem verið hefði óeðlilegt í rekstri bank-
anna . Þegar fréttamenn komust að með
spurningar tilkynnti Páll Hreinsson,
sem stýrði fundinum, að hver fjölmiðill
fengi eina spurningu . Fulltrúi fréttastofu
Ríkisútvarpsins þurfti ekki að hugsa sig
lengi um hvað væri mál málanna . Spurning
Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur var: „Ég
vil biðja ykkur um að útskýra betur fyrir
okkur, þið talið um vanrækslu stjórnar
Seðlabankans í aðdraganda þess að Glitnir
var þjóðnýttur í lok september 2008, að
útskýra betur í hverju sú vanræksla felst
og hvað hefði átt að gera, og í öðru lagi
við vitum það að þessi skýrsla fer núna
til umfjöllunar alþingis og síðan fer hún
í sérstaka þingnefnd til umfjöllunar, en
teljið þið ástæðu til þess að landsdómur
yrði kallaður saman?“
Raunar virðast margir starfsmenn Ríkis útvarpsins hafa haft mikinn
áhuga á stjórnsýslunni en kannski minni
á bönkunum . Annar starfsmaður Ríkis-
útvarpsins, sem þó er ekki fréttamaður
heldur stýrir tveimur sjónvarpsþáttum,
mætti á fréttamannafundinn . Egill Helga-
son kvaddi sér hljóðs og kom með þessa
athugasemd frá eigin brjósti, og hafði þá
auðvitað ekki lesið skýrsluna frekar en aðrir:
„Það er eitt sem að mér finnst athyglisvert
og mig langar til að nefna við ykkur,
kannski Tryggva, varðandi stjórnsýsluna,
það er hvað stjórnsýslan virðist hafa verið
léleg og hvað hún er að bregðast mikið,
og hvað ákvarðanir eru komnar þarna
mikið inn á borð tveggja aðalmannanna í
ríkisstjórninni, og hvað mikið af þessum
samskiptum t .d . milli Seðlabankans og
ríkisstjórnarinnar fer fram í virðist vera
símtölum og það er ekkert skráð niður
og þetta stingur mjög í augu og manni
finnst þetta vera mikill áfellisdómur yfir
stjórnsýslunni .“
Þetta var það sem fulltrúum Ríkis út-varpsins þótti brýnast að annars vegar
spyrja um og hins vegar slá föstu . Ekki