Þjóðmál - 01.12.2010, Page 69

Þjóðmál - 01.12.2010, Page 69
 Þjóðmál VETUR 2010 67 stuðst við kenningar ýmissa fræðimanna í svokölluðum smáríkjafræðum, sem í stuttu máli ganga út á það að smáríki geti haft áhrif í alþjóðakerfinu þrátt fyrir smæð sína . Í þessu samhengi er iðulega vísað til Norðurlandanna um sjálfstæði og áhrif á heimsvísu . Og nú um stundir er jafnvel rætt um norrænt sambandsríki, án þess að slík hugmynd hafi verið hugsuð til þrautar . Á seinni árum hafa ýmsir fræðimenn á sviði alþjóðasamskipta gert tilraunir til að endurskilgreina vald og beitingu þess í samskiptum ríkja . Kenningar um áhrifamátt smáríkja eru í andstöðu við klassísk viðhorf raunsæishyggju sem leggur megináherslu á efnahagslega- og hernaðarlega getu ríkja til að hafa áhrif í alþjóðastjórnmálum og hin valdamestu ríki hiki ekki við að beita valdi sínu gegn smærri ríkjum, ef þau hafa getu, vilja og burði til .13 Draga má í efa að kenningasmíð af þessu tagi sé nægilega raunhæf og ígrunduð, þótt ástæðulaust sé að draga í efa áhuga smærri ríkja til þess að láta gott af sér leiða, jafnvel á heimsvísu, á einhverjum afmörkuðum sviðum, þar sem þau kannski búa yfir umtalsverðri sérþekkingu sem eftirsóknarvert kann að vera að miðla til annarra ríkja, er bágar kunna að standa í einhverjum skilningi . En hvað Ísland varðar hefur greinilega verið búinn til nýr fræðilegur kenningarammi, sem einhverjir myndu segja að bæri svolítinn „2007 útrásarkeim“, en þar er látið að því liggja að það sem kallað er skynjuð og valin stærð landsins hafi lagt grunninn að aukinni þátttöku Íslands í alþjóðasamfélaginu og að stjórnvöldin hafi skynjað stærð landsins með öðrum hætti en áður og því valið því 13 Christine Ingebritsen: „Norm Entrepreneurs: Scandinavia´s Role in World Politics .“ Cooperation and Conflict 37:1 (2006), bls . 11–23 . nýja stærð í alþjóðakerfinu,14 hvorki meira né minna . Hér gefst ekki mikið ráðrúm til gagnrýni á þessa kenningasmíð, en aðeins ítrekað það sem áður hefur verið nefnt, að hún sé beinlínis liður í því að undirbyggja fræðilega réttlætingu og rök fyrir umsóknarferlinu . Og með sanni má segja að fræðasamfélagið hafi ekki látið sitt eftir liggja . Haustið 2007 og fram á árið 2008 stóð utanríkisráðuneytið ásamt háskólum landsins fyrir fundaröð um alþjóðasamstarf Íslands á 21 . öldinni . Á opnunarmálþinginu í Háskóla Íslands 7 . september 2007 héldu bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra ávörp og skýrðu pólitískar forsendur og markmið með framboði Íslands . Í máli Geir H . Haarde, þá forsætisráðherra, kom fram að eftir miklar efnahagslegar og félagslegar breytingar á Íslandi væri komin upp sú staða að Íslendingum dygði ekki lengur að vera „farþegar“ í alþjóðasamstarfi . Hagsmunagæsla Íslendinga væri orðin margþættari en áður og þeir færari um að standa vörð um eigin hagsmuni . Sífellt flóknara væri orðið að fela öðrum hagsmunagæslu landsins og sagði hann það siðferðislega og pólitíska skyldu Íslands að halda fram gildum Íslendinga .15 Hafa ber í huga að haustið 2007 er Ísland í hágöngu efnahagslegrar velgengni og athyglisvert að sjá hve samstíga fræðasamfélagið og stjórnmálamennirnir eru . Þrettán mánuðum síðar stóð Ísland á barmi efnahagslegs hengiflugs og kreppu, sem átti sér ekki hliðstæðu á lýðveldistímanum . 14 Baldur Þórhallsson: „Hefur Ísland valið sér nýja stærð í alþjóðakerfinu?” Rannsóknir í félagsvísindum VII . (2006), bls . 639–640 . 15 Staða Íslands í samfélagi þjóðanna 7 . 9 . 2007, Ávarp Geirs H . Haarde forsætisráðherra í hátíðarsal Háskóla Íslands föstudaginn 7 . september 2007 . www .forsaetisras/radherduneyti .ira/raedurGHH/ nr/2709

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.