Skólavarðan - 01.04.2010, Page 25
25
Skólavarðan 3.tbl. 2010
reglum sem stýra hegðun okkar allra og viðhorfum til takmarkaðra
gæða mannlífsins. Siðferðið er félagslegt en það snertir líka einkalíf
hverrar manneskju.
En af hverju er skóli siðferðileg stofnun? Mér virðist liggja til
þess tvær ástæður. Sú fyrri er að skólar eru sérstaklega skuldbundnir
nemendum, hagsmunir nemenda eiga að ganga fyrir hagsmunum ann-
arra. Það þýðir ekki að allir eigi að dansa eftir hugmyndum nemenda,
það væri ekki eðlileg skólastarfsemi, heldur eiga kennarar að vega og
meta hagsmuni nemenda í öllum ákvörðunum sínum. Sú síðari er að
skólar eiga að mennta nemendur. Í menntun felst að nemendur eiga
að batna. Þeir verða betri í þeim skilningi að þeir hafa tileinkað sér
þekkingu og færni og þeir eru líka betri í þeim skilningi að þeir eru
þroskaðri, hafa betri skilning á af hverju maður á að standa við orð
sín, af hverju maður ber ábyrgð á sjálfum sér og eigin verkum. Þetta
er siðferðisþroski sem er nauðsynlegur þáttur í menntun. Sé siðferðis-
þroskinn ekki fyrir hendi hefur menntunin ekki tekist.
Þetta virðist mér vera nægar ástæður til að halda því fram að skólar
séu siðferðilegar stofnanir í innsta kjarna sínum.
Hvað ætli sé mikilvægast um skóla? Mér virðist það vera að hann er
siðferðileg stofnun. En það eru ekki augljós sannindi sem allar hugs-
andi manneskjur sjá í hendi sér. Hvað merkir það að skóli sé siðferði-
leg stofnun? Af hverju er það markverð staðreynd, ef það er staðreynd,
að skóli sé siðferðileg stofnun?
Til að svara fyrri spurningunni er rétt að huga að tveimur lykilhug-
tökum í staðhæfingunni. Það fyrra er skóli. Hugtakið merkir ekki ein-
hver tiltekinn skóli heldur skóli af hvaða tagi sem er: leikskóli, grunn-
skóli, framhaldsskóli, háskóli. Í öllum stofnunum sem við köllum
skóla starfar fólk sem sinnir ólíkum hlutverkum: sumir eru kennarar,
aðrir nemendur, enn aðrir skólastjórar og svo framvegis. Helstu hlut-
verkin í skóla eru hlutverk kennara og nemenda. Í skilningi okkar á
hlutverkunum birtast kröfur sem eðlilegt er að uppfylla. Það síðara
er siðferðið. Siðferði er samfélagsstofnun eins og skóli en það er
ekki sýnilegt eins og skólar, það eru engar byggingar sem hægt er að
benda á og segja, þetta er siðferðið. Þess vegna sést okkur oft yfir það
en öllum er hollt að hugsa um það og breyta eftir því. Það má lýsa
siðferðinu þannig að það sé samsett úr formlegum og óformlegum
sAmræÐA
Texti: Guðmundur Heiðar Frímannsson, PhD.
Guðmundur er prófessor í heimspeki við kennaradeild HA
Mynd: Finnbogi Marinósson
Í menntun felst að
nemendur eiga að batna.
Skóli er
siðferðileg
stofnun