Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1875, Blaðsíða 41
23
1875
Stadfesting lionnngs á sliipulagssltrá fyrir styrlctarsjóð Jóhannesar Kristjánssonar handa 94
fátcékum námfúsum bœndaefAum í HelgastaSa- Húsavúcur- og Ljósavatnshreppum. ?,jíjj.a
V j e r C ll I’ i S t i il II ll i I) n n i U ll (1 i af guðs náð Danmerkur konung- 1874.
ur, Vincla og Gauta, liertogi í Sljesvík, llolsetalandi, Stónnœri, J>jettmerski, Lá-
enLorg og Áldinborg.
Gjörum kunnugt,: að vjer viljum, með því allraþegnsamlegast liefir verið mælzt til
og beiðzt allrahæstu slaðfestingar vorrar á skipulagsskrá, sem frumrituð er hept við þetta
brjef og samin hefur verið 7. febrúar 1869 fyrir styrktarsjóð Jóhannesar Kristjánssonar
handa fátœkum námfúsum bœndaefnum í Helgastaða- Húsavíkur og Ljósavatnshreppum,
— allramildilegast hafa samþykkt og staðfest nefnda skipulagsskrá, er samhljóða staðfest
eptirrit hennar hefur verið sent dómsmálastjórnarráðgjafa vorum, eins og vjer með þessu
brjefi samþykkjum og staðfestum hana, þó þannig, að þar sem gefandinn í 5. grein skrár-
innar meðal annars leggur fyrir alþihgismanninn fyrir Suður-f>ingeyjarsýslu að taka þátt í
stjórn styrktarsjóðsins, á þessi hlutlekt hans i stjórninni að vera bundin við þann skil-
mála, að hann tjúi sig fúsan á að takast þetta starf á hendur.
Vjer fyrirbjóðum öllum og sjerhverjum að tálma nokkru því, sem að framan er ritað.
Ritað í hinurn konunglega aðselursstað vorum Kaupmannahöfn hinn 3. júlí 1874.
Undir, hið konunglega innsigli vort.
L. S.
Eptir allramildastri skipun hans hátignar,
C. S. Klcin.
F. Vestergaard.
ass.
í skiptaráðstöfun minni dags. 3. október 1865, sem samþykkt er og undirskrifuð af
erfingjum mínum, hef jeg ráðstafað 500 ríkisdölum af verði jarðarinnar Laxamýrar, sem
inni stendur hjá syni mínum Sigurjóni bónda á Laxamýri, þannig: að þeim verði að mjer
látnum, varið til menntunarstyrks, — einkum i búnaði og jarðyrkju — handa námfúsum
en fátækum bœndaefnum í þeim 3 hreppum, hvar jeg hef alið allan aldur minn ; nefnilega
Helgastaða- Húsavíkur-og Ljósavatns-hreppum. þar sem drottni hefur nú þóknast að treina
líf mitt allt á þennan dag, hef jeg við nákvæmari yfirvegun fundið nauðsynlegt, að gjöra
ýtarlegri ráðstöfun um fyrirkomulag og stjórn þessarar litlu stofnuhar eplir rninn dag, og
verður það sem eptir fylgir:
1.
Sjóður þessi skal nefnast: Styrktarsjóður Jóhannesar Iiristjánssonar, handa fátœkum
námfúsum bœndaefnum ( Helgastaða- Húsavíkur- og Ljósavatns-hreppum.
2.
Að mjer fráfölinum, setjist innstœðan á vöxtu gegn óbundnu og áreiðanlegu fasteign-
ar veði, og ávaxtist þar til sjóðurinn er orðinn 1000 rd. Má eigi taka til vaxtanna, fyrri
en sjóðurinn hefur náð þeirri upphæð, sem nú var sagt.
3.
J>á er sjóðurinn hefur náð tjeðri upphæð, sem mjer telst til að verði að 18—20 ár-
nm liðnum frá andláti mínu, ef vel er á haldið ; þá skal fara að verja leigunum, til að
styrkja einn eður fieiri námfúsa unga menn af bœndastjett, til að ada sjer nauðsynlegrar
kunnáttu í búnaði og jarðarrœkt. Styrkurinn veitist einungis mönnum í þeim 3 hreppum,
sem að framan eru nefndir, og skulu niðjar mínir hafa forgöngurjett, ef til eru, og verð-
ugir finnast til að njóta styrksins.