Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 31
30 Þjóðmál haust 2012
myndi þýða að við þyrftum að afsala okkur
veigamiklum hluta hins dýrmæta fullveldis
okkar . Að mínum dómi kemur slíkt ekki
til mála . Í öðru lagi hafa atburðir síðustu
mánaða í ýmsum Evrópusambandslöndum,
sem hafa átt undir högg að sækja, sýnt svo
ekki verður um villst að Evrópusambandið
er stórveldabandalag, þar sem rödd Íslands
myndi drukkna . Hvers vegna ættum við
að vilja ganga inn í slíkt bandalag? Sumir
segja að svarið sé að því muni fylgja svo
mikið hagsæld fyrir íslenskan almenning,
lægra matarverð, lægri vextir og svo
framvegis . Mín skoðun er sú að við getum
tryggt stöðu okkar áfram með svipuðu
móti og hingað til, í nánu samstarfi við
helstu viðskiptaþjóðir okkar . Fullveldi og
full yfirráð yfir eigin málum er að mínu
mati það verðmætasta sem við eigum, sem
okkur ber skylda til að skila áfram til næstu
kynslóða .
Tungumál, menning og byggð
Stjórnmál eru tæki í höndum manna til
að stuðla að meiri lífshamingju ein stakl-
ingsins . Lífshamingjan felst þó ekki í góð-
um lífskjörum þrátt fyrir að þau skipti
þar miklu máli . Sjálfsímynd okkar, sem
þjóðar, tungumál og menning, skiptir þar
líka miklu . Við verðum að hafa burði til
þess sem þjóð að landið okkar haldist í
byggð . Það er margbreytileiki mann lífsins
og menningarinnar í landinu sem er svo
dýrmætur fyrir okkur sem þjóð . Sjálfstæðis-
flokkurinn er ekki aðeins flokkur allra stétta
heldur líka allra landshluta .
Verum sjálfum okkur samkvæm
Erum við þjóð sem telur tjáningarfrelsi
hornstein þjóðfélags okkar? Ég segi hiklaust
já . Erum við framarlega í mann réttinda-
málum? Aftur segi ég hiklaust já . Við
eigum að sjálfsögðu að halda áfram að
vera í forystu á þessum sviðum . Mér hefur
því miður þótt Íslendingar vera til bún ir að
veita afslátt í þessum efnum í skiptum fyrir
mögulegan efnahagslegan ávinn ing . Þetta
hefur komið vel fram í málefnum Huangs
Nubo, kínverska fjárfestisins sem vill kaupa
eða taka á leigu stórjörðina Grímsstaði á
Fjöllum . Sjálfstæðisflokkurinn á að taka
forystu um að við Íslendingar séum sjálfum
okkur samkvæmir í samskiptum við aðrar
þjóðir og stöndum fast á grundvallarreglum
okkar .
Jafnréttismál
Að lokum vil ég nefna jafnréttismál, sem
eru mér mjög hugleikin, jafnrétti karla og
kvenna . Þau mál eru því miður ekki í lagi
árið 2012 þótt við viljum telja okkur meðal
fremstu þjóða á sviði réttinda mála . Konur
fá lægri laun en karlar fyrir sömu störf .
Þetta er staðreynd . Afar fáar konur eiga sæti
í stjórnum fyrirtækja . Framtíðarsýn okkar
verður að vera sú að við búum í þjóð félagi
þar sem bæði kynin standa ævinlega jafnt
að vígi, hafi jöfn tækifæri og umbuni til
samræmis . Hér þarf Sjálfstæðis flokk ur inn
að beita sér .
V ið verðum að hafa burði til þess sem þjóð að landið
okkar haldist í byggð . Það er
margbreytileiki mann lífsins og
menningarinnar í landinu sem er
svo dýrmætur fyrir okkur sem þjóð .
Sjálfstæðis flokkurinn er ekki aðeins
flokkur allra stétta heldur líka allra
landshluta .“