Þjóðmál - 01.12.2010, Page 95

Þjóðmál - 01.12.2010, Page 95
 Þjóðmál VETUR 2010 93 skal tæpt á fáeinum atriðum, en af nógu er að taka . Fyrri ríkisstjórn réði tvo mikla erlenda sér fræðinga til verka fyrir sig . Annars vegar Finnann Karlo Jannari, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra finnska fjár málaeftir litsins, sem lagði á ráðin um skip ulag fjármálaeftirlitsins hér og hins vegar Mats Josefsson sem vinna skyldi að hugmyndum um endurskipu lagningu banka- kerfisins . Árni gagnrýnir þann síðarnefnda fyrir verklag sitt . Hann bendir á að tillögur hans hafi borist seint og illa og í raun átt sinn þátt í hversu seint gekk með uppbyggingu fjármálakerfis okkar eftir hrunið . Þetta er athyglisverð og að því er virðist réttmæt ábending, sem ekki hefur verið hreyft við með sama hætti fyrr . Annað, sem ástæða er til að nefna, er um- fjöllun um fjárlagagerðina fyrir árið 2009 . Þar verður að halda til haga að sú ákvörðun var tekin að fara varlega í aðhaldsaðgerðir . Við blasti að það ár yrði okkur erfiðast og kreppan að skella yfir með öllum sínum þunga . Nú, þegar við horfum til baka, sjá- um við að þetta var rétt ákvörðun . Krepp- an varð þrátt fyrir allt ekki eins djúp þetta ár og ætlað var . Ástæðan er örugglega ekki síst þessi stefna ríkisfjármálanna . Ákvörðun rík is stjórnarinnar á þeim tíma, sem tekin var í samstarfi við AGS, var því sýnilega hárrétt . Þetta er þeim mun gremjulegra að viðreisnin hefur gengið mun hægar og verr en við ætluðum um áramótin 2008/09 . Þar er ekki við fyrri stjórnvöld að sakast . Þar eru að verki núverandi stjórnvöld . Þau eiga það sleifarlag allt saman skuldlaust . Þá er ástæða til að halda til haga ábendingu Árna í bókinni um það hvernig hefði mátt taka öðruvísi á málum eða að hugsanlega hafi verið teknar rangar ákvarðanir . Annars vegar nefnir hann ákvörðunina um lækkun bindiskyldunnar árið 2003 . Það er hins vegar skylt að nefna að Seðlabankinn hefur rökstutt ákvörðun sína um þetta, svo sjónarmið Árna er fjarri því að vera óum- deilt . Og hinn atburðurinn, sem hann nefnir, er aðdrag andi mini krísunnar svokölluðu ár- ið 2006, þegar gengi íslensku krón unnar féll í ársbyrjun . En hvernig svo sem menn nú reyna að lesa í þá atburði, þá hittir höfundur naglann á höfuðið þegar hann segir að allir þeir sem voru á þeim tíma að freista þess að skilja stöðuna hafi haft á röngu að standa . Enginn hafi séð fyrir að yfirvof andi var alheimsfjármála kreppa og það sé hún sem mestu máli skipti þegar á heildina er litið . Nauðsynlegt er líka að rifja upp að þeim sjónarmiðum var líka haldið á loft að geng islækkunin á árinu 2006 hafi verið nauðsynleg leiðrétting . Gengi krónunnar hafði verið alltof hátt og var allan útflutn- ingsiðnað lifandi að drepa . Sá sem hér stýrir penna var til dæmis eindregið þessarar skoð- unar á þessum tíma og hefur ekki skipt um skoðun . Lækkun gengisins á þessum tíma var jákvæð fyrir þjóðarbúskap okkar . Því miður sótti aftur í sama ólánsfarið síðar á árinu 2006, en það er önnur saga . Höfundur bókarinnar setur fram tilgátur um ástæður þess að ríkisstjórn Geirs H . Haarde féll um mánaðamótin janúar/ febrúar árið 2009, sem síðar leiddi til kosninga . Þetta rekur hann til þriggja þátta sem hann nefnir: Búsáhaldabyltingin, nýr formaður Framsóknarflokksins og veik- indi Geirs H . Haarde . Síðan bendir hann jafnframt á þá stöðu sem uppi var í Sam- fylkingunni vegna veikinda formanns henn-

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.