Skólavarðan - 01.04.2010, Page 32

Skólavarðan - 01.04.2010, Page 32
32 Skólavarðan 3.tbl. 2010 Leitin að grenndargralinu Lokamarkmið verkefnisins er að finna bikar, hið svokallaða grenndargral, sem búið er að koma fyrir á vissum stað á Akureyri. Leitin tekur tíu vikur og fer hún þannig fram að nemendur, ýmist einn eða tveir saman, fá eina þraut (verkefni) til lausnar í viku hverri. Þrautin tengist sögu Akureyrar og/ eða Eyjafjarðar og fá nemendur einn bók- staf við úrlausn hverrar þrautar. Markmiðið er að safna að lágmarki tíu bókstöfum sem þátttakendur nota til að mynda ákveðið orð. Það er nokkurs konar lykilorð og er þekkt úr sögu Eyjafjarðar. Þegar krakkarnir ná að raða saman bókstöfunum og mynda lykilorðið öðlast þeir rétt til að gera lokaatlögu að fundi grenndargralsins. Þeir fá til þess eina lokavís- bendingu sem vísar þeim á gralið. Sá eða þeir sem finna gralið standa uppi sem sigurvegarar og fá það afhent til varðveislu í eitt ár við hátíðlega athöfn á sal síns skóla. Þá fá þeir verðlaunapeninga til eignar. Allir sem klára þrautirnar tíu fá viðurkenningarskjal fyrir góða frammistöðu eftir langa og stranga leit. Að sögn Brynjars Karls Óttarssonar, kenn- ara við Giljaskóla og upphafsmanns verk- efnisins, var kveikjan að verkefninu tvíþætt. Annars vegar þörf á aukinni grenndarvitund nemenda, þ.e. þekkingu á menningu og sögu þeirra eigin heimabyggðar. Hins vegar skortur á tengingu samfélagsfræðinnar, ekki síst sögu- hluta hennar, við daglegt líf nemenda. Í þessu felst viðleitni til að færa nám þeirra í auknum mæli út fyrir kennslustofuna inn á vettvang þeirra sögulegu atburða sem nemendur eru að kynna sér hverju sinni. Þar með minnkar vægi kennslubókarinnar en aðrir upplýsingamiðlar, svo sem tímarit, dagblöð og ljósvakamiðlar, fá aukið vægi. Fyrir vikið vaknar vonandi áhugi á samfélagsfræði þar sem nemendur upplifa námið merkingarbært, eitthvað sem komi þeim að gagni, en umfram allt ætti að vakna hjá þeim áhugi og virðing fyrir því hvar rætur þeirra liggja. Samhliða því námi sem á sér stað við úrlausn þrautanna fer fram keppni milli nem- enda um að finna grenndargralið. Þannig upp- lifa þátttakendur tvöfaldan ávinning, fyrir utan ánægjuna sem fylgir því að læra nýja hluti virkar keppnisfyrirkomulagið ekki síður sem hvatning til að ná árangri. Ekki er þó nauð- synlegt að taka þátt í leitinni á keppnisgrund- velli. Eftir að Síðuskóli bættist í hópinn er keppnin nú ekki einungis milli nemenda úr einum og sama skólanum heldur og milli tveggja skóla. Mikil stemning getur myndast meðal þátttakenda í keppni sem þessari og býður hún upp á ýmsa möguleika þar að lút- andi. Til að mynda voru útbúin rafræn kynn- Þróunarverkefni í samfélagsfræði á unglingastigi í Giljaskóla á Akureyri Meðal þess sem nemendur hafa aflað sér upplýsinga um eru tengsl Jóns Sigurðssonar, frelsishetju Íslendinga, við fyrstu prentsmiðju Akureyringa og tengsl árása nasista á Coventry 1940 við eitt helsta kennileiti Akureyrarbæjar. skólAstArf Texti: Jón Baldvin Hannesson Myndir: Giljaskóli Höfundur grenndargrals- verkefnisins, Brynjar Karl Óttarsson. Sigurvegarar 2009: Lovísa Rut Stefánsdóttir (t.v.) og Guðrún Bald- vinsdóttir. Þær eru úr Síðuskóla. Sigurvegarar 2008: Unnur Árnadóttir (t.v.) og Hrafnhildur Ýr Jóhanns- dóttir. Með þeim á myndinni eru aðrir þátttakendur sem luku við þrautirnar tíu. Allar eru þær úr Giljaskóla.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.