Skólavarðan - 01.09.2010, Side 32
32
Skólavarðan 4.tbl. 2010
Litli prinsinn
Þann 4. mars síðastliðinn héldum við þrjár,
Þórunn, Margrét og Guðrún Birna, á fund til
Targoviste í Rúmeníu, heimabæjar hins heims-
fræga Drakúla greifa. Í þessum 80.000 manna
bæ er skólinn Scola Tudor Vladimirescu, einn
af þátttökuskólum í Comeniusarverkefninu um
bókina Litla prinsinn eftir Antoine de Saint-
Exupéry. Til fundarins komu einnig kennari
og skólastjóri frá Belgíu, þrír kennarar og tveir
nemendur frá Eistlandi og síðast en ekki síst
skólastjóri og þrír kennarar frá Sikiley ásamt
fjórum nemendum. Við lentum í Búkarest
seint um kvöld og þar tók á móti okkur
íþróttakennari skólans sem heitir því skáld-
lega nafni, Alexander Ivan. Hann ók með
okkur að Hótel Dracula en allir hinir funda-
gestirnir voru löngu sofnaðir því klukkan var
farin að ganga tvö. Við skelltum því hvít-
lauknum í gluggann til að halda Drakúla frá
rúmunum okkar og steinsofnuðum eftir tutt-
ugu klukkustunda ferðalag.
Scola Tudor Vladimirescu skartar prúðum
nemendum
Þann 5. mars er vorkomu fagnað í Rúmeníu
og allir næla hvít blóm í barminn. Okkur var
ekið í skólann þar sem börnin biðu okkar í
þjóðbúningum og gáfu okkur blóm í barminn
og brauð, en það er til siðs þegar gestum er
fagnað í Rúmeníu. Börnin léku leikrit og túlk-
uðu hvítu vorboðana, snjóblóm sem brjótast
upp úr snjónum í mars. Við fengum líka fína
snjóblómahatta í tilefni dagsins.
Þennan dag voru börnin einnig að undirbúa
mæðradaginn 8. mars, en það er mikill hátíðis-
dagur í Rúmeníu. Við skoðuðum skólann og
fylgdumst með í tveimur kennslustundum. Það
var aðdáunarvert hversu falleg framkoma
barnanna var við okkur og hvert annað. Þau
stóðu öll upp þegar við komum inn og buðu
góðan dag, þau hlustuðu á útskýringar kenn-
arans og unnu svo verkefni og töluðu saman í
lágum hljóðum á meðan við fylgdumst með. Í
fyrri tímanum voru nemendur í 5. bekk að búa
til hjörtu úr trölladeigi sem þau máluðu með
gömlu naglalakki og tippexi. Nemendum
okkar hefði sjálfsagt þótt þetta skrítinn efni-
viður í föndurtíma. Þau unnu verkið af alúð og
gáfu okkur hjörtu til að næla í fötin að lokum.
Seinni kennslustundin var hjá 8. bekk og þar
voru nemendur að búa til stöðluð kort með
myndum af sér og fallegum texta handa
mæðrum sínum. Okkur fannst frábært að sjá
hvað börnin unnu fallega og hljóðlega og hvað
þeim tókst að gera mikið úr litlu og einföldu
efni. Stofurnar voru hlýlegar og skreyttar með
verkum barnanna þó að hús-búnaður væri úr
sér genginn og borð og stólar oft allt of lítil.
Börnin voru glöð og ánægð og mættu í skóla-
búningum í tilefni heimsóknar okkar, annars
eru þeir helst notaðir á tyllidögum.
Síðdegis áttum við svo fund með nem-
endum á „skæpinu“ (Scype) og þau sýndu
okkur kyrkislöngur sem var eitt af okkar
verkefnum og við skiluðum inn á þessum
fundi. Myndir barnanna í Álftamýrarskóla
vöktu athygli fyrir hvað þær voru vel unnar
og litríkar. Í Rúmeníu, Sikiley og Eistlandi
er myndmennt ekki sérstakt fag og það var
merkjanlegt á myndverkum, þó að hugmyndir
væru góðar þá voru þær ekki nógu vel unnar.
Sumarhöll kóngsins í snjóþyngslum
Á laugardegi kyngdi niður snjó þegar við
fórum að skoða sumarhöll kóngsins í Karpata-
fjöllum, en kóngur er nú í útlegð í Austurríki.
Náttúran var snæhvít og fögur og trén þung
af snjó og í einni hlíðinni stóð ævintýrahöll -
beint út úr Grimmsævintýrum, þar sem Þyrni-
rós svaf í heila öld og Öskubuska dansaði. Það
merkilega við höllina er hitakerfið en þegar
höllin var byggð fyrir 150 árum var því komið
fyrir í henni og einnig lyftu sem flutti mat
milli hæða. Höllin þótti því mikið tækniundur.
Um kvöldið borðuðum við öll saman á
veitingastað í fjöllunum og í söngstund eftir
matinn vorum við beðnar að syngja lag frá
Íslandi. Við vildum ekki valda gestgjöfunum
vonbrigðum og sungum Ríðum ríðum, rekum
yfir sandinn með miklum þunga og dramatík
svo að allir urðu hræddir, ekki síst Róberta
frá Sikiley sem fannst þetta táknrænn söngur
fyrir eyjuna köldu í norðri. Hún hafði sjálf
nýlokið við að syngja léttu kátu söngvana
sína, O sole mio og tarantellu, og allir dilluðu
sér með, þarna mætti norðrið suðrinu! Róberta
heldur að hér sé alltaf myrkur og kuldi og
fólk í stöðugri lífshættu enda fréttir borist af
efnahagslegum og jarðfræðilegum hamförum.
Við vorum á fundi á Sikiley í janúar 2008 í
miðri búsáhaldabyltingu og komumst ekki
á fund til Eistlands í vor vegna eldgossins í
Eyjafjallajökli.
Harðstjórinn Ceausescu og kennari með
áttatíu þúsund á mánuði
Á sunnudegi fórum við til Búkarest sem er
stundum líkt við París með árbakka sína og
falleg breiðstræti. Ceausescu tókst að eyði-
Comeniusarferð til Rúmeníu í mars 2010
Það er ómetanlegt að fá að kynnast þjóð með því að heimsækja skól-
ana í landinu og kynnast lífi fólksins. Comeniusarverkefnið okkar um
Litla prinsinn hefur gert okkur kleift að kynnast skólafólki í nokkrum
Evrópulöndum og í þessari grein segjum við, þrír kennarar í Álfta-
mýrarskóla, frá heimsókn okkar til Rúmeníu.
námsferð
Texti: Guðrún Birna, Margrét og Þórunn
Myndir: Úr safni höfunda
Álfamyndirnar hjá 4.-bekk