Skólavarðan - 01.09.2010, Page 36
36
Skólavarðan 4.tbl. 2010
Guðrún er framhaldsskólakennari og kennslustjóri í Borgarholtsskóla
þar sem hún kennir efnafræði og lífsleikni. Árið 2006 minnkaði hún við
sig vinnu eftir tíu ára kennslu við þrjá framhaldsskóla á landinu og hóf
meistaranám í lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík. Í því námi
vann hún fyrrnefnda rannsókn í upphafi árs 2008. Eftir efnahagshrun
og breytingar sem það hafði í för með sér gaf auga leið að margt hafði
breyst sem varð hvatinn að því að endurtaka rannsóknina. Félagi
framhaldsskólakennara fannst þetta góð hugmynd og styrkir seinni
rannsókn Guðrúnar. Fyrstu niðurstöður eru í tveimur hlutum um breytt
starfsumhverfi framhaldsskólakennara, efnahagskreppuna og ný fram-
haldsskólalög, en meira efnis er að vænta síðar því rannsóknirnar eru
umfangsmiklar og gefa möguleika á fjölbreyttum úttektum.
Í fyrri hluta úttektar rannsakar Guðrún hvaða breytingar hafa orðið
á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara með hliðsjón af
efnahagshruninu og hvert viðhorf kennara er til breytinganna. Seinni
hlutinn snýr að nýjum framhaldsskólalögum og þar spyr Guðrún hvort
breytingar hafi orðið á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara
við innleiðingu nýju laganna og hvert viðhorf kennara sé til hennar.
„Þetta er þýðisrannsókn þar sem öllum framhaldsskólakennurum
var gefinn kostur á því að svara. Ég hélt inni flestum spurningunum
frá rannsókninni 2008 og bætti við spurningum um áhrif efnahags-
kreppunnar og viðhorf til nýju framhaldsskólalaganna,“ útskýrir
Guðrún. „Það er eðlismunur á rannsóknunum tveimur því sú fyrri var
lögð fyrir á kennarafundi þar sem einungis þeim sem mættu á fundinn
gafst færi á að svara. Þá var svarhlutfallið 87%. Í seinni rannsókninni
var spurningalistinn afhentur beint öllum framhalds-skólakennurum
og þá var svarhlutfallið 62%. Það er mjög vel hægt að álykta út frá
þessum gögnum. Þau endurspegla þýðið mjög vel hvað varðar aldur
þátttakenda,dreifingu og tegundir skóla, og einnig er góð dreifing á
milli kynja.”
Hverjar reyndust svo helstu breytingarnar á högum framhalds-
skólakennara eftir hrunið?
„Þeim finnst lífskjör sín hafa dregist saman eins og okkur flestöllum
í þessu samfélagi. Hingað til hafa kennarar byggt laun sín mikið
á yfirvinnu en eftir hrun eru yfirvinnustundirnar færri þrátt fyrir að
nemendum hafi fjölgað um 5% frá fyrri rannsókn til þeirrar seinni og
fjöldi stöðugilda við kennslu hefur staðið í stað samkvæmt Hagstofu-
tölum. Mjög stórt hlutfall kennara var líka í aukavinnu utan kennslu og
hún hefur einnig dregist saman.“
Endalaus hagræðing í stað umbóta
fólkið
Texti: Hildur Loftsdóttir » Myndir: js
Þjónusta við nemendur er verri eftir efnahagshrunið, kjör kennara hafa versnað og
framhaldsskólakennarar óttast nýju framhaldsskólalögin. Þetta er meðal fjölmargra
áhugaverðra niðurstaðna sem Guðrún Ragnarsdóttir komst að við úrvinnslu rannsóknar
sinnar „Líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara.“ Hildur Loftsdóttir talaði við
Guðrúnu og spurði hana nánar út í rannsóknina, nýju framhaldsskólalögin og skoðanir
hennar á því hvað væri brýnast að gera í málefnum framhaldsskóla.