Skólavarðan - 01.09.2010, Síða 9

Skólavarðan - 01.09.2010, Síða 9
9 Skólavarðan 4.tbl. 2010málefni Kennsla á framhaldsskólabraut hófst í Menntaskólanum í Kópa- vogi nú í haust samkvæmt lögum um framhaldsskóla og verður brautin kennd til reynslu í samstarfi við menntamálaráðuneytið. Ýmsar nýjungar eru á brautinni varðandi námsmarkmið, fyrir- komulag, kennsluhætti og námsefni, nemendur munu að hluta glíma við nýjar námsgreinar og verður sveigjanleiki í námi og námsmati eins mikill og kostur er. Námið verður einingabært og námslok með ýmsum hætti eftir þörfum hvers og eins. Hægt er að ljúka framhaldsskólaprófi og útskrifast frá Menntaskólanum í Kópavogi í fyllingu tímans. Sveigjanleiki er lykilatriði Þær Steinunn Inga Óttarsdóttir áfangastjóri og Guðrún Helgadóttir náms- og starfsráðgjafi tóku að sér að skipuleggja og gera drög að nám- skrá fyrir framhaldsskólabrautina í MK. Þær segja að vantað hafi fl eiri námsleiðir í framhaldsskólann þar sem þangað sæki æ fjölbreyttari nemendahópur. „Við sáum þarna leið í nýjum lögum til að koma til móts við þetta og tókum þá stefnu að beina athygli sérstaklega að þeim nemendum sem standa höllum fæti, hafa ekki náð tilskildum árangri í grunnskóla af margvíslegum ástæðum eða eiga við ýmsa námsörðugleika að etja. Við vildum bjóða þeim nám við hæfi , hætta að spóla í námsefni sem búið er að reyna að vinna með í áratug með sáralitlum árangri og beina sjónum í aðrar áttir,“ segja þær Steinunn Inga og Guðrún. Þær segjast hafa viljað prófa nýjar nálganir í kennsluháttum, náms- efni og námsmati og reyna að laga kerfi ð að nemandanum en ekki að troða honum inn í einhæft og stíft kerfi . „Samkvæmt nýju framhaldsskólalögunum á hver og einn að geta fundið sér námsleið við hæfi og sveigjanleiki er lykilatriði í því efni. Þetta er allt á tilraunastigi, við sóttum um styrk til ráðuneytisins til að prófa þetta og fengum hluta fjárins sem sótt var um. Við höfum starfrækt mjög gott almennt fornám hér í MK árum saman og byggjum á þeirri reynslu. Kennsla á brautinni er afar krefjandi þar sem margir nemendanna glíma við alvarlegan athyglisbrest og ofvirkni og það getur tekið á taugar allra sem að því koma. Í framhaldsskólanum eru sérkennarar ekki á hverju strái en við höfum fengið reynda og góða kennara til að glíma við þetta og það gengur ágætlega. Við höfum þá trú að við getum komið til móts við þessa nemendur, skapað jákvæða skólareynslu og efl t sjálfstraust þeirra og sjálfsmynd svo að úr þeim verði nýtir þjóðfélagsþegnar,“ segja Steinunn Inga Óttarsdóttir og Guðrún Helgadóttir. Kurteisi, umburðarlyndi og skipulögð vinnubrögð Fríða Proppé íslenskukennari hefur umsjón með framhaldsskólabraut- inni í MK og segir hún 25 nemendur vera á brautinni og sé þeim skipt í tvo hópa í fl estum áföngum. Piltar eru í miklum meirihluta en stúlk- urnar aðeins fjórar. „Nemendur eiga nú samkvæmt lögum rétt á að vera í framhalds- skóla til 18 ára aldurs, svo fremi að þeir brjóti ekki skólareglur,“ segir Fríða. Á framhaldsskólabrautinni í MK er lögð mikil áhersla „Við vildum bjóða þeim nám við hæfi , hætta að spóla í námsefni sem búið er að reyna að vinna með í áratug með sáralitlum árangri og beina sjónum í aðrar áttir.“ Frá vinstri; Steinunn, Fríða og Guðrún Nýjar námsleiðir hefur vantað í framhaldsskólann

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.