Skólavarðan - 01.04.2010, Qupperneq 19
19
Skólavarðan 3.tbl. 2010málefni
Skólar á öllum skólastigum hafa þurft að sinna kalli tímans um
niðurskurð, rétt eins og aðrar opinberar stofnanir. Margir hafa lýst yfir
áhyggjum sínum af því hvernig það muni koma niður á skólastarfi í
landinu, meðal annarra Kennarasamband Íslands. Í erindi Elnu Katrínar
Jónsdóttur varaformanns KÍ á ársfundi sambandsins þann 16. apríl
síðastliðinn kom fram að verulegs niðurskurðar og samdráttar gæti
í skólastarfi í landinu. Það leiði til þess að umbætur, sem gerðar hafi
verið á undanförnum árum, gangi til baka. Meðal þess sem Elna Katrín
nefndi í þessu sambandi er fjöldi nemenda í námshópum, sveigjanleiki
í skólastarfi, ýmis stoðþjónusta og ráðgjöf.
Fjárframlög hafa ekki fengist
Framhaldsskólar landsins hafa ekki farið varhluta af þessum breyt-
ingum. Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskóla-
kennara, segir að lögin hafi verið afrakstur samstarfs kennarasam-
takanna og yfirvalda. Miklar væntingar hafi verið um framkvæmd
þeirra. „Líklega eru stærstu breytingarnar annars vegar aukin ábyrgð
stjórnvalda á námsvist og skólagöngu nemenda til átján ára aldurs og
hins vegar að skólar fá aukið umboð til að móta nám og námskipulag
til að gera framhaldsskólann verði fyrir alla og fleiri ljúki lokaprófi,“
segir Aðalheiður. Hún segir að nýju lögin gangi því miklu meira út
frá nemandanum en þau eldri. „Lögin áttu að koma til fullrar fram-
kvæmdar haustið 2011 en nú hefur menntamálaráðherra lagt fram
frumvarp um að fresta fullri gildistöku til haustsins 2015,“ segir hún.
Meðal þess sem snertir framhaldsskóla sérstaklega og nýju lögin
kváðu á um var vinnustaðanámssjóður. Hann var hugsaður til að styðja
við meiri ábyrgð skólanna á vinnustaðanámi nemenda í starfsnámi
en hefur verið frystur um óákveðinn tíma að sögn Aðalheiðar. Það
sama má segja um það ákvæði laganna að koma til móts við kostnað
nemenda vegna námsgagnakaupa.
Elías Jón Guðjónsson, aðstoðarmaður mennta- og menningarmála-
ráðherra, segir að frá því að ný lög um framhaldsskóla voru sett
vorið 2008 hafi verið unnið að innleiðingu þeirra og skólum veittur
fjárstyrkur til þess. „Vegna efnahagsástandsins hefur fullri gildistöku
nýrrar námskrár og lengingu skólaársins verið frestað til ársins 2015.
Þó er áfram gert ráð fyrir að unnið verði að þróunarstarfi við náms-
brautir samkvæmt nýjum lögum. Því er ekki að leyna að fjárframlög
sem gert var ráð fyrir að fylgdu nýjum lögum hafa ekki fengist og því
hefur hægt á framkvæmd þeirra,“ sagði Elías Jón.
Peningarnir eru ekki til
En er það fjármagn til sem þarf til þess að framfylgja lögunum? „Þeir
peningar, sem framkvæmd laganna útheimtir, eru ekki til,“ segir Aðal-
heiður. „Þess vegna höfum við lagt áherslu á það við ráðherra að fresta
fullri gildistöku laganna og líka í ljósi þess að efni kjarasamninga fram-
haldsskólans snertir beint framkvæmd laganna,“ segir Aðalheiður og
nefnir í því sambandi lengingu skólaársins. Hún segir að lögin þurfi
sterkt stuðningsnet eins og til dæmis aukna náms- og starfsráðgjöf.
„Við höfum orðið vör við niðurskurð í stoðkerfi skóla en á sama tíma
er aukin ásókn í ýmsa stoðþjónustu. Einnig er skorið niður í náms-
framboði, ýmissi annarri þjónustu við nemendur og faglegu starfi af
ýmsum toga. Við erum þeirrar skoðunar að skólar séu verr staddir en
fyrir setningu laganna.“
Í fyrrnefndu erindi Elnu Katrínar varaformanns KÍ kom fram að
niðurskurður í skólakerfinu hafi leitt til þess að nemendum sé nú
nánast gert ókleift að stunda nám á mörkum skólastiga. Dæmi um
slíkt nám er þegar nemandi í efstu bekkjum grunnskóla stundar nám
í framhaldsskóla. Nokkuð hefur verið ritað og rætt um þetta og þykir
mörgum að brotið sé á rétti nemenda til náms, enda er kveðið á um
þennan möguleika í lögunum. Aðalheiður segir að vissulega sé leitt til
þessa að vita en leggur áherslu á að á meðan kreppa sé og sparnaðar
krafist verði framhaldsskólinn að forgangsraða og einbeita sér að
Vinnustaðanámssjóður
hefur verið frystur um
óákveðinn tíma.
Við erum í hálfgerðu tóma-
rúmi. Lögin eru vissulega í
gildi en skólarnir hafa ekki
bolmagn til þess að fram-
fylgja þeim.
Anna María