Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 37
FÉLAGSBRÉF
35
ekki lengur sjá þær, en heimta sífellt meira og meira af góðum bók-
menntum.
RITHÖF.: Þetta er alveg rétt hjá þér. Og ég skal segja þér, að ég hef
margsinnis minnt þá á þetta í hinum félögunum, að þeim beri blátt
áfram skylda til að skrifa betri bækur vegna útgefendanna. Þeir þurfa
líka að lifa eins og aðrir menn. Og hvar væru rithöfundar staddir, ef
ekki væru útgefendur? En glæpasögur og leynilögreglusögur eins og
menn voru að skrifa í gamla daga! Við höfum ekkert við þess háttar
dót að gera lengur. Það held ég nú ekki. (lítur aftur á úrið sitt).
BÓKAÚTGEF.: Ég veit ekki, hvernig fer fyrir mér, ef ég fæ ekkert hjá þér.
RITHÖF.: 0, bara að vera bjartsýnn. Allt fer það einhvern veginn.
BÓKAÚTGEF.: Heldurðu, að þú veitir mér ekki einhverja úrlausn, þótt
ekki væri nema smákver upp á fimm arkir? Hér er um líf eða dauða
að ræða fyrir mig.
RITHÖF.: Það er bara, að þú ráðir við það fjárhagslega. Það er þegar
búið að greiða mér fyrir allt, sem möguleiki er á, að ég skrifi á þessu
ári. Nú næsta ár. Ég veit svei mér ekki, hvort ég skrifa nokkuð á því
herrans ári. Annars liggja fyrir tilboð í það í tugatali, sem hugsazt
gæti, að ég skrifaði á næsta ári.
BÓKAÚTGEF.: Já, ef þú gætir látið mig sitja fyrir bók, kannske fyrstu
bók, sem þú skrifar á næsta ári?
RlTHÖF.: Það er þetta með fjárhagshliðina. Ef ég gæfi þér loforð um að
sitja fyrir bók, sem ég kynni að skrifa á næsta ári, þá yrði samkvæmt
reglum okkar í Félagi fyrsta flokks höfunda að greiða ritlaun nú
þegar. Og lágmarkstaxti er núna þrjátíu þúsund á örk af ljóðum og
fimmtán þúsund á prósa. Auk þess er öll ábyrgð útgefanda megin,
þ.e.a.s. hann fær ekki endurgreitt þótt höfundur skili ekki handriti
á umsömdu ári, svo fremi að fyrir hendi séu ástæður, sem félagsráð
höfunda tekur gildar, svo sem veikindi höfundar, vinnuleiði eða
eitthvað annað. Sannast að segja eru slíkar ástæður oft fyrir hendi.
Því skil ég það vel, að útgefendur jiurfa að hafa nokkurt fjármagn
til urnráða.
BÓKAÚTGEF.: En væri ekki hugsanlegt, að ég fengi gjaldfrest þangað til
ég hefði móttekið handritið? Bara í þetta eina skipti?
RlTHÖF. (óþolinmófilega): Útilokað. Þetta eru reglur, sem við höfum