Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1875, Blaðsíða 42
24
1875
*4 4.
3.®J* "Verði búnaðarskóla, eður þessleiðis mennlastofnun komið á fót lijer í sýslu, skal sjóö-
1874. urinn leggjast til tjeðrar 6tofnunar, henni til styrktar og \iðgangs. þó skal sjóðurinn jafn-
an vera sjerstök stiptun með sjcrskildum reikningum, og ágóðanum, eður afgiptinni jafnan
vera varið á þann hátt, sem ákveðið er í 3. grein.
5.
Sern stjórnendur og umsjónarmenn sjóðsins tilnefni jeg sýslumanninn og hjeraðspró-
fastinn, samt alþingismanninn fyrir syðra kjördœmi sýslunnar, hverjir sem eru eða verða
kunna. þessir menn hafa á hendi umsjón og ábyrgð sjóðsins undir yílrumsjón amtmanns-
ins í norður- og austur-umdœminu, hverjum þeir senda árlega skilagrein um efnahag og
meðferð sjóðsins. En þá er úthlula skal styrk þeim, sem að framan er getið, kveðja
stjórnendurnir sjer til ráðaneytis hreppstjórana í þeim 3 hreppum, sem áður eru nefndir.
f>essa mína síðustu ráðstöfun, undirskrifa eg og innsigla í viðurvist tveggja vítundar-
votta.
Krossi þann 7. fehrúarm. 1869.
Jóhannes Kristjánsson,
(handsalað).
Vitundarvottar: L. S.
Jón Sigurðsson.
E. Halldórsson.
Staðfesting lconungs á gjafarbrjefi, sem hefur inni að halda fyrirmœU um shipulag styrht-
júll arsjóðs Örums og Wulffs.
1874. gtaðfestingin er orðuð eins og hin næst undangengna, en skipulagsskráin segir svo :
Örum og WulíT
Kaupmannahöfn dag 17. júlimánaðar 1874.
í minningu þúsundárahátíðar íslands gefum við með þessu brjeíl 1500 rd. í 4°/0 arð-
berandi konunglegum skuldabrjefum lil að stofna af þeim styrktarsjóð handa Suður-J>ing-
eyjarsýslu og Norðurmúla- og Suðurmúla-sýslum í norður- og austur-amti íslands, en í
þessum sýslum höfum við um mörg ár rekið verzlun vora ; um það hvernig sjóði þessum
skuli stjórnað og varið, skipum við svo fyrir:
1. grein.
Sjóðurinn heitir styrktarsjóður Örums og Wulfls.
2. grein.
Innstœðuna má aldrei skerða, vextirnir leggist fyrst um sinn fyrir, þangað til stofn-
aður er í norður- og austur-amti íslands búnaðarskóli, og á að kaupa fyrir vexti þá, sem
saman er safnað, konungleg skuldabrjef, sem leggist til innstœðunnar. þegar slíkur skóli
er stofnaður skal vöxtunum af innstœðu sjóðsins varið til að styrkja ungan námfúsan mann
af bœndastjettinni, sem hefur lyst en vantar efni til að sækja slíkan búnaðarskóla, og á
það, að þvf leyli sem við verður komfð, að vera í sitt skipti frá hverri sýslna þeirra, sem
að ofan eru nefndar.
3. grein.
I’yrst um sinn eiga amtmaðurinn yfir norður- og austur-umdœminu og verzlunar-
stjóri okkar á Húsavfk að veita sjóðnum forstöðu, en þegar búnaðarskóli sá, sem nefndur
var, er stofnaður, skal stjórn sjóðsins lögð undir forstöðunefnd skólans.