Skólavarðan - 01.04.2010, Blaðsíða 3
Kæru lesendur
Skólavarðan kemur eftirleiðis út fjórum sinnum á ári. Þetta tölublað
er sent öllum félagsmönnum Kennarasambandsins til að kynna breyt-
ingarnar en frá og með næsta hausti verða eitt til fimm eintök af Skóla-
vörðunni send í hvern skóla eftir fjölda kennara. Einnig verður tíma-
ritið sent heim til þeirra félagsmanna sem þess óska. Í haust verða
settar upp sk. „Mínar síður“ á www.ki.is þar sem félagsmenn geta
meðal annars stjórnað áskrift sinni að Skólavörðunni. Við sendum bréf
til ykkar allra með upplýsingum um Mínar síður og innihald þeirra
þegar nær dregur og einnig upplýsingar um hvernig þið getið beðið um
Skólavörðuna í heimsendingu. Sá möguleiki verður líka í boði að biðja
um tilkynningu í tölvupósti þegar Skólavarðan er komin á vefinn.
Þá er það samkeppnin okkar. Þið getið enn sent inn myndverk á for-
síðu Skólavörðunnar og/eða slagorð til birtingar í henni og Eplinu og
unnið til verðlauna. Eplið er nýtt rafrænt fréttabréf sem sent er félags-
mönnum að meðaltali tólf sinnum á ári. Allar upplýsingar um sam-
keppnina eru á www.ki.is undir Eplið, 2. tbl. Fyrstu verðlaun í forsíðu-
samkeppninni eru fimmtíu þúsund krónur og þrjátíu þúsund krónur í
slagorðasamkeppninni.
Í Skólavörðunni að þessu sinni er okkur ofarlega í huga skólastarf
og ný menntalög í samhengi við kreppuna. Hvað er að frétta af fram-
fylgd laga um skólastig sem sett voru árið 2008? Hvað segja kennarar
og skólastjórnendur um skólastarf í skugga kreppu? Við fjöllum
einnig um siðferði, lýðræðislegt umræðumat og tökum viðtöl við
þrjá formenn í KÍ en tveir þeirra eru glænýir í starfi. Í apríl sl. var
stofnað Félag stjórnenda leikskóla og er það áttunda aðildarfélag
Kennarasambandsins. Upplýsingar um öll félögin eru á www.ki.is
Þá er ný ráðgjafarþjónusta kynnt í blaðinu og á síðunum Slaka á er
skemmtileg krossgáta með alfræðispurningum, pjattrófuráð og fleira
notalegt.
Þann 19. maí sl. gaf KÍ út fjögurra blaðsíðna sérblað með Frétta-
blaðinu, Kjóstu með menntun. Skemmst er frá að segja að blaðið
vakti mikil viðbrögð hjá frambjóðendum, félagsmönnum, öðrum
stéttarfélögum og víðar. Auk þess var skilaboðum og yfirskrift blaðsins
komið vel á framfæri í viðtali Spegilsins við Ólaf Loftsson þann 12. maí
sl., hægt er að hlusta á það á vef RÚV undir Valdar upptökur útvarp.
Kjóstu með menntun er á www.ki.is og þar setjum við líka fleira efni
tengt kennurum og skólamálum í umhverfi efnahagsþrenginga. Ég hvet
félagsmenn til að senda okkur efni og ábendingar, ekki síst um áhrif
sem ákvarðanir menntayfirvalda hafa á íslenskt skólastarf.
Gleðilegt sumar!
Kristín Elfa Guðnadóttir
3
Skólavarðan 4.tbl. 2010efnisyfirlit
Leiðari
Ný og breytt Skólavarða, samkeppni o.fl.
Sagan
Erindi um kjarabætur kennara árið 1941. Þá skipti
máli að lifa sjálfstæðu menningarlífi. En núna?
Stutt
Flestir með útrunninn kjarasamning, Eiríkur Jónsson
á ársfundi KÍ. Ritgerðasamkeppni o.fl. efni.
Málefni
Hei, það er kreppa! Við erum ekkert að spá í
þetta núna. Um skólastarf árið 2010.
Fólkið
Heilsteypt hugmyndafræði óskast – rætt við
fjóra kennara og skólastjórnendur.
Erindi
Það sem mölur og ryð fræ ekki grandað,
Elna Katrín Jónsdóttir á ársfundi KÍ.
Málefni
Ný lög – hvað nú? Viðtöl um framfylgd nýrra laga um skólastig.
Samræða
Ný lög og leikskólinn, þrjátíu reykvískir
leikskólakennarar ræða málin.
Samræða
Dagbjört Ásgeirsdóttir og Guðmundur Heiðar
Frímannsson um siðferði og siðareglur kennara.
Spjörunum úr
Saman hjá sátta, Sigrún Grendal spurð frétta um tónlistarskóla.
Fólkið
Minningarorð um Sigurlínu Sjöfn Kristjánsdóttur
og Jón Hnefil Aðalsteinsson.
Skólastarf
Leitin að grenndargralinu. Þróunarverkefni
í samfélagsfræði í Giljaskóla.
Stutt
Ný ráðgjafarþjónusta í Skólavörðunni, raddheilsa o.fl. efni.
Fólkið
Hvers vegna ertu hér? Tveir nýir formenn í
Kennarasambandinu kynna sig fyrir félagsmönnum.
Námsgögn
Alltaf eitthvað nýtt! Námsgagnastofnun kynnir nýtt efni.
Slaka á
Pique-nique í sumar, pjattrófuráð til kennara,
krossgáta, myndasaga og spínatsalat.
Fræðin
Allir hópar eigi fulltrúa þegar skóalstarf er metið,
viðtal við Önnu Magneu Hreinsdóttur.
Smiðshöggið
Vandinn er ekki sá að nemendur geti ekki
lært heldur að þeir vilja það ekki.
3
4
6
7
11
16
18
22
24
26
30
32
34
36
40
41
44
46
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Eiríkur Jónsson eirikur@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir
sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor.
Ljósmyndir: Jón Svavarsson (js), nema annars sé getið.
Forsíðumynd: Bakað í Snælandsskóla.
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir
stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Ísafold.
Skólavarðan, s. 595 1104 (Kristín) Laufásvegi 81, 101 Reykjavík.
Kristín Elfa Guðnadóttir
leiÐAri