Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 38
Þjóðmál haust 2012 37
klerka stjórn taki við . Meðan olían rennur
áfalla laust — íslenskt þjóðfélag mundi ekki
lifa lengi án olíu á skip og vélar — þá er
þegj andi samkomulag um að styðja óbreytt
ástand .
Egyptaland
Egypski kvikmyndaleikar inn Omar Sharif hafði á orði fyrir nokkrum
áratugum að ef klerkastjórn múslima tæki
við í Egyptalandi yrði það endirinn á
Mið-Austurlöndum . Egyptar veltu Hosni
Mubarak nýlega úr forsetastóli eftir langa
setu, en eiga erfitt með að koma sér saman
um nýjan leiðtoga . Vandamál Egypta er
nefnilega ekki hvað forsetinn heitir eða lofar
að gera, heldur að fólksfjöldinn í landinu
nálgast óðum hámarkið sem eyðimörkin
getur brauðfætt .
Írak
Bretar mótuðu útlínur Íraks úr leifum Ottomannaveldisins skömmu eftir lok
fyrri heimstyrjaldar . Í landinu búa ósam-
stæðir þjóðflokkar hver á sínu landssvæði
og vantreysta hver öðrum . Í norðri eru
Kúrdar, í miðjunni eru Sunni-múslimar, í
suðri eru Shia-múslimar, og síðan má segja
að Kúweit sé skorið neðan af landakortinu
sem sjálfstætt smáríki, sennilega til að tak-
marka aðgang Íraks að hafi .
Íran
Í ran stefnir í árekstur við Ísrael . Írönsk stjórn völd vilja eignast kjarnorku sprengju
sem þá dreymir um að varpa á Tel Aviv .
Óvíst er hvort Ísraelsmönnum tekst að fá
Bandaríkin til að framkvæma „skítverkið“
fyrir sig, fara í stríð og afvopna Írani, eða
hvort Ísraelsmenn þurfa að gera það sjálfir .
Ísrael og Palestína
Lausn á deilu Ísraelsmanna og Palestínu-
manna er alls ekki í sjónmáli og erfitt er að
koma auga á lausn sem báðir aðilar geta sætt
sig við .
Líbía
A tlantshafsbandalagið tók þátt í hern aði gegn Gaddafi einræðisherra í Líbíu .
Slíkt hefði verið óhugsandi á árum áður .
Það mun skýrast á næstu árum hvernig
og hversu mikið samstarf nýrra yfirvalda í
Líbíu við Atlantshafsbandalagið mun verða .
Flestir vona það besta .
Rússland
R ússland var rætt hér að ofan . Núna er Valdimar Pútin orðinn Rússlands-
forseti enn ný . Líklegt er að hann geri eins
og Leonid Brésneff gerði á sínum tíma,
sitji á vandamálunum eftir fremsta megni
og komi þannig í veg fyrir að sjóði upp
úr . Pútin er ekki líklegur til að standa fyrir
pólitískum stórumbótum eins og Gorbachov
P útin er ekki líklegur til að standa fyrir pólitískum stór-
umbótum eins og Gorbachov
gerði . Pútin virðist ekki annt um
að Rússar kynnist of miklu lýðræði
— það skal vera styrk ríkisstjórn
sem stjórnar fólkinu en ekki öfugt .
Rússar munu væntanlega láta reyna
á til hins ýtrasta að fá sem mest
yfirráð á Norðurheimskautssvæðinu,
en skipting hafsvæðisins á þeim
slóðum er enn ekki fyllilega ljós .