Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 12
Þjóðmál haust 2012 11
Nú er spurning hvort þeir sem áttu hlut
að REI með Guðmundi Þóroddssyni sætti
sig við að vera líkt við farsahöfunda . Að
mínu áliti skautar Guðmundur of léttilega
fram hjá vandanum vegna REI með því að
skella skuldinni á pólitíska samstarfsmenn
sína þar . Vandinn laut að því að ætlunin
var að fara með opinbert fyrirtæki eins og
um einkarekstur væri að ræða, fjármuni
þess og eignir mætti nýta í þágu einkaaðila
án þess að lúta reglum um meðferð
opinberra eigna og almannafyrirtækja .
Fyrir hendi var uppsöfnuð tortryggni í
garð yfirstjórnar OR vegna skeytingarleysis
hennar gagnvart þeim sem vildu veita henni
eðlilegt aðhald . Blaðran sprakk einfaldlega
í REI-málinu . Þegar Guðmundur vísar
til Skandinavíu og reynslunnar þaðan
er nærtækt að spyrja: Hafa stjórnendur
nokkurs opinbers fyrirtækis þar hagað sér
á sama hátt gert var innan OR þar til REI-
sprengingin varð?
Meira liðið!
Þetta er nú meira liðið .Julian Assange, sem sumir álitsgjafar
á Ís landi telja hinn merkilegasta mann,
kærði ný lega breska sjónvarpsstöð fyrir að
brjóta gegn einkalífi sínu . Sjónvarpsstöðin
hafði sýnt myndskeið af Assange dansa á
skemmtistað .
Nú hefur Vefþjóðviljinn ekki séð dansinn
og veit ekki hversu merkileg sjónvarpsmynd
þetta getur verið . En það er bara ekki hægt að
vera stofnandi Wikileaks, berjast fyrir því að
Ísland verði fríríki allra þeirra sem vilja birta
stolin gögn og hvað eina annað opinberlega
— og kæra aðra menn svo fyrir að sýna mynd
af sér dansa á opinberum skemmtistað . Það
er bara ekki hægt að bjóða upp á það .
En þetta minnir á annað dæmi . Fyrir
nokkru hóf Birgitta Jónsdóttir mikla baráttu
gegn því að yfirvöld í erlendu ríki fengju
einhver tölvugögn hennar afhent . Beitti hún
þeim rökum að hún væri sko alþingismaður
og fékk íslensku stjórnsýsluna með sér í
baráttuna, því það væri mjög alvarlegt að
friðhelgi alþingismanns væri ekki virt .
Já, leiðin frá alþýðumanni til yfirstéttar
getur oft verið styttri en menn héldu .
Birgitta, sem sjálf hefur hamast innan
Wikileaks og berst einmitt fyrir því að
Ísland verði fríríki „upplýsinga“, gat ekki
hugsað sér að hennar eigin gögn kæmust
í óviðkomandi hendur . Og virtist telja
að alþingismenn ættu þar meiri rétt en
ómerkilegir almennir borgarar .
Og þriðja fréttin úr sömu átt barst í gær .
Þór Saari lýsti því yfir að Sjálfstæðisflokkur-
inn væri „hægriöfgaflokkur“, hvorki meira
né minna . Hann bætti því við að hér á landi
vant aði „almennilegan og heiðarlegan flokk
sem að hyll ist borgaraleg gildi“ .
Já já, Sjálfstæðisflokkurinn er hægriöfga-
flokkur, en Þór Saari, sem hefur stært sig af
því að hafa lamið sig inn í þinghúsið með
óeirðum og vill stjórnarskrána feiga, hann
telur mikla þörf á almennilegum flokki sem
aðhyllist borgaraleg gildi .
Þetta er nú meira liðið .
VefÞjóðViljinn 255. tbl. 16. árg.,
andriki .is, 11 . september 2012 .