Skólavarðan - 01.04.2010, Page 16
16
Skólavarðan 3.tbl. 2010erinDi
„Erfi tt er að átta sig á því í umróti fjárhagslegra sviptinga og umræðu
sem oft er misvísandi“ sagði Elna Katrín. „Mikilvæg forsenda KÍ fyrir
þátttöku í stöðugleikasáttmála var vilji yfi rvalda til þess að hlífa fremur
velferðarmálum og þar með töldum skólamálum en öðrum en mjög er
óljóst um efndir. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Um grunnskóla og fram-
haldsskóla í er skýr lagarammi sem tryggir upp að vissu marki rétt
nemenda á meðan ekki er seilst inn í lögin eða reynt að fara í kringum
efni þeirra. Þessu er ekki alveg eins farið um leikskóla og tónlistar-
skóla og auk þess er umtalsverð gjaldtaka á báðum síðasttöldu skóla-
stigunum sem gerir þau berskjaldaðri af þeirri ástæðu í efnahagslegum
þrengingum.
Það er engum vafa undirorpið þó tölfræði um málið sé lítt eða ekki
handbær að verulegs niðurskurðar og samdráttar gætir í skólastarfi í
landinu nú þegar og gildir það um allt sviðið þó í mismunandi mæli
sé. Þannig má segja að kennarar, skólastjórnendur og fræðsluyfi rvöld
séu að hrekjast til baka með margar umbætur sem gerðar hafa verið
undanfarin ár. Að þessu leyti er dökkt framundan.“
Elna Katrín fjallaði að þessu loknu um skólastigalögin, starfsum-
hverfi í skólum, hlutverk kennara og stjórnenda, kennaramenntun og
símenntun, erlent og innlent samstarf og um áherslur í skólamálastarfi
KÍ næsta vetur. „Starfsumhverfi ð í skólum er að sumu leyti betra en
að öðru leyti verra en fyrir kreppu en margt er það sem mölur og
ryð fær ekki grandað,“ sagði Elna Katrín. „Hlutverk kennara er hið
sama og ávallt. Að vera leiðtogar og fyrirmyndir, að fræða, kveikja
og viðhalda áhuga, sinna nemendum sínum og sýna þeim umhyggju.
Um leið er það að gæta að eigin líkama og sál, viðhalda menntun og
varðveita neistann. Hér er meira lagt á kennarastéttina en marga aðra
hópa þar sem kennarar eins og annað fólk í landinu hafa orðið fyrir
margvíslegum búsifjum í kreppunni en þurfa þó dag hvern að mæta
nemendum sínum eins og ekkert hafi í skorist og vera þeim uppörvun,
skjól og vörn. Starf skólastjórnenda er erfi tt við þessi skilyrði og tölu-
verð hætta á einangrun og sjálfsniðurrifi . Það er erfi tt að vera stöðugt
boðberi slæmra tíðinda og mikilvægt fyrir stjórnendur að leita styrks í
samstarfi og samstöðu með sínu starfsfólki og starfsfélögum sem gegna
sambærilegum störfum í öðrum skólum og á öðrum skólastigum.“
Erindið er í heild á www.ki.is
Það sem mölur og ryð
fær ekki grandað
Í inngangserindi sínu um skólamál á ársfundi KÍ þann 16. apríl sl. spurði
Elna Katrín Jónsdóttir meðal annars þessarar spurningar: Er skólastarfi og
menntun forgangsraðað miðað við önnur mál á vegum sveitarfélaga og ríkis?
Elna og Haukur Már Haraldsson ræða
málin á ársfundinum. Mynd: js
M
yn
d:
V
ill
i i
ng
i