Skólavarðan - 01.04.2010, Side 44
44
Skólavarðan 3.tbl. 2010
„Það er hægt að fara margar ólíkar leiðir í skólastarfi,“ segir dr. Anna
Magnea Hreinsdóttir, fyrsti doktorinn í leikskólafræðum sem útskrifast
á Íslandi og leikskólafulltrúi Garðabæjar. „Engin leið er sú eina rétta,“
heldur hún áfram. „Það sem stendur þróun skólastarfs fyrir þrifum hér-
lendis er hins vegar skortur á umræðuhefð. Hún er mjög skammt á veg
komin á Íslandi og ekki bara í skólastarfi heldur á öllum sviðum mann-
lífsins. Liður í að búa til og festa í sessi umræðuhefð er að hleypa
öllum hagsmunahópum að í umræðu og ákvarðanatöku og byrja strax
í bernsku.“
Doktorsverkefni Önnu Magneu ber titilinn: „Af því að við erum
börn“. Lýðræðislegt umræðumat á menntun barna og þjónustu fjögurra
íslenskra leikskóla. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á starf
leikskóla og meta það með aðferðum lýðræðislegs umræðumats þar
sem sérstaklega er leitað eftir sjónarmiðum barna. Tilgangurinn með
þessu er að vekja umræður um stöðu barna í leikskólum og færa rök
fyrir því að raddir barna geti haft áhrif á starf þeirra.
„Hagsmunir barna eru alls ekki alltaf í forgrunni í skipulagi skóla-
starfs,“ segir Anna Magnea. Til dæmis eru það ekki þarfir barna sem
ráða lengd dvalartíma. Það er miklu fremur atvinnuþátttaka foreldra,
sem sagt atvinnulífið í landinu. Þá eru starfsmenn líka að gæta eigin
hagsmuna, sem hefur áhrif, til að mynda er almennt ekki vinsælt
að vinna til klukkan fimm á daginn.“ Anna Magnea er sjálf fyrrum
skólastjóri og rekstraraðili leikskóla og segist hafa fengið þá reynslu
sína staðfesta í doktorsverkefninu að börn hafi almennt litla stjórn á lífi
sínu. „Sjónarmið þeirra eru oft önnur en við höldum,“ segir hún. „Þau
eru til dæmis ekkert leið yfir að vera lengi í leikskólanum svo fremi það
sé gaman. Ef þau skemmta sér ekki þá vilja þau fara heim.
Það er athyglisvert að þótt börnin sem tóku þátt í rannsókninni séu
ung að árum þá eru þau ákveðin í að þau vilja fá að ráða meiru um
líf sitt. Það kom margt fleira mjög skýrt fram, til dæmis að þau vilja
vera í námunda við dýr, að þau kjósa leiki með mikilli hreyfingu og að
„konurnar“ ráða allt of miklu.“
Að sögn Önnu Magneu þá ráðskumst við allt of mikið með börn,
hlustum lítið á þau og skipuleggjum athafnir þeirra í leikskóla um of.
Lýðræðislegt umræðumat er aðferð sem var þróuð sérstaklega til að ná
til valdaminni aðila, þar með talið barna. Ytra mat á skólastarfi, eins og
til dæmis mat sveitarfélaga og menntamálaráðuneytis, er sérfræðimat
en sú nálgun hefur verið gagnrýnd fyrir að vera of fjarri flóknu sam-
hengi hversdagsins og ólíkum sjónarmiðum þeirra sem koma að skóla-
Við fáum engu að ráða, er það
nokkuð? Nei engu, konurnar
ráða bara. Nemandi í leikskóla.
Allir hópar eigi fulltrúa þegar skóla-
starf er metið Um áhrif barna á eigið líf og lýðræðislegt umræðumat
Texti: keg
Myndir: js
fræÐin