Þjóðmál - 01.09.2012, Page 24

Þjóðmál - 01.09.2012, Page 24
 Þjóðmál haust 2012 23 Halldór Gunnarsson Heyrum, nemum og leitum til hinna gömlu gilda Sjálfstæðisflokksins Þegar spurt er hvernig Sjálfstæðisflokkur-inn eigi að komast í ríkisstjórn er svarið einfalt . Forysta flokksins verður að hlusta á sjálfstæðisfólk um land allt og skynja von- brigðin, sárindin og jafnvel reiðina, sem þar er vegna hrunsins og leggja til raunhæfar úrbætur . Daglega hafa hljómað fréttir í tæp fjögur ár um afskriftir eða aðra mismunun á með ferð fjármuna hjá fyrrum einstökum stóreigna mönnum, framkvæmdaraðilum, em bættis mönnum og nokkrum alþingis- mönn um . Viðurkennt hefur verið af eftir- lits stofnun EFTA að mjög mismunandi upp gjör á peningamarkaðssjóðum var á kostnað ríkissjóðs, en er óupplýst til hverra og hver heimilaði — það var aldrei rætt eða sam þykkt af Alþingi . Eftir hrunið hefur nú- verandi ríkisstjórn haldið áfram að greiða skuld ir einstakra fyrirtækja og fjár mála stofn- ana á kostnað heimila og annarra fyrirtækja, sem reyna að þrauka, jafnvel fram yfir allt sem skynsamlegt er . Þessar sérstöku greiðslur og afskriftir banka stofnana og ríkisins til sumra nema lík lega um 750 milljörðum með uppgjöri pen inga markaðssjóð anna . Aðgerðir núverandi ríkisstjórnar til hjálp- ar þeim verst settu eru í anda löngu lið- innar stefnu einræðisríkja, þar sem komið er upp fjölmennu eftirlitskerfi um fjár- hag einstaklinga, sem þurfa síðan að bíða í biðröð og skrifa undir margskonar bón ar- bréf um úrlausn . Alþingismenn bíða eftir nýjum hæstaréttardómum um meðferð stökk breyttra lána, sem fjármálastofnanir virða ekki, því niðurstaðan var þeim óhag - kvæm . „Eftirlitskerfið“, ásamt með umboðs- mönnum skuldara, segir í dag, að það þurfi ellefu ný dómsmál, sem ef til vill svari spurningum varðandi fyrri dóms niður stöður seint á næsta ári! Á meðan heldur inn heimtan áfram! Í ljósi þessa er ekki nóg að hlusta, heldur verður forysta flokksins að hafa kjark til að takast á við þennan vanda með sanngirni og jafnræðisreglu í anda sjálfstæðisstefnunnar . Þingmenn flokksins verða að hefja samtal við flokksmenn um þessi mál og í framhaldi skilja hvað verður að gera og hverju verður að breyta . Væntanleg þingmannsefni flokksins verða að setja fram skýra og trú- verðuga stefnu fyrir komandi kosningar,

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.