Félagsbréf - 01.06.1961, Side 42
STEINN HAMAR:
BROT
Höfundur þcssara smáffreina, sem kallar sííí Stein Hamar, er tvítugur að aldri,
stúdent að menntun. Hér birtist aðeins lítið sýnishorn úr miklu safni, sem hann
á í fórum sínum. Ritstj.
Menn verða að vita til þess að
geta spurt.
Þú manst það, sem þú hefur lært
af sjálfum þér, en gleymir hinu,
sem þér var kennt.
Barátta er eina leiðin að friði.
Ef iþú sneiðir hjá því smáa, mun
hið stóra sneiða hjá þér.
Það er siðmenning að gefa út
dagblöð, en menning að lesa þau
ekki.
Opnaðu hús þitt fyrir gestum, en
gættu þess að ætla sjálfum þér rúm.
Sá einn er sekur sem dæmir.
í fjölmenni kynnist ég sjálfum
mér, en í einveru öðrum mönnum.
Afrek eru aldrei unnin í vinnu-
tíma.
Smásálir og snillingar birtast í
smáatriðum.
Miklir leikarar eru litlir menn.
Vegur annarra er þér skemmsta
leiðin að gröf þinni.
Skáld hafa aldrei nógu góð orð
fyrir það sem þau liugsa. Stjórn-
málamenn hafa aldrei nógu góða
hugsun fyrir það sem þeir segja.
Sá, sem segir mikið, notar fá orð.
Þú ert á réttri leið þegar skuggi
synda þinna fellur aftur fyrir þig-
Spekin er kóróna mannanna en
fótskör guðanna.
Það sem ekki er hægt að niis-
skilja er ekki þess virði að reynt
sé að skilja það.
Syndin ber hæversklega að dyr*
uin og heilsar þér kurteislega, þegar
þú opnar fyrir henni.
En meðan þú tekur til veitingar,
brýtur hún beztu muni iþína, og þee'
ar þú kemur á vettvang, er hún a
bak og burt.
Fyrst lærirðu að tala, vinna og
samlagast öðrum. Seinna lærirðu að
þegja, hvílast og vera einn.