Skólavarðan - 01.04.2010, Síða 24
24
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Texti: Dagbjört Ásgeirsdóttir, M.Ed.
Dagbjört er leikskólastjóri Krílakots í Dalvíkurbyggð
Mynd: Fanney Davíðsdóttir
Í þessum pistli eru vangaveltur mínar um 3. grein siðareglna KÍ sem
er svohljóðandi: „Kennurum ber að hafa jafnrétti allra nemenda að
leiðarljósi í skólastarfi. Kennarar eiga að vinna gegn fordómum og
mega ekki mismuna nemendum t.d. vegna kyns, þjóðernis eða trúar-
bragða.“
Ég velti fyrir mér merkingu hugtaksins mismunun? Þarf mismunun í
sjálfu sér að vera röng? Og að sama skapi, hvað er jafnrétti? Merkir
það að allir fái allt alveg eins? Ég læt jafnréttisspurninguna bíða betri
tíma. Mismunun þarf í sjálfu sér ekki að vera röng. Bæði er hægt að
beita jákvæðri og neikvæðri mismunun. Og kennarar beita mismunun
á hverjum degi. En það skiptir máli hverjum eða hvernig er mismunað.
Þegar kennari mismunar metur hann ákveðnar þarfir nemenda eða
skilur á milli jákvæðrar og neikvæðrar hegðunar og bregst við á til-
tekinn hátt. Þau viðbrögð sem hann sýnir einum nemanda eiga ef til
vill alls ekki við um aðra. Kennarinn metur hegðun eða frammistöðu
nemenda út frá forsendum hvers og eins og þeim væntingum sem hann
hefur til þeirra. Þegar einstaklingum er mismunað án tillits til hegðunar
eða verðleika, það er að segja út frá staðalmyndum, tel ég að um for-
dóma sé að ræða.
Í flestum tilfellum tengjum við fordóma við hugmyndir um etníska
hópa. En er það svo einfalt? Hvað með félagslega fordóma? Kannast
ekki margir við að hafa heyrt eitthvað á þessa leið: Það er nú ekki að
búast við að hann Gunni geti lært. Óli bróðir hans var aldrei til friðs
og ekki gat nú mamma þeirra lært.
Í daglegu starfi er nauðsynlegt fyrir kennara að staldra við, horfa
inn á við og spyrja hvort þeir geti í raun komið auga á fordóma, sína
eigin fordóma? Hvenær verða eðlileg viðbrögð að fordómum? Einnig
er mikilvægt og hollt fyrir kennara að velta fyrir sér hvað fordómar eru
og sér í lagi hvað duldir fordómar standa fyrir, en þá má sjá í ýmsum
myndum í þjóðfélaginu. Duldir fordómar eru til dæmis að byggja við-
horf sín og skoðanir á tilteknum hópum á staðalmyndum. Þeir lýsa
sér í pirringi, óvingjarnlegri framkomu, tortryggni, uppnefnum, háði,
hroka, afskiptaleysi og verri þjónustu (Guðrún Pétursdóttir, 2003)1.
Fordómar geta auðveldlega leynst undir yfirborðinu og fólk átt erfitt
með að gera sér grein fyrir þeim. Þegar vel er að gáð held ég að
langflestir hafi einhvern tíma tekið þátt í fordómafullri hegðun. Alloft
hefur heyrst setning eins og: Ég fékk mér „Tæju“ til að þrífa hjá mér.
Dæmi sem margir kennarar kannast við um pirring og jafnvel hræðslu
er að þegar innflytjendum fjölgaði til muna á Íslandi fyrir nokkrum
árum töldu sumir foreldrar af íslenskum uppruna að börn þeirra fengju
verri þjónustu í grunnskóla vegna þess hve mikill tími færi í að sinna
útlenskum börnum.
Mikilvægt er að kennarar á öllum skólastigum séu meðvitaðir um
þau hugtök sem þeir kjósa að nota. Hvaða hugtök notum við til dæmis
um nemendur af erlendu bergi í skólakerfinu? Notum við útlendingar,
nýbúar eða vísum við til uppruna eða þjóðernis þeirra sem pólsku,
albönsku eða litháísku nemendurnir svo að eitthvað sé nefnt? Um
nemendur sem eru fæddir á Íslandi eða orðnir íslenskir ríkisborgarar?
Í hugtökum er oft dulin meining sem orðið hefur til í meðförum og
notkun tungumálsins; eins og í hugtakinu nýbúi. Margir nota það án
nokkurrar neikvæðrar merkingar en oftar en ekki er það samt notað
um innflytjendur frá Asíu og Afríku eða einstaklinga sem eru ólíkir
Íslendingum í útliti (Guðrún Pétursdóttir, 2003).
Forsenda þess að kennarar geti unnið gegn fordómum, líkt og
fram kemur í 3. grein siðareglna KÍ, er sú að þeir geri sér grein fyrir
hvað fordómar eru – og ekki síst eigin fordómum. Þeir þurfa að vera
gagnrýnir á sjálfa sig og spyrja sig hvort þeir hafi fundið fyrir pirringi
gagnvart tilteknum einstaklingum eða hópum, sýnt óvingjarnlega
framkomu, hroka eða jafnvel afskiptaleysi, verið tortryggnir, uppnefnt
eða hæðst að einhverjum. Sterkasta vopnið gegn fordómum er að mínu
mati þekking. Þó að þekking sé ekki ávísun á fordómaleysi veitir hún
aukna innsýn og skilning á því sem annars væri óþekkt, því hið óþekkta
vekur gjarna hjá okkur óöryggi og jafnvel ótta.
sAmræÐA
Í daglegu starfi er nauðsynlegt fyrir
kennara að staldra við, horfa inn á við
og spyrja hvort þeir komi auga á sína
eigin fordóma.
1 Guðrún Pétursdóttir. 2003. Allir geta eitthvað, enginn getur allt. Hólar.
Hinir lúmsku
fordómar