Skólavarðan - 01.04.2010, Qupperneq 10

Skólavarðan - 01.04.2010, Qupperneq 10
10 Skólavarðan 3.tbl. 2010 Reykjavíkurborg hefur eins og önnur sveitarfélög landsins sett fram metnaðarfulla stefnu í fræðslumálum. Í henni segir meðal annars að grunnskólinn skuli vera án aðgreiningar, nám við hæfi hvers og eins, skólastarfið eigi að vera skapandi og skólinn skuli stuðla að jákvæðri sjálfsmynd nemenda. Í málflutningi stjórnmála- og embættismanna hefur komið fram að ekki standi til að gefa afslátt af kröfum til skóla- starfs og áfram verði unnið í anda þeirrar skólastefnu sem boðuð hefur verið. Það er fagnaðarefni að yfirvöld hafi metnað til að standa vörð um menntun barna en spurningar hljóta að vakna um hvernig mæta megi þörfum nemenda með æ minna fjármagni frá ári til árs. Sparnaðarátak hófst í grunnskólum borgarinnar á fyrstu dögum kreppunnar í október 2008. Allir rekstrarþættir voru brotnir til mergjar, innkaup endurskoðuð og yfirvinna skorin niður eins og hægt var. Hagræðing haustið 2008 breyttist í hreinan niðurskurð árið 2009 og enn meiri 2010. Áhersla var lögð á að halda úti kennslu í samræmi við lög og reglugerðir en skera niður af öðrum þáttum, svo sem stjórnun, gæslu í frímínútum, félagsstarfi, ferðalögum nemenda, almennum rekstri og orkunotkun. Þörf fyrir gæslu í frímínútum og matartímum er meiri en nokkru sinni og öflugt félagslíf í skólum gegnir mikilvægu hlutverki í því ástandi sem ríkir í samfélaginu og endurspeglast í líðan nemenda. Niðurskurðurinn er kominn að þolmörkum. Með frekari niðurskurði verður að draga úr þjónustu við nemendur eða hreinlega hætta að sinna ákveðnum þáttum sem skólinn hefur nú á sinni könnu. Sveitarstjórnarmenn standa frammi fyrir vandasömum verkefnum. Grunnskólinn er stærsti einstaki málaflokkur sveitarfélaganna. Ábyrgðin er því mikil þegar teknar eru ákvarðanir sem hafa áhrif á framtíð heillar kynslóðar. Með frekari niðurskurði er hætt við að gengið verði svo nærri grunnskólum í landinu að þeir láti á sjá og nemendur fái ekki þá menntun sem þeim ber. Mál er að linni. Stjórn- málamenn verða að forgangsraða í þágu menntunar – forgangsraða í þágu barnanna í landinu. Niðurskurðurinn er kominn að þolmörkum. Með frekari niðurskurði verður að draga úr þjónustu við nemendur eða hreinlega hætta að sinna ákveðnum þáttum sem skólinn hefur nú á sinni könnu. Texti: Hreiðar Sigtryggsson. Hreiðar er skólastjóri Langholtsskóla í Reykjavík og formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur. Menntun í fyrsta sæti – forgangsröðun í þágu barna Afturábak eða áfram? VORIÐ 2008 ÁKVÁÐUM VIÐ AÐ: • Hugsa skólastarf, og löggjöf um það, miklu meira út frá nemandanum og þörfum hans en áður hafði verið gert. • Auka fjölbreytni og fjölga valkostum í námi. • Hvetja alla nemendur af alefli og með öllum tiltækum ráðum til að stunda skólanám til að minnsta kosti átján ára aldurs. • Fækka stórlega í hópi þeirra sem flosna úr námi fljótlega eftir að grunnskóla lýkur. EN SVO KOM KREPPAN ...og nú erum við enn verr stödd en fyrir nýju lögin um leik-, grunn- og framhaldsskóla frá vori 2008. Þetta er að gerast: • Verri þjónusta við nemendur. • Fábreyttara námsframboð. • Jafnmikið brottfall. • Stærri námshópar. • Minni tími fyrir hvern nemanda. Elna K. Jónsdóttir SPURÐU STJÓRNMÁLAMENNINA • Hvað finnst þér skipta mestu máli í skólamálum? • Ætlar þú að skera niður í skólamálum? Ef svo, nákvæmlega hvað ætlarðu þá að skera niður? • Veist þú hvaða breytingum fjárframlög til skólahalds í sveitarfélaginu þínu hafa tekið eftir 2008? • Veist þú hvaða þættir hafa verið skornir niður og áhrif þess á starf í skólunum? • Mörg börn fá ekki aðstoð við heimanám heima hjá sér. Ætlar þú að sjá til þess að þau fái það í skólanum? • Í sumum löndum er leikskólinn gjaldfrjáls að öðru leyti en því að foreldrar borga fyrir máltíðir. Hvað finnst þér um þetta? • Geta allir foreldrar í þínu sveitarfélagi keypt mat fyrir börnin sín í skólamötuneyti? • Eru ungmenni í þínu sveitarfélagi sem ekki komast í framhaldsskóla vegna fjárhagserfiðleika foreldra þeirra? • Ætlar þú að taka þátt í hækkun gjalda í skólum og á frístundaheimilum á næsta kjörtímabili? • Hefur þú hugleitt hvað jafnrétti til náms þýðir? • Ert þú vakandi yfir hvers kyns félagslegri mismunun barna og ungmenna? Skiptir það þig máli að koma í veg fyrir hana? • Hefur þú kynnt þér skólastarf í sveitarfélaginu sem þú vinnur fyrir? Með hvað hætti? • Þekkir þú löggjöf um skólastarf, hefurðu til dæmis kynnt þér vel menntalögin frá 2008? • Hver eða hverjir eru mikilvægustu málaflokkarnir í hverju sveitarfélagi að þínu mati? Af hverju? • Hefur þú hugleitt hlutverk tónlistarskóla innan menntakerfisins? • Hver er þín skoðun á mikilvægi listkennslu og skapandi starfs fyrir menntakerfi samtímans? • Hver er þín skoðun á einstaklingsmiðuðu námi? • Hvað vilt þú gera til að efla samstarf skóla og heimila? • Fá öll ungmenni í þínu sveitarfélagi nám við hæfi? málefni

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.