Skólavarðan - 01.04.2010, Page 26
26
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Hvað er í deiglunni hjá ykkur í Félagi tónlistarskólakennara
á vordögum?
„Þar ber fyrst að nefna að öll aðildarfélög Kennarasambandsins sem
semja við sveitarfélögin eru nú í fyrsta sinn að funda sameiginlega
hjá sáttasemjara. Við vísum í stöðugleikasáttmálann og förum fram
á að honum sé fylgt eftir. Við viljum að samið sé við okkur á sama
grunni og ríkið samdi við Félag framhaldsskólakennara og Félag
stjórnenda í framhaldsskólum en þar var stöðugleikasáttmálanum
fylgt að miklu leyti. Þessir „við“ erum félagsmenn í eftirtöldum
félögum: Félagi tónlistarskólakennara, Félagi leikskólakennara,
Félagi grunnskólakennara, Skólastjórafélagi Íslands og nýstofnuðu
Félagi stjórnenda leikskóla. Við erum búin að funda einu sinni með
viðsemjendum hjá sáttasemjara og þar fórum við yfir stöðuna, ég er
bjartsýn á að við náum fram jafnstöðu hópa. Það er að segja, að við
semjum líkt og kennarar og stjórnendur í framhaldsskólum.“
Eru sveitarfélögin erfiður viðsemjandi?
„Það má segja að þau hafi ekki einbeitt sér að skóla- og menntamálum
á sama hátt og ríkið en með tilkomu skólamálanefndar Sambands
íslenskra sveitarfélaga fyrir nokkrum árum fengu fagmál sinn vettvang
hjá sambandinu. Fagleg mál og umsjá þeirra styrkja fagvitund. Djúp-
stæð fagvitund er að mínu mati ein meginforsenda þess að menn geti
axlað ábyrgð á málaflokknum þannig að menntunin sjálf sé í hásæti
og þetta á jafnt við um alla hagsmunaðila. Þrátt fyrir að á móti blási,
tímabundið, þá trúi ég því að þetta stefni allt í rétta átt. Tilkoma skóla-
málanefndar sambandsins og aukið samstarf aðila er skref í þá átt.“
Þið voruð að halda uppskeruhátíð, hvernig tókst til?
„Við erum um þessar mundir að ljúka úrvinnslu eftir uppskeruhátíð
tónlistarskóla, Nótuna, sem var haldin í fyrsta sinn í marsmánuði á
þessu ári og tókst gríðarlega vel. Nótan inniheldur reyndar margar
svæðahátíðir og svo hátíð á landsvísu í lokin. Við erum strax byrjuð að
undirbúa Nótuna 2011 og hún verður meðal annars til umfjöllunar á
svæðisþingum tónlistarskóla í haust. Þessu verkefni er meðvitað hrint
af stað nú þegar á móti blæs en þau jákvæðu áhrif sem uppskeruhátíðin
getur haft eru margvísleg, til dæmis í þá veru að efla félags- og fag-
vitund, skólar geta nýtt sér hátíðina sem nýjan hvetjandi vinkil í skóla-
starfinu og hún vekur líka athygli á starfsemi tónlistarskóla út um allt
land. Uppskeruhátíðin er unnin í samstarfi við Félag íslenskra hljóm-
listarmanna og Samtök tónlistarskólastjóra.“
Tókuð þið ekki púlsinn á tónlistarskólum
í einhverri könnun í fyrra?
„Jú, og á svæðisþingum munum við einmitt halda áfram að fjalla um
könnun Félags tónlistarskólakennara sem ber titilinn: „Greining á kerfi
tónlistarskóla á Íslandi.“ Við Árni Sigurbjarnarson varaformaður FT
höfum unnið að þessu verkefni og frumniðurstöður voru kynntar á
síðustu svæðisþingum og á alþjóðlegri ráðstefnu á vegum menntamála-
ráðuneytis. Nú er hins vegar komið að lokum úrvinnslu og stutt í að
lokaskýrsla rati á Netið og í almenna umræðu. Innihald skýrslunnar
er gríðarlega umfangsmikið og á svæðisþingunum í haust munum við
taka fyrir einn afmarkaðan þátt og fjalla um mismunandi skólalíkön
út frá þjónustu-, kostnaðar- og virknistuðlum, skiptingu í námsáfanga,
kennslugreinum, aldri nemenda og fleiri þáttum.“
– formenn spurðir tíðinda
Saman hjá sátta
spjörunum úr
Texti: keg
Myndir: js
Formaður: Sigrún Grendal, Félagi tónlistarskólakennara