Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 17
félagsbréf
15
með sömu aðalpersónum standi saman. Hins vegar eru þau mismunandi
að efni og byggingu. Fyrsta kvæði bókarinnar, Völuspá, nær yfir sögu
heimsins allt frá upphafi til Ragnaraka. Sum kvæðin segja frá einstökum
atriðum úr lífi goðanna, önnur eru fyrst og fremst samtöl, sem veita fróð-
leik um ýmis efni, er goðin varða. Eitt kvæði, sem talið er með goðakvæð-
um, á sér nokkra sérstöðu. Það eru Hávamál, sem eru að miklu leyti heil-
ræðakvæði, og goðin koma þar lítið við sögu.
Hetjukvæðin taka miklu meira rúm og hafa að öllum líkindum náð yfir
tvo þriðjunga bókarinnar, meðan hún var óskert. Svo vel vill til, að það,
sem vantar á kvæðið fyrir framan eyðuna, eftir hið glataða kver, hefur
varðveitzt í eftirriti, sem gert var, meðan bókin var heil.
Mörg eru kvæðin tengd saman með því, að sömu persónur koma fyrir
í fleiri en einu kvæði, svo að þau mynda samstæðar heildir. 1 þessum kvæð-
um segir frá ýmsum hetjum, afrekum þeirra og ástum. Flest hafa þau
sorgleg endalok.
I útgáfum er venja að skipta Konungsbók í 29 kvæði. Rétt er að geta
þess, að fáein kvæði, sem þar eru, hafa varðveitzt annars staðar, og sama
er að segja um nokkur af sama tagi, sem eru þar ekki. Þá má ráða efni
nokkurra kvæða af öðrum ritum, en mestur hluti Konungsbókar Sæmundar-
Eddu finnst hvergi annars staðar.
Það væri því óbætanlegt tjón, ef þessi bók hefði glatazt, og hún hlýtur
ætíð að verða talin ein mesta gersemi meðal íslenzkra handrita.