Þjóðmál - 01.12.2010, Side 70
68 Þjóðmál VETUR 2010
II . Kosningabaráttan –
áherslur og veikleikar
Þegar kosið er til Öryggisráðsins er heiminum skipt upp í svæði og ríkin,
sem búa á svæðinu, mynda ríkjahóp og
úr þeim hópi velja ríkin á hverju svæði
um sig fulltrúa í Öryggisráðið . Ísland
tilheyrir svokölluðum Vesturlandahópi
(WEOG), en hann skipa ríki Vestur-
Evrópu, Kanada, Bandaríkin, Nýja-Sjáland
og Ástralía, auk Ísraels sem á aukaaðild
að Vesturlandahópnum . Þegar litið er yfir
þennan ríkjahóp má ráða að skiptingin
tekur fremur mið af sameiginlegum
gildum og viðhorfum, en staðsetningu
ríkjanna . Löng hefð mun vera fyrir því að
Norðurlöndin skipi sæti í Öryggisráðinu á
fjögurra ára fresti og hafa þau jafnan staðið
saman og stutt hvert annað . Ísland hefur að
vísu verið utan þessarar samstöðu fram til
1998 . Á svipaðan hátt hafa CANZ-ríkin
svokölluðu – Kanada, Ástralía og Nýja-
Sjáland – átt samvinnu um framboð, sem
felst í því að ríkin bjóða ekki fram, hvert
gegn öðru .16 Hörð samkeppni hefur oftast
verið á milli ríkja í Vesturlandahópnum um
sæti í Öryggisráðinu, en þó voru bundnar
vonir við það í upphafi sóknar Íslands 1998,
að einungis tvö ríki yrðu um hituna, Ísland
og Austurríki . Þær vonir brustu sumarið
2003, þegar Tyrkir tilkynntu um framboð
sitt og við blasti að hörð samkeppni yrði á
milli þriggja ríkja um tvö sæti .17
Hér var við ramman reip að draga, þótt
báðir keppinautar Íslands hefðu áður átt
sæti í Öryggisráði S .þ ., en Ísland aldrei .
Austurríki hafði tvisvar áður átt sæti, á
árunum 1973–1974 og 1991–1992 og
16 Skýrsla um framboð Íslands og kosningabaráttu til
sætis í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna 2009–2010,
Utanríkisráðuneytið, (2009), bls . 6 .
17 Sama heimild, bls . 7 .
Tyrkland þrisvar sinnum, 1951–1952,
1954–1955 og 1961, en þá deildi landið
sæti með Póllandi og sat því einungis í eitt
ár .18
Nú er mál að líta ögn á kosningaáherslur
keppinauta Íslands og bera saman, ef það
kann í einhverju að skýra hvers vegna
Ísland beið algert afhroð í kosningunum
til Öryggisráðsins, eða hvort aðrir þættir
hafi kannski leikið stærra hlutverk . Það
lá strax fyrir að framboð Tyrklands yrði
sigurstranglegt . Landið er fjölmennt (77,8
millj .) og liggur á mörkum tveggja „heima“
Asíu og Evrópu . Mikill meirihluti íbúa eru
múslimar (99,8%), en stjórnkerfi ríkisins
er veraldlegt .19 Eins og öll ríki gera sem
berjast fyrir sæti í Öryggisráðinu lögðu
Tyrkir áherslu á störf sín í þágu friðar og
öryggis á vettvangi S .þ . og vaxandi framlög
til þróunarsamvinnu og aðstoðar, auk þess
sem þeir undirstrikuðu sérstöðu sína með
því að stofna til verkefnisins Bandalag
menningarheima (Alliance of Civilization),
ásamt Spáni, sem var kynnt sem vettvangur
umræðu um trúmál . Tyrkland lagði og
mikla áherslu á legu landsins með tilliti til
þess að mörg viðfangsefna Öryggisráðsins
snúa að ríkjum í næsta nágrenni þess .20
En hvar lágu áherslur Austurríkis og sér-
staða? Að slepptri áherslunni, sem allir
hafa, þ .e . störfin í þágu friðar og öryggis,
er ferill landsins í starfi S .þ . afar farsæll
og víðtækur . Í Vínarborg eru staðsettar
ýms ar undirstofnanir S .þ ., sem vinna að
friðar- og öryggismálum og berjast gegn
ýmsum alþjóðlegum ógnunum . Má í því
samhengi nefna stofnanir á borð við Al-
þjóða kjarnorkumálastofnunina (IAEA),
18 Sama heimild, bls . 8–9 .
19 CIA – The World Factbook, https://www .cia .
gov/library/publications/the-world-factbook/geos/
tu .html
20 Skýrsla um framboð Íslands og kosningabaráttu til
sætis í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna 2009–2010,
Utanríkisráðuneytið, (2009), bls . 9 .