Félagsbréf - 01.06.1961, Side 30

Félagsbréf - 01.06.1961, Side 30
28 félagsbréf milli líkt og læknirinn og apótekarinn í Kantaraborgarsögum Chaucers: „Hvor fékk hinn til að vera á sínu bandi.“ Unga skáldið framgjarna kem- ur nægilega miklu af óljósum, tvíræðum hugtökum, fjarstæðum andstæð- um, kaldhæðni og fjarrænum táknum fyrir í verkum sínum, því sem W. H- Auden hefur nefnt „yfirlagðan skringileika“, til þess að gagnrýnandinn geti lifað af því að leysa úr leynilyklinum. Unga skáldið fær auk þess auglýsingu út úr þessari samvinnu. Mörg þessi ljóð koma manni fyrir sjónir eins og óframkölluð ljósmyndafilma, unz þau komast í myrkrakompu hins ný- tízkulega gagnrýnanda. Loks kemur að því, að sökum þessarar samvinnu fer gagnrýnandinn að álíta hlutverk sitt mikilvægara en skáldsins, alveg eins og komið hefur fram mjög rík tilhneiging til þess að undanförnu i Bandaríkjunum að álíta hlutverk stjórnanda sinfóníuhljómsveitarinnar mikilvægara en tónskáldsins sjálfs. Vera má, að hin almenna og ríka til- hneiging þeirra tíma, sem við lifum á, til þess að sundurgreina alla hluti, eigi sin þátt í því að rangfæra mat á skáldskap og listum. Randall Jarrell hefur látið falla orð um, að á okkar dögum sé mikilvægi gagnrýnandans „ofmetið fram úr öllu hófi.“ Við lifum auðvitað á tímum milligöngu- mannsins, staðgengilsins, þetta eru tímar veðmangarans fremur en þess, sem fé sitt leggur fram, sölumannsins fremur en framleiðandans, í viss* um skilningi er þetta tímabil ljósmóðurinnar. Aftur á móti hlýtur það jafnan að vera nokkrum vafa bundið, hvort hlutverk ljósmóðurinnar, sem tekur á móti „barninu“, á að teljast mikilvægara en foreldrisins, sem gal barnið eða fæddi það af sér. Á undanförnum árum hefur farið að bera allmikið á andstöðu gegn þeirri einokunaraðstöðu, sem nýgagnrýnendur hafa notið hjá sumum bók- menntatímaritum okkar, þó sú andstaða hafi ekki verið skipulögð á neinn hátt og markmið hennar verið heldur óljóst. Meðal þeirra tímarita, sem einkum hafa hossað nýgagnrýninni má nefna Kenyon Review, Partisan Review og Hudson Revieiv. Það er ekki þar með sagt, að þessi rit hafi ekki birt margar ágætar og gagnlegar greinar um bókmenntir og listir, því slíkt væri með öllu rangt, en hér er ekki mögulegt að ræða þær frekar. Hins vegar hafa margir þeirra, sem stöðugt fylgjast með og lesa það efu1’ er þessi bókmenntarit flytja, orðið fullsaddir af hinni endalausu nýgagn rýni, eins og nýleg ummæli Elizabeth Bishops bera með sér: „Skilgreinmg á ljóðagerð er að verða æ mikillátari og banvænni. Eftir að hafa seti um stund við lestur hinna háfleygari tímarita, tapar maður allri löngun

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.