Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 24
Þjóðmál haust 2012 23
Halldór Gunnarsson
Heyrum, nemum og
leitum til hinna gömlu
gilda Sjálfstæðisflokksins
Þegar spurt er hvernig Sjálfstæðisflokkur-inn eigi að komast í ríkisstjórn er svarið
einfalt . Forysta flokksins verður að hlusta á
sjálfstæðisfólk um land allt og skynja von-
brigðin, sárindin og jafnvel reiðina, sem þar
er vegna hrunsins og leggja til raunhæfar
úrbætur .
Daglega hafa hljómað fréttir í tæp fjögur
ár um afskriftir eða aðra mismunun á
með ferð fjármuna hjá fyrrum einstökum
stóreigna mönnum, framkvæmdaraðilum,
em bættis mönnum og nokkrum alþingis-
mönn um . Viðurkennt hefur verið af eftir-
lits stofnun EFTA að mjög mismunandi
upp gjör á peningamarkaðssjóðum var á
kostnað ríkissjóðs, en er óupplýst til hverra
og hver heimilaði — það var aldrei rætt eða
sam þykkt af Alþingi . Eftir hrunið hefur nú-
verandi ríkisstjórn haldið áfram að greiða
skuld ir einstakra fyrirtækja og fjár mála stofn-
ana á kostnað heimila og annarra fyrirtækja,
sem reyna að þrauka, jafnvel fram yfir allt
sem skynsamlegt er . Þessar sérstöku greiðslur
og afskriftir banka stofnana og ríkisins til
sumra nema lík lega um 750 milljörðum
með uppgjöri pen inga markaðssjóð anna .
Aðgerðir núverandi ríkisstjórnar til hjálp-
ar þeim verst settu eru í anda löngu lið-
innar stefnu einræðisríkja, þar sem komið
er upp fjölmennu eftirlitskerfi um fjár-
hag einstaklinga, sem þurfa síðan að bíða í
biðröð og skrifa undir margskonar bón ar-
bréf um úrlausn . Alþingismenn bíða eftir
nýjum hæstaréttardómum um meðferð
stökk breyttra lána, sem fjármálastofnanir
virða ekki, því niðurstaðan var þeim óhag -
kvæm . „Eftirlitskerfið“, ásamt með umboðs-
mönnum skuldara, segir í dag, að það þurfi
ellefu ný dómsmál, sem ef til vill svari
spurningum varðandi fyrri dóms niður stöður
seint á næsta ári! Á meðan heldur inn heimtan
áfram!
Í ljósi þessa er ekki nóg að hlusta, heldur
verður forysta flokksins að hafa kjark til að
takast á við þennan vanda með sanngirni og
jafnræðisreglu í anda sjálfstæðisstefnunnar .
Þingmenn flokksins verða að hefja samtal
við flokksmenn um þessi mál og í framhaldi
skilja hvað verður að gera og hverju verður
að breyta . Væntanleg þingmannsefni
flokksins verða að setja fram skýra og trú-
verðuga stefnu fyrir komandi kosningar,