Skólavarðan - 01.04.2010, Blaðsíða 41
41
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Aðalatriðin:
Ef ykkur langar í lautarferð með frönskum blæ er það ofureinfalt. Það
sem þið þurfið að muna er: Baguette, rauðvín, ostar, ávextir (til dæmis
eplabátar, plómur, ferskjur, jarðarber).
Næst á dagskrá:
Ef þið viljið hafa aðeins meira við: Kæfa (paté), áleggspylsa, litlar
kökur, ólífumauk (tapenade) ofan á brauð, nýkreistur appelsínusafi,
vínber, vatn, sulta. Ekki gleyma salti og pipar. Spínatsalatið á næstu
síðu er líka fantagott í lautarferð.
Það sem við borðum ekki en þarf að vera með:
Ágætt er að hafa kælibox með í för, körfu, viskastykki, glös, diska og
hnífapör, servíettur, blautþurrkur fyrir hendur og ruslapoka. Þá er gott
að hafa lautarferðadúk eða þunna dýnu, má gjarnan vera vatnshelt.
Sumir vilja taka með sér iPod og hátalara en aðrir kjósa að hlusta á
tónlist náttúrunnar.
Í staðinn fyrir servíettur og handþurrkur er hér eitt enn betra:
Takið nokkur þvottastykki, bleytið þau í sjóðheitu vatni, vindið mesta
vatnið úr þeim og vefjið hverju um sig í álpappír, raðið þeim svo
í flugvélaplastpoka (plastpoka með rennilás). Voilá! Hlýtt, gott og
hreinsandi fyrir andlit og hendur.
Leikföng eru líka ómissandi, húlahringur, sippuband, badmin-
tonspaðar og flugur, brennibolti, krítar, vatnsbyssur.
Þrjár lautarlegar:
Hér eru þrjár uppskriftir til viðbótar að frábærum pique-nique
samlokum og sígildum sumardrykk.
Límonaði
1 b. vatn
1 b. sykur
Safi úr 4-6 sítrónum
4 b. kalt vatn, gott er að bæta
við smávegis sódavatni, toppi eða kristal
Sjóðið saman 1 b. af sykri og 1 b. af vatni, hrærið í stöðugt þar til
sykurinn hefur leyst alveg upp. Kælið í ísskáp. Að því loknu er þessu
blandað saman við allt hitt, hellt á kælibrúsa og tekið með. Uppskriftin
er margfölduð eftir þörfum. Gott er að búa til svolítið aukalega og
frysta í klakaboxi til að nota út í límonaðið í staðinn fyrir venjulega
ísmola. Þá þynnist það ekki út.
Pan Bagnat
Þessi er seld á frönsku Rívíerunni í bílförmum.
2 hvítlauksrif, marin eða smáttskorin
1/3 b. ólífuolía
1 baguette (líka gott að nota ciabatta)
2 ds. túnfiskur í olíu (líka hægt að nota þennan nýja frá Ora með
hvítlauk, ólífuolíu og sólþurrkuðum tómötum)
1/3 rauðlaukur
2 msk. capers
2 msk. rauðvínsedik
tómatar, sneiddir
Blandið saman hvítlauk og ólífuolíu. Skerið brauðið langsum í tvennt
og penslið með hvítlauksolíunni. Sigtið túnfiskinn. Blandið saman tún-
fiski, rauðlauk, capers, ediki og nógu af hvítlauksolíunni til að salatið
fái hæfilega „salatáferð“. Smyrjið brauðið og raðið tómatsneiðum ofan
á, vefjið brauðið þétt inn í álpappír og kælið í nokkra klukkutíma fyrir
lautarferðina.
Þessi fjölbreytta
8 sn. fjölkornabrauð
¼ b. gráðostsósa (eða blue cheese dressing duft og ½ b. majones)
2 steiktar og skornar kjúklingabringur (hægt að hafa bara eina til að
spara!)
1 þroskuð lárpera (avókadó)
8 sneiðar steikt beikon
2 harðsoðin egg
4 salatblöð
Smyrjið ostsósunni á brauðið, um 2 msk. á hverja sneið.
Raðið öllu hinu á og lokið í samloku.
Edouard Manet hafði svo mikil áhrif með
málverki sínu af lautarferð, Déjeuner
sur l’herbe (hádegisverður á grasinu)
árið 1863 að Cezanne, Picasso og Monet
ruku til og fóru að mála myndir af þessu
fyrirbæri líka.
slAkA á
Pique-nique í sumar
Þessar dásamlegu færanlegu sumarveislur sem við köllum lautarferðir eru upprunnar í
Frakklandi ... eða að minnsta kosti orðið yfir þær. Picnic, pikknikk, á frönsku: Pique-
nique. Eftir byltinguna voru hinir konunglegu garðar opnaðir almenningi og piqueniquers
(lautarferðalangar) fluttu sig um set úr stofum sínum og út á tún. Þótt við höfum kannski
ekki efni á að ferðast mikið í sumar getum þó alltaf skroppið út í garð í pique-nique!
Bon appetit!