Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 88
86 Þjóðmál VETUR 2010
skipta auk þess máli til að átta sig á því,
hvernig menn skiptust í fylkingar innan
Framsóknarflokksins á þessum tíma og
hvaða leið þeir hafa valið sér síðan .
Af bókinni má ráða, að Elías Snæland býr
yfir miklum heimildum um þennan þátt í
stjórnmálasögunni . Bókin er lipurlega rituð,
enda er höfundur þaulvanur blaðamaður
auk þess sem hann hefur ritað fjölmargar
bækur og skrifað leikrit . Hún er skreytt
ljósmyndum og fyrirsögnum úr blöðum
á fréttum sem snerta efnið . Í viðauka eru
birt nöfn einstaklinga undir fyrirsögninni:
Forystusveitin og er Möðruvellinga þar
getið ásamt stuttu æviágripi . Heimildaskrá
og nafnaskrá fylgja bókinni auk tabulu
gratulatoriu . Umbrot bókarinnar og útlit
sýnir að gætt hefur verið sparnaðar .
Í bókinni birtir Elías Snæland langa
orðrétta texta sem gefur bók sem þessari
aukið vægi . Endursögn textanna hefði dreg-
ið úr gildi þeirra fyrir þá sem vilja nota bók-
ina til frekari athugana á stjórnmála sögunni .
Fyrir þá sem ætla að rita um stjórnmál þessa
tíma verður erfitt að ganga fram hjá þessari
bók, einkum ef athyglin beinist að vinstri
flokkunum eða sögu vinstri stjórna í ætt við
þá, sem nú situr í landinu . Hún er nákvæm
heimild um misheppnaða uppreisn innan
Framsóknarflokksins .
Elías Snædal er ekki óhlutdrægur í frá sögn
sinni, enda var hann sjálfur virkur þátttak-
andi í átökunum sem hann lýsir . Reynsla
hans af þeim var á þann veg að hann ákvað
að helga sig blaðamennsku og ritstörf-
um eftir upplausn Möðruvallahreyfingar-
innar . Honum liggur fremur kalt orð til
Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Þó
sérstaklega til þeirra sem hann telur hafa
matað Morgunblaðið á fréttum um átök
innan Framsóknarflokksins sjálfum sér til
framdráttar eða skoðunum sínum .
Bókin fjallar um menn og málefni sem
vöktu sérstakan áhuga hjá mér . Ég tók þátt
í stjórnmálastarfi á þessum tíma og skrifaði
um stjórnmál í blöð, einkum varnar- og
öryggismál . Frásögn Elíasar Snælands
staðfestir enn frekar þá skoðun, að ekkert
mat á öryggismálum lá að baki ákvörðun
ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar um að
endurskoða varnarsamninginn . Málefnið
var sett á dagskrá ríkisstjórnarinnar til að
tryggja aðild Alþýðubandalagsins að henni
og stuðning vinstri arms Framsóknar flokks-
ins .
Ólafur Ragnar og félagar litu á
varnarmálin sem ágætt vopn til að efla óvild
í garð sjálfstæðismanna og sameina vinstri
menn á bakvið eitthvað eitt stefnumál .
Andstaðan við varnarliðið og baráttan
gegn aðild Íslands að NATO byggðist á
upphrópunum, svikabrigslum og andúð á
Bandaríkjunum .
Mörgum þeirra sem koma við sögu í bók-
inni hef ég kynnst í áranna rás . Kunn ingjar
mínir meðal nafngreindra manna eru flestir
úr hægri armi Framsóknarflokks ins, það er
úr hópi þeirra, sem áttu aðild að samstarfi við
sjálfstæðismenn og alþýðuflokksmenn undir
merkjum Samtaka um vestræna samvinnu
og Varðbergs . Þetta voru helstu óvinir Elíasar
Snælands og félaga hans .
Hin síðari ár var Þorsteinn Geirsson,
ráðu neytisstjóri, náinn samstarfsmaður
minn í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og
þróaðist samstarf okkar í vináttu . Þor steinn
féll frá um aldur fram og er því ekki til
frásagnar um efni bókar Elíasar Snælands .
Hann kemur þar oftar en einu sinni við sögu
í óvinaliði höfundar . Fráleitt er að skapgerð
Þorsteins hafi verið á þann veg að hann hafi
verið handbendi einhverra þvert á eigin
ákvörðun og vilja . Hann var góðviljaður en
fastur fyrir ef á þurfti að halda . Raun góður
og lipur við úrlausn flókinna mála .
Möðruvellingar gerðu áhlaup á Fram-
sóknarflokkinn . Þeir sigldu inn í hug-
myndafræðilegt tómarúm en náðu ekki