Skólavarðan - 01.09.2010, Blaðsíða 11
11
Skólavarðan 4.tbl. 2010
Haustið 2004 tók til starfa fjölgreinadeild Lækjarskóla í Mennta-
setrinu við Lækinn, Fjölgreinadeildin er fyrir nemendur úr 9.
og 10. bekkjum í grunnskólum Hafnarfjarðar sem allir eiga það
sameiginlegt að hafa ekki náð að fóta sig í almennum grunnskóla.
Fljótlega varð ljóst að þeir nemendur sem útskrifuðust úr deildinni
væru fæstir reiðubúnir til að hefja hefðbundið framhaldsskólanám
að loknum grunnskóla. Í kjölfarið, haustið 2006, var komið á lagg-
irnar fjölgreinabraut sem er framhaldsskólaúrræði fyrir nem-
endur á aldrinum 16-18 ára.
Systurnar Berglind og Sandra Borg Gunnarsdætur kennarar eru
umsjónarmenn fjölgreinabrautar og segja þær að með henni sé verið að
koma til móts við sérstaka stöðu þessara nemenda. „Deildin er hugsuð
sem úrræði fyrir þá einstaklinga sem eiga ekki auðvelda leið inn í
framhaldsskóla af ýmsum ástæðum og þurfa aukinn undirbúning fyrir
dæmigert nám í framhaldsskóla, til dæmis iðnnám eða inn á almennar
stúdentsbrautir,“ segja þær.
Brautin var og er rekin sem hluti af Lækjarskóla og hafði fyrsta
skólaárið aðsetur í Dvergi en er núna í húsnæði Menntasetursins við
Lækinn. Upphaflega gerði samningurinn ráð fyrir því að við brautina
væru tólf nemendur í fullu námi en á haustönn 2008 var mikil ásókn
í brautina og fékkst þá viðbótarfjármagn frá menntamálaráðuneyti til
að koma til móts við þann fjölda sem sótti um, eða allt að átján nem-
endur. Á þriðja starfsári brautarinnar 2009 var gerð úttekt á starfinu á
vegum ráðuneytisins þar sem fram kemur að almenn ánægja er með
starf brautarinnar í skólasamfélaginu, hjá nemendum sjálfum sem og
foreldrum.
Á vorönn 2009 lauk tilraunaverkefninu en í ágúst sl. skrifuðu
Hafnarfjarðarbær og mennta- og menningarmálaráðuneytið upp á
samstarfssamning um rekstur fjölgreinabrautar frá 2010-2012 sem er í
raun framhald á þeim samningi sem gilti 2006-2010.
„Í samninginum felst að Hafnarfjarðarbær starfrækir áfram fjöl-
greinabraut í svipaðri mynd og áður þar sem miðað er við að nem-
endur séu á bilinu 15-20 á hverjum tíma og er starfrækt í nánu sam-
starfi við Flensborgarskóla og Iðnskólann í Hafnarfirði. Að loknum
samningstímanum er stefnt að því að námið færist algjörlega á ábyrgð
framhaldsskólanna,“ segja þær Berglind og Sandra. „Nú stunda tuttugu
nemendur nám við fjölgreinabraut Lækjarskóla og koma þeir víða að
sem sýnir að þörfin fyrir svona úrræði er mikil, enda hefur nemendum
við brautina fjölgað frá ári til árs.”
Nemendur fá þann tíma sem þeir þurfa til að ná námsmarkmiðum
Þær segja að með fjölgreinabrautinni sé lögð áhersla á að mynda sam-
fellu í skólagöngu og sporna við brottfalli nemenda. Námið feli sér-
staklega í sér áherslu á uppbyggingu og styrkingu sjálfsmyndar sem
og félagsfærni þar sem nemendum sé tryggt nám við hæfi.
„Leitast er við að uppfylla anda og ákvæði framhaldsskólalaga um
námsframboð á framhaldsskólastigi fyrir þá nemendur sem ekki hafa
náð tilskildum árangri við lok grunnskólans og falla illa að náms-
Áhersla er lögð á að mynda samfellu
í skólagöngu og sporna við brottfalli
nemenda. Námið felur sérstaklega í
sér áherslu á styrkingu sjálfsmyndar
og félagsfærni.
Komið til móts við þá sem eiga ekki
auðvelda leið inn í framhaldsskóla
málefni