Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 17
16 Þjóðmál haust 2012
hundelt og undið upp á, spyrja sig nú hvar
þeir „vaskleika“-menn séu núna? Ekki það
að sú aðför hafi kallað á aðdáun neinna
nema pólitískra andstæðinga mannsins, en
hún flettir nú ofan af dugleysi fréttamanna
í varðstöðunni fyrir almenning . Besti
flokkurinn hagar siðareglum sínum eftir
vindi . Besti flokkurinn er stjórnlaus en
þó ekki anarkískur . Til þess þykir honum
of vænt um launin sín, stólana sem hann
situr á og aðstöðuna sem þeir skapa . Hann
er eiginhagsmunaflokkur með enga sýn
aðra en að njóta aðstöðunnar sem lengst .
Besti flokkurinn er réttgetið afkvæmi
Sam fylkingarinnar . Hann er án innihalds
en nýtur valdsins . Í þessu slá spaugararnir
jafnvel sjálfa sig út . Fólk, sem enga
sjálfstjórn hefur, segir nú öðrum hvernig
þeir eigi að hegða sér . „Drykkjulæti í mið-
bænum á menningarnótt og hún verður
ekki haldin að ári,“ kom úr munni litla
harðstjórans sem heldur að siðareglur eigi
bara við aðra . Ólánsfólk af öllu tagi er
hundelt og aðför gerð að þeim sem veita
því athvarf . Og rétt eins og rónarnir er
einkabíllinn á aftökulistanum . Bíleigendur
eru orðnir hinu holdsveiku samfélagsins;
úthýst úr helgidómi kaffielítu miðbæjarins
og hund eltir með uppskrúfuðum sköttum
og álögum . Herferðin gegn einkabílnum
hefur nú verið tvinnuð saman við hernað
gegn verslun í miðbænum .
Með lokun Austurstrætis og Laugaveg-
ar fyrir bílaumferð hefur Besta flokkn-
um tekist að koma verslun í miðbæn um
á kné . Þessi ákvörðun styður við stefnu
rík is stjórnarinnar að Ísland verði, fyrir
til stilli gengis og atvinnustefnu, um
aldur láglaunasvæði og túristaparadís .
Lopa- og lundasölumönnum fjölgar nú
eins og kanínum meðan önnur verslun
tærist upp . Kné fylgdi kviði þegar lokun
Laugavegar var fylgt eftir með banni við
auglýsingaspjöldum framan við verslanir .
Með þessu segjast borgaryfirvöld vera að
tryggja óhindraða umferð fatlaðra um
Lauga veginn . Engum tekst þó betur en
Besta flokknum að opinbera fáránleika
þeirrar rökfærslu . Slík er snilldin . Samhliða
bann inu við auglýsingaskiltum leggur
borgin nú þreyttum göngumönnum til lit-
skrúðuga legubekki á göngugötuna . Dugi
það ekki til að fækka fötluðum í umferð inni
gufar réttur fatlaðra til tálmalausrar ferðar
endanlega upp þegar í Austurstræti og á
Ingólfstorg kemur . Þar mega fatlaðir falla
hver um annan í skiltaskóginum sem þekur
þar allar gangstéttir . Kaffihúsin og Kraum
lúta nefnilega ekki sömu lögmálum . Þau
eru í náðinni og líkt og Besti flokkurinn,
le même et l´autre, hafin yfir almúgann .
Sama má segja um boðvaldið frá Brussel,
Evrópustofu, sem einnig fær að flagga
forréttindum sínum í Suðurgötunni,
fötluðum til ama . Þessi sérajóns-hugs-
un arháttur er alls staðar sýnilegur þegar
gengið er um bæinn . Hann gerir þennan
harkalega stríðsrekstur gegn versluninni
þeim mun sérkennilegri, því án verslunar
á Laugavegi er enginn Laugavegur . Engin
ástæða til að spásséra á Laugaveginum .
Engin ástæða til að opinbera hið nýja heróp
minnimáttarkenndarinnar „þetta er alveg
eins og í útlöndum“ . Því Laugavegurinn
er verslunargata sem lifir aðeins á meðan
einhver kemur þangað til að versla . Ef
verslun er útrýmt á góðviðrisdögum
Þ að sem hér ræður ríkj um er uppskafningsháttur og hræsni
fólks sem á óskammfeilinn hátt er
að skara eld að eigin köku og ætlar
skattgreiðendum að standa straum af
dekurverkefnum sínum .