Skólavarðan - 01.04.2010, Blaðsíða 34
34
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Láttu okkur vita! sigridur@ki.is
Varstu að skipta um netfang?
Eplið er á vefnum
Kennari sem fer á eftirlaun verður ekki sjálf-
krafa meðlimur í Félagi kennara á eftirlaun-
um (FKE) heldur þarf hann að sækja sérstak-
lega um það. Nægilegt er að senda beiðni í
tölvupósti þar sem fram kemur nafn, heim-
ilisfang, kennitala, heimasími, farsími og net-
fang) til Sigríðar Sveinsdóttur, sigridur@ki.is
Eplið, rafrænt fréttabréf KÍ, er á
vefnum. Lestu Eplið á www.ki.is
Hugaðu að
raddheilsunni
Röddin er atvinnutæki kennara. Góð og
heilbrigð rödd er áheyrileg og kemur töluðu
máli vel til skila. En það er ýmislegt sem getur
haft neikvæð áhrif á rödd kennarans:
• Krafa um að tala lengi.
• Fjarlægð milli kennara og nemenda.
• Mikill hávaði í umhverfinu.
• Slæmt loft í kennslustofu.
• Streita.
• Skortur á raddþjálfun.
Líklegt er talið að mikill hluti kennara þjáist
af ýmsum raddbundnum álagseinkennum,
svo sem þurrki, ertingu, sviða, hæsi án kvefs,
ræskingaþörf, raddbresti og raddþreytu.
Það er því mikilvægt fyrir kennara að kynna
sér hvernig röddin virkar og hvað hefur áhrif á
hana, hvernig sé best að beita henni til að það
sem sagt er skili sér til nemenda án þess að
það bitni á raddheilsu.
Meðal úrbóta hefur verið bent á að:
• nota magnarakerfi,
• draga úr hávaða - t.d. setja einangrun á snerti-
fleti húsgagna og einangrun í loft og á veggi,
• bæta inniloft, hafa til dæmis opna glugga og eftirlit með loftræstikerfum,
• fá kennslu í raddbeitingu.
Sjá nánar á www.ki.is undir
vinnuumhverfisbólu maímánaðar.
Hér er kynnt til sögunnar ný þjónusta á vegum Kennarasambandsins sem vonandi fellur í góðan
jarðveg. Félagsmenn geta skrifað tölvupóst og spurt ráðgjafa í einstökum málaflokkum um
hvaðeina sem þeir æskja svara við. Valin svör eru ýmist birt á www.ki.is eða í Skólavörðunni.
Öllum bréfum er svarað ýmist persónulega eða með tilvísun í upplýsingar annars staðar (til
dæmis á vef Kennarasambandsins). Fyrirspyrjandi getur óskað nafnleyndar.
Til að byrja með bjóðum við upp á ráðgjöf í þessum málaflokkum:
Skólavarðan kemur eftirleiðis út fjórum sinnum á ári. Þetta fyrsta
tölublað með nýju sniði er sent öllum virkum félagsmönnum en
eftirleiðis einungis þeim sem óska eftir því. Einnig eru send eitt
til fimm eintök í skóla eftir fjölda kennara. Í haust verða settar
upp sk. Mínar síður á vef KÍ og þar geta félagsmenn meðal annars
stjórnað áskrift sinni að Skólavörðunni.
stutt
Ráðgjafar hjá KÍ – ný þjónusta
Hvert á að senda fyrirspurn?
Fyrirspurnir eru sendar á netfangið kristin@ki.is og merktar í bréfatitli með þessum hætti:
RÁÐGJÖF (nafn ráðgjafa).
Ef fyrirspurnin er til dæmis til Margrétar Gunnarsdóttur þá stendur í „subject“:
RÁÐGJÖF Margrét Gunnarsdóttir.
Fleiri ráðgjafar?
Ef þetta gefst vel og félagsmenn sýna áhuga munum við fjölga ráðgjöfum og fá
gott fólk til liðs við okkur á fleiri sviðum.
Kaup og kjör
Ráðgjafi: Ingibjörg Úlfars-
dóttir launafulltrúi KÍ.
Vinnuumhverfi
Ráðgjafi: Hafdís Dögg
Guðmundsdóttir starfsmaður
vinnuumhverfisnefndar KÍ.
Starfsendurhæfing
Ráðgjafi: Margrét
Gunnarsdóttir ráðgjafi KÍ
hjá VIRK.
Félagsmenn, athugið!
Ert þú á leiðinni
í FKE?