Félagsbréf - 01.06.1961, Page 19

Félagsbréf - 01.06.1961, Page 19
Vér börðumst hvar sem bauðst ið hœsta verð: Á bóndans þaki lianinn rauði gól og akur tróðst við fdka vorra ferð, en fé varð laust við ógn um steglu og hjól, og ekki var það vani að eira konum né virða grið, sem spilltu aflavonum. Af frœknleik vorum fór ið mesta hól. Það verður hver að súþa mengað sufl, er sjálfur slikan verð i pottinn bjó. Eg stráði rauðum feng við drykk og dufl unz dregg og froða lýðsins við mér hló. Þó lék eg illa marga af minum sveinum. eg myrti jafnvel nokkra þeirra i leynum, ef út af fengnum afla sundur dró. Eg heyri stundum fjarlcegt fótatak, er flýr mig svefn og ró um óttuskeið, þvi eg sá mörgum dýrum degi á bak, sem dáðalaus að háttumálum leið. Svo kemur einn — sem hefnir allra hinna — með hinztu kveðju misstra bræðra sinna og brýndan jlein og hatri hertan eið. Eg lit með duldum geig hvern nýjan gest og galli blandið finnst mér þetta vin, þvi eg hef aðeins fengið stuttan frest, svo fýkur erlent ryk i sporm min. Og þá mun ekki nokkur niðji gráta á nœsta degi gamlan faranddáta, sem lét i eyði óðal sitt við Rin.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.