Skólavarðan - 01.09.2010, Side 22
22
Skólavarðan 4.tbl. 2010námsgögn
Geturðu frætt lesendur um það í stuttu máli hvað og hver
Stoðkennarinn er?
Ef Stoðkennarinn væri persóna af holdi og blóði þá mætti segja að
hann væri ofvirkt séní. Hann er til taks 24 tíma sólarhrings, allan árs-
ins hring. Hann kennir nemendum grunnatriði í íslensku, ensku,
dönsku, stærðfræði og tölvunotkun, leggur fyrir þá verkefni sem hann
fer yfi r á innan við sekúndu og skráir einkunnir í einkunnabók. Og
ekki nóg með það, heldur veitir hann kennurum og foreldrum aðgang
að einkunnabókum og heldur utan um virkni nemenda öllum stundum.
Stoðkennarinn er sem sagt gagnvirkur námsvefur.
Felst mikil vinna í því að halda svona námsvef við?
Það fer auðvitað eftir metnaði hver og eins. En ef vefur er ekki í
sífelldri þróun er hætt við að hann dagi uppi sem steingervingur á
nokkrum árum. Net- og tölvutækni fl eygir fram og við höfum lagt
áherslu á að fylgja þeirri þróun. Á síðasta ári endurhönnuðum við
kerfi ð frá grunni og bættum ýmsum nýjum þáttum við, til dæmis
leggjum við meiri áherslu á að þjónusta foreldra. Við ætlum okkur
líka að byrja að sinna miðstiginu, en hingað til hefur Stoðkennarinn
einbeitt sér að unglingastiginu.
Þú talar um að sinna foreldrum betur. Hvað felst í því?
Hverjum nemandaaðgangi fylgir frír foreldraaðgangur. Foreldrar geta
þá skráð sig inn á vefi nn, skoðað og jafnvel rifjað upp námsefnið og
fylgst með gengi og virkni barna sinna. Ég held að margir foreldrar
vilji styðja við bakið á börnum sínum en skortir oft þekkingu á náms-
efninu til þess. Með hjálp Stoðkennarans geta þeir hins vegar fylgst
með gengi barns síns og hvatt það áfram.
Hvernig móttökur hefur Stoðkennarinn fengið?
Þeir sem hafa hleypt honum inn eru stóránægðir. Hann léttir kennurum
vinnu sína en hjálpar um leið við að gera kennslu markvissari. Kenn-
arar hafa miklu meiri yfi rsýn yfi r framvindu nemenda. Það er mikið
rætt um einstaklingsmiðað nám en eins og kennarar vita er erfi tt að
sinna því með stóra nemendahópa þar sem einstaklingar eru mjög
ólíkir. Vel gerðir námsvefi r eiga þátt í því að auðvelda skólum að sinna
hlutverki sínu. En hitt er svo annað mál að það getur verið erfi tt að fá
skóla til að opna dyrnar. Þeim er auðvitað gert að spara við núverandi
aðstæður. En ég er viss um að það má ná fram sparnaði með því að
nota Stoðkennarann.
Hvernig?
Í fyrsta lagi er Stoðkennarinn ekki dýr, í raun afar ódýr. Og skóli þarf
ekki að kaupa aðgang fyrir alla nemendur heldur aðeins þá sem koma
til með að nota vefi nn. Sérkennsla er skólum dýr en vefurinn hefur
hentað afar vel þar. Eftirfylgni er til dæmis einfaldari því allir þeir sem
koma að kennslu nemenda geta fylgst með framvindu og samræmt
aðgerðir sínar. Einnig er hentugt að nota vefi nn í forfallakennslu því
hann getur gefi ð nákvæmar upplýsingar um hvað hver og einn var að
gera á tilteknu tímabili. Og enn má nefna sparnað við útprentun verk-
efna. Nemendur geta jafnvel skilað inn textum yfi r netið og kennari
farið yfi r í gagnvirku umhverfi .
Eruð þið bjartsýnir?
Já, við fi nnum fyrir auknum áhuga á Stoðkennaranum, bæði hjá
skólum og heimilum. Tölvan mun aldrei koma í staðinn fyrir kenn-
arann, en hún er ótvírætt nytsamlegt tæki ef hún er notuð á réttan hátt.
Björn Víkingur, stærðfræðikennari við Holtaskóla (ágúst 2010):
„Við kennarar í Holtaskóla höfum notast við Stoðkennarann í
nokkur ár fyrir nemendur skólans og líkað vel. Forritið nýtist sem
sjálfstætt ítarefni við annað námsefni þar sem efnisatriði þess
smellpassa við efnisatriði kennslubókanna og námskrár. Nem-
endur hafa einnig tekið Stoðkennaranum fagnandi og margir
fengið útrás fyrir keppnisanda og námsmetnað. Nemendur vinna
við forritið bæði í skólanum og heima. Auðvelt er að setja þeim
fyrir ákveðin efnisatriði sem þeir eiga að ljúka fyrir tiltekinn
tíma og auðvelt er að halda utan um allar niðurstöður um árangur
nemenda. Þannig hafa kennarar nýtt Stoðkennarann sem viðbót
við fl óruna í námsmati. Stoðkennarinn hefur því öðlast fastan
sess í kennsluáætlunum og námsmati kennara á unglingastigi í
Holtaskóla.“
Ásdís Ögmundsdóttir, 10. bekk í Borgaskóla (ágúst 2010):
Ásdís Ögmundsdóttir í 10. bekk í Borgaskóla (Grafarvogi) hefur
notað Stoðkennarann frá því í byrjun ágúst, aðallega í stærðfræði
þar sem hún þarf að bæta sig.
„Mér fi nnst vefurinn mjög sniðugur og hann hjálpar mér mjög
mikið. Hérna get ég fengið góðan grunn í því sem ég er að læra í
skólanum. Þetta hefur hjálpað mér mjög mikið í stærðfræðinni og
ég hef lært heilmargt á stuttum tíma. Þegar maður leysir dæmin
þá er maður í samkeppni við sjálfan sig og vill alltaf gera betur og
ná að leysa sem fl est dæmi. Þegar maður fær 10 þá er maður voða
ánægður og þegar ég fæ lægri einkunn í þessum prufudæmum þá
held ég áfram og vil gera betur.
Í Stoðkennaranum er maður líka í næði og nær að einbeita sér
betur að dæmunum en í skólanum. Svo er líka margt annað þarna
sem maður getur valið úr sem mig langar að ná framförum í, eins
og til dæmis danskan.“
Ofvirkt séní
Einu sinni var kennari sem bjó til námsvef.
Kennarinn heitir Starkaður Barkarson og við
spurðum hann um vefi nn hans, Stoðkennarann.
Texti: keg
Mynd: Úr safni SB
Starkaður Barkarson, stofnandi og framkvæmdastjóri Stoðkennarans,
og Guðmundur Ingi Jónsson, verkefnisstjóri.