Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1875, Blaðsíða 26
geyma má í spíritus, lála smiða skáp, járnteina lil að lialda uppi beinagrinduhi o. s, frv.
I’etta alt ætlar beiðandinn að gefa hinum lærða skóla, er þannig mun eignast innlendt
myndasafn og innlendt náttúruhlutasafn, er síðar getur aukizt víðar frú landinu.
Með þe.ssum skilyrðum hef jeg veilt styrk þann, sem sótt hefur verið um, þannig, að
helmingurinn verði ávísaður skólakennara Benidikt Gróndal nú þegar, og hinn helmingur-
inn siðar á þessu ári, þegar verk hans og safnið er komið svo langt á veg, að viss ráð
megi gjöra fyrir, að það verði búið eins og ætlað er til, en beiðandinn ætlar að byrja
verkið í vor og Ijúka við það að ári.
Jafnframt því að Ijá yður herra amtmaðurog yðurháæruverðugi herra þetta til þóknan-
legrar athugunar og lil þess, að þjer birlið það skólakennara Benidikt Gröndal, skal jeg
biðja yður á sínum tíma að ráðstafa því, sem nauðsynlegt er lil, að náttúruhlutasafni því
og myndum þeim, er getið er um, verði veilt viðtaka af hinum lærða skóla, og að það
verði geymt þar á þann hátt, sem samsvarar eðli safnsins og ællun gefandans.
Brjef landshöfdingja (til beggja amtmanna).
Með því að verzlunarskýrslum þeim, sem jeg hingað til hef meðtekið, hefur verið mjög
ábótavant, og jeg hef ástœðu til að halda, að gallar þeir, sem eru á þeim, komi af því, að
ekki sje nákvæmlega gætt þess, sem fyrirskipað er í brjeö dómsmálastjórnarinnar frá 30.
septbr. 1863 um þessar skýrslur, skaljeg hjermeð hafa yður herra amtmaður umbeðinn að
brýna fyrir öllum lögreglustjórum, er undir yöur eru skipaðir, að þeir eigi, undireins og
skip komi til einhverrar hafnar í lögsagnarumdœmi þeirra, að fá skipstjóranum eyðublað
undir vöruskýrslu og bjóða honum að útfylla það nákvæinlega. Lögreglustjórinn má þar
eptir ekki afgreiða skipið, fyrr en hann hefur fengið vöruskýrsluna, staðfesta með nafni
skipstjórans eður þess, sem tekur við vörunum, og hann þaraðauki með því að bera skýrst-
una saman við tollskrá cður vöruskrá þá, er fylgir skipinu, hefur fullvissað sig um, að skýrsl-
an sje svo nákvœm, sem kostur er á, og ber honum að rita vottorð sitt um það á skýrsl-
una. Skýrslur þær, sem þannig eru samdar, á sýslumaðurinn eður bœjarfógelinn að senda
beina leið hingað, nndir eins og siglingin hætlir, ( siðasta lagi með 6tu eður 7du pósl-
ferð, svo að þær geti náð hingað innan ársloka, en með vöruskýrslunum sendir sýsiu-
maðurinu hina fyrirskipuðu skýrslu um skip þau, sem komið hafa til verzlunarstaða
sýslunnar og þaðan farið.
Skyldi nokkur sigling eiga sjer stað eplir 6tu eður7du póstferð, ber lögreglustjóranum
með lstu póstferð nœsta ár að senda skýrslu um hana og vörur þær, er fluttar hafa verið
inn eða út.
Eyðublöð þau, undir vöruskýrslur, sem lögreglustjórarnir meðþurfa, munu eptir beiðni
verða sendar þeim hjeðan.
Embættismenn skipaðir.
Hinn 11. dag janúarmánaðar veittu stiptsyfirvtíldin prestinum sira Guðmundi Bjarnasyni á Melum
líorgar- og Álptanesprestakall í Mýrasýslu.
26. s m. skipaði biskupinn prcst Helgafells- og Hjarnarhafnarsafnaða sira Eirík Kúld til að vera
prófast i Snæfellsnessprófastsdœmi.
Hinn 15. dag febrúarmánaðar veittu stiptsyfirvöldin fyn-um presti Ilvammssafnaðar í Skagafirði sira
Ólafi Ólafesyni Fagrancssprestakall moð annexíunni Sjáfarborg í Skagafjarðarsýslu.
Óveitt embætti.
Mela- og Leirárprcstakall í Borgarfjarðarsýslu, motið 776,»7 krónur, auglýst 13. janúar.
Stokkseyrarprestakall £ Árnessýslu, metið 1626,5» krónur, auglýst 22. janúar. Prestaekkjur 2 eru í
brauðinu.
Torfastaðaprestakall í Árncssýslu metið 847,75 krónur, auglýst 25. janúar. í brauðinu er uppgjafa-
prestur, cr nýtur æfilangt þriðjungs af hinum ftístu tokjurn prcstakallsins að moðtöldum arði prests-
setursins Torfaslaða, og afgjalds af eða afgjaldslausrar ábúðar á hjáleigunni Torfastaðakoti.