Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 79

Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 79
 Þjóðmál VETUR 2010 77 blaðamennsku og bókmennta á síðari hluta 20 . aldar, – hann braut upp viðtals formið . „Ég tel mig Fjölnismann, ég tel mig borg- aralegan rithöfund, en engan róttækling og hef því ekkert á móti borgarafundum,“ segir Matthías í lok VII . hluta bókar sinnar og vík ur víða að samstarfi sínu og kynnum af Bjarna Benediktssyni ritstjóra og for sætis ráð herra og viðhorfum hans . Ég hygg að Matthías verði ekki skilinn nema hafa þetta í huga – og Njálu . Og um leið rennur upp fyrir manni, að hann hlaut að hefja ferð sína á þessum slóðum í þjóðfélagsrýni sinni til þess að hafa fast land undir fótum . Matthías leggur upp í krossferð, – eins og Jónas fór í krossferð gegn rímunum . Hann skírskotar til þess, sem Fjölnismenn sögðu, að allir menn ættu að girnast fegurðina sjálfr - ar hennar vegna, en þó sé ekki verra, að hún sé „sameinuð nytsemdinni“ . Þess vegna sé ekki einungis leyfilegt, heldur beinlínis æski - legt að nota vatnsafl til að framleiða orku sem „þúsund hendur megnuðu ekki áður“ . „Og þeir tala um verksmiðjur með vel þóknun,“ segir Matthías . „Nytsemi gat þannig verið fögur, ekki síður en „Gunnarshólmi“ . Hún var „rödd tímans“ .“ Þessir þankar leiða huga Matthíasar að eðli útrásarinnar eða inntaki hennar, og í því ljósi skoðar hann afstöðu Fjölnismanna til verslunar og viðskipta, – „en þeir boðuðu hvorki innrás né útrás, heldur uppbygg ingu í landinu sjálfu og þá ekki sízt land nýt- ingu í þessum framtíðardraumum sín um“ . Hann minnist ræðu Bjarna Bene dikts- sonar á sjómannadaginn 1943, þar sem hann vitnar máli sínu til stuðnings í Tóm as Sæmundsson, – Fjölnismenn vildu ís lenska kaupmannastétt, þar sem þeir væru að sínu leyti hið sama í kaupstöðunum og bænd- ur í sveitunum „undirstaða landsins vel- megunar, því fé þeirra er kyrrt í landinu, eykst þar og eyðist, og af þeim rótum rennur sú kaupmannastétt, sem landinu er áríðandi og mátt arstofn þjóðarinnar“ . Þessi hugsun vaknar aftur og aftur og skýt- ur sér niður í pistlum Matthí- asar . Hann hefur trú á frjáls- hyggju sem bæti kjör allra og hafi hemil á óhófsömu misrétti . Hann segist hafa þekkt marga sem byrjuðu með tvær hendur tómar, voru frumkvöðlar sem bættu umhverfi sitt: „Og þeir dreifðu peningunum sínum meðal fólksins hér heima . En þeir fluttu ekki afraksturinn af vinnu fólksins til útlanda, þar sem þeir gátu lifað eins og plöntur í gróðurhúsi á kostnað þeirra sem gerðu þá ríka .“ Og hann lætur ekki við það sitja: „Aldrei hefðu gömlu karlarnir lánað ævintýra mönn- um milljarðahundruð til að slá um sig í innantómum tízkuheimi . Þeir hugsuðu um annað en áhættu sem gæti komið þjóð inni á kaldan klaka . Þeir höfðu torfbæjar menni- ngu í blóðinu eins og henni er lýst í mál- verk um Gunnlaugs Schevings .“ Og: „Með þetta í huga finnst mér vanta kreppu svipinn á peningaaðalinn: Hann ber þó, hvað sem öðru líður, ábyrgð á hruninu .“ Og: „Þá upplifði ég það sem Gyðingar sögðu í Rómaveldi hinu forna, að peningar lykta!“ Skáldið í Matthíasi gerir ádeiluna beitta og heldur henni vakandi, svo að lesturinn verð ur beinlínis spennandi! Og það sem meira er: Stundum ýtir skáldið krossfaran- um út af sviðinu og tekur orðið . Þeir kaflar eru að sumu leyti bestir og ávallt eftirtektar- verðir . Draumar og tákn, – það eru merkilegir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.