Skólavarðan - 01.09.2010, Side 34
34
Skólavarðan 4.tbl. 2010fagfélagið
Félag talkennara og talmeinafræðinga
(FTT) er eitt fagfélaganna í Kennarasam-
bandinu. Að sögn Kristins Hilmarssonar
formanns þess eru „félagar í FTT alltaf
eitthvað að sýsla og margt af því í frásögur
færandi.“ Kristinn segir frá markverðum
áföngum og fleiru í starfsemi félagsins sem
fagnar því um þessar mundir að loks er
hægt að læra talmeinafræði hérlendis.
Áralangri baráttu félagsins fyrir að fá nám í
talmeinafræði heim til Íslands er nýlega lokið
en fyrsti kennsludagur í þverfaglegu meistara-
námi í talmeinafræði við Háskóla Íslands
var 30. ágúst 2010. Fimmtán nemendur hafa
hafið sitt tveggja ára nám og verða nýnemar
teknir inn annað hvert ár. Þessi atburður er
einn af stærstu áföngum í sögu talkennslu og
talmeinafræða á Íslandi og vonandi upphaf að
gróskumiklum rannsóknum og framförum í
allri kennslu og þjálfun barna og fullorðinna
sem glíma við mál- og talörðugleika. Félag
talkennara og talmeinafræðinga tekur virkan
þátt í alþjóðlegu samstarfi og það hefur sýnt
okkur að nám í talmeinafræði verður að kenna
í því landi sem talkennarar og talmeinafræð-
ingar starfa. Menning, siðir, venjur, lands-
hættir of síðast en ekki síst tungumálið hefur
áhrif á hvernig talkennarar og talmeinafræð-
ingar nálgast viðfangsefni sín hvort sem um er
að ræða kennslu, þjálfun eða rannsóknir.
Nýliðun hefur verið hæg og meðalaldur
félagsmanna hækkað jafnt og þétt. Það stefndi
í óefni ef ekki hefði tekist að koma náminu
heim. En nú lítur þetta betur út fyrir fræði-
greinina og ekki síst fyrir málhamlaða á Íslandi
sem munu hagnast mest á að fá námið heim.
Markmiðið er sameining allra talkennara
og talmeinafræðinga í eitt félag
Verkefni og baráttumál félagsins hafa verið
mörg. Félagið hefur samþykkt siðareglur sem
félagsmenn fylgja, barist fyrir að þjónusta við
börn, unglinga og fullorðna sem glíma við
mál- og talörðugleika verði veitt sem víðast,
barist fyrir réttindum sínum og löggildingu,
gefið út tímarit, komið að samningum og
gefið álit og umsagnir. Samkvæmt lögum
FTT er markmið félagsins að sameina alla
talkennara og talmeinafræðinga í eitt félag,
gæta hagsmuna þeirra, taka þátt í starfi
erlendra systurfélaga, standa fyrir fræðslu og
kynningarstarfsemi og hvetja til og taka þátt í
rannsóknum.
Málþroskafrávik er þema í nýju tölublaði
Talmeinafræði er ung fræðigrein. Fyrstu tal-
kennararnir tóku til starfa 1953 og 1954 og
svo fór þeim fjölgandi og störfuðu í fyrstu
aðallega í sérskólum. Formlegur stofndagur
FTT er 11. september 1981 og verður félagið
því þrjátíu ára á næsta ári.
Frá 1984 höfum við gefið út félagsblað
sem við köllum Talfræðinginn. Með honum
miðlum við af þekkingu okkar hvert til annars
og allra þeirra sem hafa áhuga og starfa með
málhömluðum.
Nýjasta tölublaðið er nýlega komið út og
eins og síðustu ár er um þemahefti að ræða.
Blaðið fjallar að þessu sinni um málþroska-
frávik leik- og grunnskólabarna. Málþroska-
frávik eru nokkuð algeng en bandaríska
menntamálaráðuneytið telur að um 10%
grunnskólabarna og 15% leikskólabarna
glími við einhvers konar frávik í máli og tali.
Málþroskafrávik á leikskólaaldri koma
gjarnan fram sem námserfiðleikar síðar meir.
Lestrarerfiðleikar eru nátengdir frávikum í
máli og tali. Lestur byggist annars vegar á
umskráningu og hins vegar á lesskilningi.
Báðir þessir þættir eru tengdir því hvernig
einstaklingur vinnur úr hljóðum og almennri
málþekkingu hans. Í blaðinu eru nokkrar
greinar sem fjalla um samband málþroska og
lestrar. Þar er fjallað um lesskilningserfiðleika,
horfur barna sem greinast með sértæka mál-
þroskaröskun á leikskólaaldri, greiningartækið
LOGOS og orðminniserfiðleika. Ennfremur
eru hagnýtar greinar þar sem sagt er frá nýút-
komnu námsefni um íslensku málhljóðin og
lestrarnám (Lubbi finnur málbein, Lærum og
leikum með hljóðin og Fimm vinir í leik og
lestri). Foreldrar segja frá reynslu sinni af því
að eiga barn með tal- og málþroskaröskun en
víða er pottur brotinn í þjónustu þessara barna,
sérstaklega í grunnskólum.
talmein.is
Heimasíða félagsins, talmein.is, var uppfærð
á árinu og nýja síðan er einfaldari í notkun.
Á heimasíðunni má fræðast um starf félagsins,
hvar félagar starfa, panta nýjasta og eldri
árganga af Talfræðingnum (talfræðingurinn@
talmein.is), finna gagnlega tengla og hafa
samband með því að senda okkur línu á net-
fangið talmein@talmein.is. Þar eru námskeið
auglýst og þar verður sagt frá viðburðum sem
tengjast þrjátíu ára afmæli félagsins.
Víða pottur brotinn
í þjónustu við nemendur
Texti: Kristinn Hilmarsson
Kristinn er formaður Félags talkennara og
talmeinafræðinga
Mynd: Frá höfundi
Málþroskafrávik á leik-
skólaaldri koma gjarnan
fram sem námserfiðleikar
síðar meir.