Þjóðmál - 01.09.2012, Side 26
Þjóðmál haust 2012 25
smáþjóð hafði möguleika á að nýta og þarf að
endurskoða .
Forysta í væntanlegu þingmannaliði flokks -
ins verður að marka skýra stefnu eftir hinum
gömlu gildum Sjálf stæðis flokksins um rétt-
læti, jafnræði, sam ábyrgð, grundvöll til eigna-
myndunar heim ila og frelsi einstaklings ins til
athafna með ábyrgð .
Fylgja verður eftir samþykktum síðasta
lands fundar með skýrt afmörkuðum tillög-
um um hvernig það verði gert, hvað varðar
skatta lækkanir, nýjar framkvæmdir, afnám
verð tryggingar, leiðréttingu á stökk breytt-
um lánum, afnám gjaldeyrishafta, sjálf stæða
stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum o .fl .
Forysta flokksins ætti einnig að marka
breytta stefnu hvað varðar störf þingmanna
flokks ins með skýrum siðareglum, ásamt því
að lýsa því yfir að vilja vinna að breyttum
þing sköpum á Alþingi, sem styrkti stöðu
þess sem löggjafarþings, þannig að þing-
menn flyttu þar öll mál, en ráðherrar
flokksins sætu ekki á Alþingi og þyrftu ekki
að sitja þar nema að takmörkuðu leyti, í
undirbúnum fyrirspurnartímum að hámarki
einu sinni í viku . Þannig yrðu sett skýrari skil
á milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds,
sem myndi auka tiltrú þjóðarinnar á störfum
Alþingis, allri vinnu þar og umfjöllun
fjölmiðla frá þingfundum, sem hlýtur að vera
eitt af stærri úrlausnarefnum allra þingmanna
að ná fram á nýju Alþingi 2013 .
Landsfundarsamþykkt 2010
Þjóðmál báðu Halldór Gunnarsson að skýra frá að
drag anda að merkilegri samþykkt landsfundar Sjálf
stæðisflokksins 2010.
Þann 21 . júní 2010 var haldinn fundur í fulltrúa-ráði Sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu með
formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsyni . Þar
kom fram hörð gagnrýni á störf flokksforystunnar . For-
maður fulltrúaráðsins, Óli Már Aronsson, flutti tillögu,
sem var samþykkt með öllum greiddum atkvæð um í lok
fundarins og var mér og Þorgilsi Torfa Jónssyni falið að
flytja tillöguna á landsfundi flokksins:
39 . landsfundur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
25 . til 26 . júní, skorar á forystu Sjálfstæðisflokksins,
þar með talda þingmenn flokksins og forystumenn
í sveitarstjórnum, að íhuga vel stöðu sína með tilliti
til fylgis flokksins í framtíðinni .
Það er alkunna í þjóðfélaginu að þeir sem
hafa þegið há fjárframlög frá félögum, jafnvel í
almanna eigu og/eða fengið óeðlilega lánafyrir-
greiðslu á undanförnum árum, umfram það sem
almenn ingur hefur átt kost á, ættu að sýna ábyrgð
sína með því að víkja úr þeim störfum og embætt-
um sem viðkomandi hafa verið kosnir til . Þetta á
einnig við um þá, sem hafa brotið af sér á einhvern
hátt eða sýnt afskiptaleysi, hvort sem það er af
þekk ingar skorti eða öðrum orsökum .
Hver og einn trúnaðarmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sem er hugsanlega í þeirri stöðu að hafa þau
áhrif á fylgi flokksins í framtíðinni að það fari
þverr andi vegna þeirra eigin athafna, verður sjálfur
að sýna flokknum og fjölmörgum kjósendum, sem
að hyllast stefnu hans, þá virðingu að stíga til hliðar,
þannig að flokkurinn geti eflst og endurnýjast til
góðra verka í framtíðinni .
Það kom í minn hlut að flytja tillöguna, sem var ekki
auðvelt í þaulskipulagðri dagskrá landsfundar, sem
gerir ekki ráð fyrir aðvífandi tillögum, en tókst samt .
Fundarstjóri var Ragnheiður Ríkarðsdóttir . Hún
úrskurðaði eftir atkvæðagreiðslu að tillagan hefði
verið felld . Því var mótmælt kröftuglega í salnum og
krafist endurtalningar . Orðið var við því og kom þá í
ljós að tillagan var samþykkt með verulegum mun .
Að minni hyggju hefur þessi samþykkt lands-
fundarins sumarið 2010 enn fullt gildi og talar fyrir
sig sjálf . Á Óli Már Aronsson á Hellu, sem einn stóð
að upphaflegri framsetningu tillögunnar, heiður skilið
fyrir einurð og kjark að kynna hana upphaflega .
H .G .