Skólavarðan - 01.09.2010, Blaðsíða 4
4
Skólavarðan 4.tbl. 2010
Eiríkur, hvað er að gerast í kjaramálunum?
Við höfum verið að funda hér innanhúss, bæði stjórn KÍ og kjararáð,
og einnig hafa formenn aðildarfélaga rætt þessi mál á formlegum og
óformlegum fundum. Það ríkir einhugur um að í komandi kjarasamn-
ingum þurfi að semja við Launanefnd sveitarfélaga um að kennarar og
stjórnendur sem vinna hjá sveitarfélögunum fái hliðstæðar kjarabætur
og samið hefur verið um við aðra kennara, til viðbótar því sem um
semst almennt.
Kennarasambandið hefur haft það á stefnuskrá sinni árum saman að
meta beri menntun og ábyrgð til launa. Nú er verið að lengja kennara-
menntun og því tekur lengri tíma að afl a sér réttinda til kennslu en áður
var. Þetta er grundvallaratriði sem meta verður til launa.
Kennarasambandið mun krefjast þess að kjarabætur í komandi
kjarasamningum verði raunverulegar og að þær skili sér til allra
félagsmanna en ekki einungis þeirra sem lægst hafa launin. KÍ hefur
alla tíð stutt hækkun lægstu launa og gerir enn en nú er algjörlega
nauðsynlegt að hækkanir nái líka til þeirra sem ofar eru. Þeir hafa
margir hverjir tekið á sig verulega mikið aukna skattbyrði ásamt því
að yfi rvinna hefur minnkað eða horfi ð og þola þannig mun meiri
kaupmáttarskerðingu.
Tekur KÍ þátt í samfl oti við gerð kjarasamninga?
Félög innan KÍ munu örugglega ekki taka því að fá upp í hendurnar
uppskrift af kjarasamningum sem samin er af SA og ASÍ eins og raunin
var síðast. Það er ekkert sem mælir gegn því að aðilar hafi með sér
samstarf við gerð kjarasamninga í haust en forsendur þess verða að
vera þær að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga sé virtur að fullu.
Hvað með niðurskurð og skattahækkanir?
Það hefur lengi legið ljóst fyrir að samtök opinberra starfsmanna vilja
verja velferðarkerfi ð og þar með skólana gegn niðurskurði. Sú stefna
hefur ekki breyst. Þess vegna hafa samtök opinberra starfsmanna ekki
staðið eins hart gegn skattahækkunum og aðilar hins almenna vinnu-
markaðar. Ég á von á því að þessi ágreiningur sé enn til staðar. Í þessu
sambandi er mikilvægt að muna að við fjárfestum í menntun og sú fjár-
festing er undirstaða velferðar þjóðarinnar á komandi árum. Þess vegna
er niðurskurður í menntakerfi nu þjóðhagslega hættulegur.
En lífeyrismálin?
Öllum er ljóst að SA og ASÍ hafa á köfl um farið hamförum gegn líf-
eyrisréttindum opinberra starfsmanna. Nú er í gangi vinna á grundvelli
svokallaðs stöðugleikasáttmála um framtíðarskipulag lífeyrismála. KÍ
er þátttakandi í þeirri vinnu og á þeim vettvangi er stefna okkar skýr.
Skerðing á lífeyrisréttindum félagsmanna okkar kemur ekki til greina
enda um kjarasamningsbundin réttindi að ræða.
Áherslur KÍ í hnotskurn?
Við ætlum að verja réttindi félagsmanna okkar, sækja kjarabætur
sem skila sér til allra og krefjumst þess að sjálfstæður samningsréttur
stéttarfélaga verði virtur.
Launahækkanir verða að skila
sér til allra félagsmanna
Formaður: Eiríkur Jónsson, KÍ
Texti: keg
Mynd: js
– formenn spurðir tíðindaspJörunum Úr