Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 7
6 Þjóðmál haust 2012
leikreglurnar sem gilda hverju sinni .
Sífelldar kvartanir undan því að það sé gert
er dæmigert fyrir ríkisstjórn í vanda .
Undir kveinstafi hennar um að þingmenn
nýti sér þingskaparéttinn er gjarnan tekið
á eina fjölmiðlinum sem segir reglulega
þingfréttir . Strax eftir flokksstjórnarfund
Samfylkingarinnar laugardaginn 25 . ágúst
var fréttamanni ríkisútvarpsins efst í huga
að Jóhanna Sigurðardóttir hefði í setningar-
ræðu kvartað undan of löngum ræðum
á alþingi, þessu ætlaði hún að breyta og
meðal annars ræða við stjórnarandstöðuna .
Þingfréttir ríkisútvarpsins eru um of reistar
á frásögnum um þingsköpin og beitingu
þeirra á kostnað frásagna af því sem um er
fjallað í þingsalnum .
Fréttastofa ríkisútvarpsins er eini fjöl-
miðillinn sem fylgist reglulega með þing störf-
um og ræður því miklu um yfirbragð þing-
starfa í huga almennings . Virðing alþingis
hefur dalað eftir að minna er sagt en áður frá
því sem þar er raunverulega til umræðu og
hvernig menn taka á viðfangsefninu . Þá hafa
dagleg tækifæri fyrir þingmenn til að rífast
innbyrðis eða við ráðherra um allt eða ekkert
ýtt undir yfirbragð alþingis sem ríkisútvarpið
notar í heiti á þætti um málefni líðandi
stundar: Alltaf að rífast . Skuld inni er skellt á
stjórn arandstöð una .
Stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega
mistekist að nýta sér nýja upplýsingatækni
til að koma málstað sínum á framfæri .
Fréttir frá útlöndum um hve vel vefsíður
stjórnmálaflokka nýtast í baráttu þeirra hafa
ekki leitt til þess hér á landi að flokkarnir
taki þessa tækni í þjónustu sína á marktækan
hátt .
II .
Stjórnmálaflokkarnir búa sig nú undir próf kjör vegna þingkosninga í apríl
2013 . Fram bjóðendur skipta ekki minna
máli en góð stefnumál . Flest bendir til
þess að Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, gefi
ekki kost á sér að nýju . Hún tekur eðlilega
ekki af skarið um pólitíska framtíð sína fyrr
en á síðustu stundu . Ákveði hún að hætta
verður hún máttvana sem forsætisráðherra
um leið og hún tilkynnir pólitíska brottför .
Þá slaknar á hinum frekjulegum höftum sem
hún hefur sett á þingmennina sem styðja
ríkisstjórnina . Þeir viðurkenna óvinsældir
hennar og leita á ný mið .
Þegar þetta er skrifað hefur Sjálf stæðis-
flokkurinn ekki skýrt frá tilhögun sinni
við val á framboðslista en heyrst hefur að
stefnt sé að einum prófkjörsdegi um allt
land . Kosningarnar 25 . apríl 2009 bar að
með tiltölulega skömmum fyrirvara en þá
efndi Sjálfstæðisflokkurinn til prófkjörs
í Reykjavík 13 . og 14 . mars, rúmum
mán uði fyrir kosningar . Nú er líklegt að
prófkjörið verði ákveðið í haust, október
eða nóvember . Brátt berast því fréttir af lík-
legum frambjóðendum .
Eftir reynslu af þátttöku í nokkrum próf-
kjörum sjálfstæðismanna í Reykjavík get ég
staðfest að hart er barist og margir láta að sér
kveða enda taka þúsundir manna þátt í kosn-
ingunni að lokum . Ég átti aldrei öruggt sæti
á listanum og tók þátt í nokkrum pró kjörum
frá 1990 til 2006 . Harðast var sótt að mér í
síðasta prófkjöri mínu, í októ ber 2006 .
Sá sem stefndi gegn mér, Guðlaugur Þór
Þórðarson, hafði ótæmandi sjóði til ráð-
stöfunar . Síðar sagðist hann hafa varið að
minnsta kosti tæpum 25 milljón um króna
til baráttunnar . Stóðu Baugs menn og félagar
þeirra framarlega í flokki stuðn ings mann-
anna . Þeim var mikið í mun að bola mér frá
völdum, dóms mála ráð herranum . Guðlaugur
Þór virkjaði 500 til 700 sjálfboðaliða til bar-
áttu fyrir sig og komu margir þeirra úr for ystu
hverfafél aga sjálfstæðismanna í Reykja vík .
Hefur því verið fjálglega lýst hve ríkulegar