Skólavarðan - 01.04.2010, Síða 42
42
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Frá Pjattrófu til kennara
Daglegur pjattrúntur kennarans
Flestar konur eru óttalega pjattaðar og það er satt sem hún Joan
Bennet sagði á því herrans ári 1944 að „aðlaðandi er konan
ánægð“. Þetta þýðir samt ekki að við þurfum að vakna kl 6:30 á
morgnana til að krulla og blása hárið, þekja andlitið með farða og
skella okkur í fokdýra skó frá Prada.
Auðvitað er hverri konu í sjálfsvald sett hvernig hún skilgreinir
sig aðlaðandi en fl estum líður okkur þó betur þegar hárið hegðar
sér eins og við viljum að það geri og húðin er stillt.
Þó það sé ekki endilega allt morandi í kynæsandi körlum á
fl estum vinnustöðum kennara (þar sem konur eru víðast í miklum
meirihluta) er samt nauðsynlegt gleðja kvensálina með smá fegurð
á hverjum morgni áður en farið er út í daginn.
Pjattrófurnar skilgreina ekki fegurðina bara í því sem augað
nemur þó oftast sé sú fegurð það fyrsta sem grípur. Góður ilmur er
líka úr heimi hins fallega og það sama má segja um fallega tónlist,
falleg heimili og góðan mat.
Daglegur pjattrúntur kennarans gæti verið fólginn í því að byrja
á að setja fallegt lag á fóninn til að komast í góðan gír og sprauta
smá ilmvatni í hálsakot. Góður ilmur skapar oft góðar minningar
hjá þeim sem kynnast þér. Eftir tíu ár fi nnur gamall nemandi
ilminn frá þér á förnum vegi og hugsar „ahhhhh…“ með bros í
hjarta.
Dagkrem með hárri sólarvörn ætti að koma þessu næst og ef þú
ert á hraðferð skaltu nota hyljara á bauga og bletti og skella svo
smá sólarpúðri í vangana.
Ekki vera feiminn við að nota augnskugga kringum augun (oft
góður í stað blýants) því augun eru spegill sálarinnar og skugginn
beinir athyglinni að þeim. Brúnir litir draga fram bláma í augum
og eru oftast skothelt val.
Brúkukrem eru algjör snilld á upplýsingaöldinni þegar við
vitum að sólin býr til hrukkur og það er voða gott að eiga eitt slíkt
fyrir andlitið. Mundu bara að hafa ekki þurra húð þegar þú berð
það á og berðu líka á háls og bringu.
Þetta er mjög gott svo að ekki sé meira sagt.
Uppruni uppskriftarinnar er ókunnur en hún
barst okkur frá Sylvíu Gústafsdóttur kennara og
fræðslustjóra hjá KPMG.
1 ds. sýrður rjómi
3-4 msk. majones
¼ - ½ pk. púrrulaukssúpa frá Knorr
4-6 hvítlauksrif
½ - 1 ds. vatnshnetur, smátt saxaðar, notast líka
sem skraut
Skvetta (dass) af sojasósu
Skvetta (dass) af Worchestershiresósu
Spínat (frosið) , um 1 poki
Saxið hvítlauk og vatnshnetur smátt eða hakkið
í vél (ekki mala í duft). Hrærið saman sýrðan
rjóma og majonesi, setjið hvítlaukinn út í
ásamt súpudufti og hnetum. Bætið soyasósu og
Worchestersósu út í. Afþýðið spínat, kreistið
vökva úr, hrærið út í. Betra er að hafa það ekki
of blautt og ef til vill þarf meira spínat út í eða
minnka sýrða rjómann eða majonesið (jafnvel
sleppa því) eftir smekk. Loks er allt hrært saman
og smakkað til. Berið fram í krústeinsbrauði eða
öðru brauði með harðri skorpu. Brauðið er holað
að innan, salatið sett ofan í og Tortillafl ögum
raðað í kring. Að sjálfsögðu er einnig hægt að
bera salatið fram í skál. Krústeinsbrauð fæst til
dæmis í bakaríinu í Suðurveri í Reykjavík.
Eftir tíu ár fi nnur gamall nemandi
ilminn frá þér á förnum vegi og
hugsar „ahhhhh“ með bros í hjarta.
Fylgihlutir á borð við glingur og skart eru frábært hversdagspjatt.
Sítt hálsskraut, fallegir eyrnalokkar og sætur klútur um hálsinn getur
gert gæfumuninn og komið smá glamúr í þreytulegan þriðjudaginn.
Að lokum skaltu muna að taka ávexti með í töskuna, eða möndlu-
poka því þær eru svo góðar fyrir húðina og línurnar og svo er það
bara að brosa út í eitt því bros getur dimmu í dagsljós breytt.
Margrét Gústavsdóttir
Margrét er ein af Pjattrófunum sex en þær skrifa sitt
skemmtilega blogg á http://pjattrofur.eyjan.is
Besta spínatsalat í heimi
Pjattrófurnar
Kaloríu fyrir
kaloríu gefur
laufgrænt
grænmetið þér
meiri næringu en
nokkuð annað.
slAkA á