Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 78
Þjóðmál haust 2012 77
löggjöf og samfélagsskipan geti verið í
anda frjálshyggju á marga vegu og þá mjög
misgóða . Eins mynda úrræði sem eru
andstæð henni ansi fjölskrúðugan flokk .
Að allar góðu lausnirnar á vandamálum
samfélagsins tilheyri öðrum flokknum og
allar þær vondu hinum er
tæpast mjög trúlegt og það
er heldur ekki sennilegt að
hægt sé að koma í veg fyrir
kreppur og áföll með því
einu að hafna öllum ráðum
frjálshyggjumanna . Ég gef því
ekki nema mátulega mikið
fyrir skýringar Einars Más á
efnahagsvanda síðustu ára .
Hvort einhvers staðar í
þeirri örlagaborg sem hýsir
mögulega heima rúms og
tíma finnst vistarvera þar sem
mannlífið er laust við kreppur,
basl og fátækt veit ég ekki .
Mig grunar að ef sú vistarvera
er til þá sé hún hátt upp í einhverjum turni
sem er órafjarri híbýlum veruleikans . Hversu
langt er í herbergi þar sem stjórnlyndir
íhaldsmenn eins og Einar Már kváðu alla
frjálshyggju í kútinn á nítjándu öld veit ég
ekki og ekki heldur hvort þar er enn verið
að hýða fólk á torgum og setja í gapastokk
fyrir kirkjudyrum . Ekki veit ég heldur hve
lengi þarf að leita að vistarveru þar sem öll
frjálshyggja laut í lægra haldi fyrir jakobín-
um eða ámóta róttæklingum og því síður
hvort þar er fallöxi í hverju krummaskuði .
Gegn frjálshyggju virðist Einar tefla
íhaldssömum viðhorfum ekki síður en
hugmyndum af ætt jafnaðarstefnu . Á stöku
stað í textanum gefur hann í skyn að sam-
félagsskipanin hafi verið betri fyrir daga
iðnbyltingar og kapítalisma . Eitt dæmi
um þetta eru vangaveltur um hvernig
hefði farið á Englandi ef einveldi konungs
hefði ekki verið hnekkt af borgurum undir
lok sautjándu aldar, en þeir atburðir ýttu,
sem kunnugt er, mjög undir framgang
kapítalisma og frjálshyggju þar í landi .
Ef enskir „einvalds konungar“ hefðu
hins vegar setið við völd, má vel ímynda
sér að þeir hefðu litið svo á að þeir væru
konungar allra stétta, eins og
sumir fyrirrennarar þeirra
höfðu gert, og ættu að bera
hag allra landsmanna fyrir
brjósti, ekki aðeins einhverra
landeigenda . Kannske hefðu
þeir líka viljað halda sem
mest friði innanlands og
stuðla að viðgangi ríkisins,
en fyrir hvorutveggja hlaut
aukin fátækt, með allri þeirri
ólgu sem henni fylgdi, mjög
að spilla . (Bls . 119 .)
Ekki þykist ég vita hvað
þeir Hefði, Mundi og Skyldi
mundu hafa afrekað á
Englandi ef lands menn hefðu
búið við ríki einvaldskónga hundrað ár í
viðbót . Í Frakklandi ríktu svoleiðis kóngar
þar til alþýða fékk nóg og gerði byltingu
undir lok átjándu aldar . Þar tókst þeim ekki
betur en svo að halda innanlandsfrið og vera
konungar allra stétta . Hér er Einar Már ef
til vill aðeins að leika sér að hugmyndum og
minna á að sagan gat farið á ótal vegu, enda
hæðist hann að þeim sem álíta að hún geti
aðeins haldið í framfaraátt .
Einfaldur boðskapur,
einfölduð saga
Sagan, sem Einar Már segir, fjallar öðr um
þæði um hugmyndir nokkurra af frum-
kvöðlum frjálshyggju á Bretlandi og öðrum
þræði um breska hagsögu frá sextándu öld
til þeirrar nítjándu . Þeir kenningasmiðir
frjáls hyggjunnar sem fá mest rúm eru heim-
spekingurinn John Locke (1632–1704),