Skólavarðan - 01.09.2010, Qupperneq 48
48
Skólavarðan 4.tbl. 2010
Pjattrófan gleymir aldrei kennara sem hún hafði eitt sinn í barna-
skóla. Kennari þessi, sem var kona á fertugsaldri, þjáðist af ein-
hverskonar trufl unum í svitakirtlum en þetta olli því að öll skóla-
stofan angaði af sterkri svitalykt.
Vesalings konan hefur efl aust verið samdauna þessu en lyktin fór
sannarlega ekki framhjá nemendunum. Við áttum yfi rleitt í mesta
basli með að einbeita okkur að náminu því megnið af andlegu ork-
unni fór í að reyna að útiloka þessa yfi rþyrmandi lykt frá skilningar-
vitunum.
Eins dásamlegt og það nú er þegar kennarinn ilmar vel er það jafn
slæmt þegar hann eða hún gerir það ekki.
Vitaskuld á það að vera skylduverkefni allra kennara að vera
snyrtilegir og vel til fara og sjá til þess að líkaminn gefi ekki frá sér
trufl andi lykt sem fer ekki framhjá neinum, nema þá kannski honum
sjálfum.
Á sama hátt er virkilega ljúft að umgangast manneskju sem ilmar
vel öllum stundum.
Til að ilma vel má fara ýmsar leiðir en það verður alltaf að gæta
þess að lyktin verði ekki of sterk. Það er þessi fíni millivegur sem
þarf að rata.
„Body lotion“ og sturtusápur með góðri lykt eru t.d. vörur sem
eru vel til þess fallnar að láta þig ilma vel án þess að það fari of
mikið fyrir því. Þannig getur t.d. ilmurinn af mildri vanillu lagst vel
í nemendurna því vanilla vekur alltaf upp góðar tilfi nningar enda
vanilla í öllum rjómaís.
Merki eins og Biotherm framleiða svo ýmsar góðar líkamsvörur
með sérlegum ilmkjarnaolíum sem ætlað er að hafa jákvæð og góð
áhrif á skilningarvitin.
Létt ilmvötn eru jafnframt dásamleg svo lengi sem þau eru ekki
ofnotuð. Þannig skaltu heldur úða aðeins yfi r hárið eða út í loft
og ganga svo inn í mistrið. Þetta gerir það að verkum að þú ilmar
mátulega mikið og kemur ekki til með að kæfa neinn þegar þú horfi r
yfi r öxlina á nemandanum. Ilmurinn helst líka betur í hárinu en á
húðinni.
Móðir pjattrófunnar segist enn muna eftir lyktinni sem var af
kennaranum hennar í Kársnesskóla en svo mikið dálæti hafði hún
á þessum kennara að pjattrófan sjálf er skírð millinafni í höfuðið á
henni.
Auðvitað er kennurum svo skylt að fara í sturtu á hverjum morgni,
eða bað á hverju kvöldi, en gættu þess að nota sápur sem þurrka
ekki upp húðina og vel af rakagefandi og vellyktandi kremi á eftir.
Við íslendingar erum þjakaðir af rakaskorti enda erum við fl est
með of þurra húð. Húðlæknir einn tjáði mér að rakastigið í loftinu á
Íslandi getur farið um 50% niður fyrir það sem æskilegt þykir svo
að húðin hafi það sem best. Við þurfum því að hafa okkur öll við.
Hvað svitakirtlana varðar þá er um að gera að reyna að benda
fólki góðlátlega á það ef lyktin verður of mikil. Oft gerir það sér
nefninlega enga grein fyrir þessu.
Of sterk svitalykt getur orsakast af ýmsum kvillum en oft kemur
hún til vegna þess að fólk er á lélegu mataræði, drekkur of mikið
kaffi , reykir og/eða drekkur of lítið vatn.
Ef um er að ræða vandamál sem trufl ar verulega mikið, eins og
hjá kennaranum mínum í æsku, er til dæmis hægt að kaupa efni
sem heitir Aluminum Chloride en það fæst í næsta apóteki og á að
virka gífurlega vel. Svo eru til fl eiri aðferðir eins og að sprauta lyfi í
handakrika og hleypa rafstraumi í gegnum saltvatn - en förum ekki
nánar út í það
Líkaminn vill að við sinnum honum vel, vökvum hann og nærum
og í staðinn skilar hann okkur góðri líðan sem hefur keðjuverkandi
jákvæð áhrif á þá sem eru í kringum okkur.
Það líður ekki sá vinnudagur í lífi kennara að hann hitti ekki fullt
af fólki á öllum aldri. Eðlilega líður þeim kennara því vel sem hefur
jákvæð og aðlaðandi áhrif á allt þetta fólk.
Kennarinn ætti þessvegna ávallt að vera snyrtilegur og vel til fara
eftir eigin „smag og behag“. Aðlaðandi fyrirmynd ungra nemenda
sem eiga jafnvel eftir að muna eftir kennaranum sínum alla ævi og
hugsanlega, ef vel tekst til, skíra börnin sín eftir þér.
En það gerist að öllum líkindum ekki ef minnining tengist
aðallega sterkri svitalykt…
Með fallegri kveðju frá Pjattrófum.
http://pjattrofurnar.is
Pjattrófurnar
slaka á
Aðlaðandi er kennarinn ánægður