Skólavarðan - 01.09.2010, Blaðsíða 14
14
Skólavarðan 4.tbl. 2010skólastarf
Þróunarverkefnið Heilsueflandi skóli í umsjón Lýðheilsustöðvar á vax-
andi fylgi að fagna enda toppfólk sem að því stendur og faglega unnið í
hvívetna. Margir grunnskólar eru komnir af stað í verkefninu og fram-
haldsskólar eru í startholunum, Flensborgarskóli verður forystuskóli
á framhaldskólastigi í vetur og Egilsstaðaskóli stefnir á að verða fyrsti
heilsueflandi grunnskólinn hérlendis samkvæmt viðmiðum Lýðheilsu-
stöðvar. Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttur deildarstjóri í síðarnefnda
skólanum og formaður stýrihóps um verkefnið segir okkur frá heilsu-
eflingunni á Egilsstöðum.
Í heilsueflandi skólum fer fram skólastarf í anda heilsueflingar þar
sem markvisst er unnið að því að efla og stuðla að velferð og góðri
heilsu nemenda og starfsfólks. Egilsstaðaskóli stefnir á að verða fyrsti
heilsueflandi grunnskóli á Íslandi samkvæmt viðmiðum frá Lýðheilsu-
stöð. Ísland á aðild að samtökum heilsueflandi skóla í Evrópu og nú
þegar eru skólar í 46 löndum skráðir til leiks. Skólinn þarf að uppfylla
ákveðnar kröfur sem Lýðheilsustöð setur fram og er gott samstarf á
milli starfsmanna hennar og stýrihóps verkefnisins. Þess má geta að
Lýðheilsustöð heldur utan um verkefnið á Íslandi en Egilsstaðaskóli var
fenginn til að þróa og staðfæra reglur, gátlista og inngönguskilyrði að
íslenskum aðstæðum í samstarfi við Lýðheilsustöð.
Vinnan að þessu stóra heildstæða verkefni hófst haustið 2008. Mark-
miðið er að auka heilsueflingu í skólanum. Innleiðing verkefnisins
tekur þrjú ár og eru misjafnar áherslur á hverju ári. Veturinn 2008-2009
var lögð áhersla á hreyfingu og mataræði,veturinn 2009-2010 var
áhersla á skólabraginn og andlega líðan og veturinn 2010-2011 verður
lögð áhersla á samstarf við nærsamfélagið og foreldra.
Skólinn hefur unnið markvisst að heilsueflandi starfi með vitundar-
vakningu innan sinna veggja sem á að ná bæði til nemenda og starfs-
fólks. Staðið hefur verið fyrir ýmsum viðburðum, vinnufundum og
fræðslufundum. Búið hefur verið til fræðsluefni sem hefur verið dreift
og kynnt í skólanum og á heimilum nemenda. Einnig eru reglulega
gerðar ýmsar kannanir á líðan, hreyfingu og mataræði hjá nemendum
sem og starfsfólki.
Heilsueflingarverkefnið sjálft á að ná til nemenda og starfsfólks
skólans, aðila sem tengjast skólasamfélaginu, t.d. félagsmiðstöðva,
íþróttafélaga og foreldra. Tilgangurinn er að allir vinni saman og hafi
sömu markmið. Sagt er að það þurfi heilt samfélag til að ala upp eitt
barn og þess vegna er mikilvægt að allir vinni saman.
Til hvers þarf heilsueflingu í skólann okkar?
Heilsufar og menntun eru nátengd fyrirbæri. Heilsa nemenda ræður
miklu um hvort þeir komast yfir höfuð í skólann og hvernig þeim
gengur í náminu. Skólinn er því kjörinn vettvangur til að hvetja til
Heilsueflandi skóli kominn á flug
Texti: Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir
Myndir: Drífa Magnúsdóttir
Ef öll þessi markmið nást ættu þau að vera besta
forvörnin: Einstaklingur með sterka sjálfsmynd
sem kann að bera ábyrgð á eigin heilsu.